Alþýðublaðið - 13.09.1964, Qupperneq 16
4M!£Sm>
44. árg. — Sunnudagur 13. september 1S64 — 208. tbl.
Ny stjorn i
FINNLANDI
160 km. hraða
á steinvegg
Reykjavík 12. sept. — KG.
SVARTRI Buick bifreið var
stolið í Reykjavík í nótt. Var
bifreiðinni fyrst ekið um göt-
ur borgarinnar og siðan til
Hafnarfjarðar og þar lauk öku
ferðinni með þvi að bifreiðinni
var ekið á steinvegg. Er talið
að bifreiðin hafi verið á allt
tið 160 kro. hraða.
Bifreiðinni' var stolið éin-
hvern tímann á 3ja tímanum í
nótt þar sem hún stóð við blla
sölu í Aðalstræti. Var henni
fyrst ekið nokkra stund um göt
ur Reykjavíkur, en síðan hald
ið til Hafnarfjarðar. Tveir pilt
ar undir tvítugu voru í bíln-
um á leiðinni til Hafnarfjarð-
ar, en þegar þeir komu á Strand
götuna tóku þeir þann þriðja
upp í og síðan var ekið eftir
Strandgötunni. Eitthvað virðist
háfa legið á, því að þegar bif-
reiðin var rétt komin austur fyr
ir Skipasmíðastöðina Dröfní
missti ökumaðurinn vald á bif
reiðinni. Lenti hún á steinvegg
og braut hann þannig að hann
féll niður á nokkurra metra
kafla en tvær sprungur komu i
hann auk þess, þó að ekki félli
sá hluti niður. Húsið, sem lóð
in tilheyrir er Suðurgata 70,
en veggurinn snýr að Strand-
götu. Er talið að þegar bifreið
in lenti á veggnum hafi hún ver
ið á 160 kíómetra hraða.
I>egar lögreglan kom á stað-
irin var ökumaðurinn horfinn
ásamt öðrum farþeganum, en
hirin sat hjá bifreiðinni og
hafði skrámast nokkuð á and-
Hti. Hinir sluppu ómeiddir og
náðust í morgun. Piltamir
voru allir ölvaðir.
(Mynd: JV).
Tveir hreppar
sameinaðir
Reykjavík ,12. sept. HP.
I7M síðustu áramót beitti fé-
tegsmalaráðuneytið í fyrsta skipti
Reykjavík, 11. sept. - ÞB
HINN 15. þessa mána'ðar hefst
»ala happdrættismiða í happ-
ðrætti Barnauppeldissjóðs Thorv-
•Idsensfélagsins. Þetta er leik-
fengahappdrætti og eru vinning-
*r 50 brúður og 50 drengjaleik-
döng. Hver miði kostar aðeins 10
ferónur. Brúðurnar eru'um þessar
luundir til sýnis í glugga Málar-
•ns. Einnig verða brúður sýndar í
Máskólabíói þar sem miöar verða
fieldir eftir klukkan 4 daglega.
Aðrir sölustaðir verða Bazar
Thorvaldsensfélagsins, Kjörgarð-
4ir og fieiri, Dregið evrður 15, okt-
4ber.
heimild sveitarstjórnarlaganna tii
sameiningar hreppa með þvi að
sameina Grunnavíkurhrepp í
Norður-ísafjarðarsýslu Snæfjalla-
hreppi i sömu sýslu. Var þetta
gert af hagkvæmnisástæðum, þar
sem nær allir íbúar Grunnavikur-
hrepps voru fluttir brott og ekki
aðrir eftir • þar en einn vitavörð
ur með fjölskyldu síria, 7—9
manns.
Sameiningarheimildin er í sveit
ars'tjórnarlögum nr. 58 frá 29.
marz 1961, og var ákveðið að sam
eina hreppana tvo í Noröur-
isafjarðarsýslu að fengnu sam-
þykki hreppsnefndar Snæfjalla-
lirepps og meðmælum sýslunefnd
ar, og gekk sameining hreppanria
formlega í gildi 1. janúar sl. Nýi
hreppurinn verður kallaður Snæ-
fjallahreppur, en hreppssjóði
Grunnavíkurhrepps, sem nam við
sameininguna tæpum 42 þús. krón
um, var ákveðið að verja til fram
faers?u þeirra styrkþega, sem voru
á framfæri hreppsins, þegar hann
var lagður niður, en þegar sjóð-
inn þrýtur, tekur Jöfnunarsjóðgr
svriitarfélaga að sér að greiða
þann hluta af framfærslu styrk-
þeganna, sem Grunnavíkurhrepp-
ur hefði átta að greiða. Ákveðið
hefur verlð, að bækur og skjöl
Grunnavíkurhrepps verði varð-
veitt í héraðsskjalasafni Norður-
ísafjarðarsýslu, en hreppsnefnd
Snæfjallahrepps fær að sjálfsögðu
aðgang að þeim, þegar hún þarfn
ast. Úr ágreiningi út af sarfiein
ingu hreppanna skal skorið af
sýslunefnd Norður-isafjarðarsýslu,
Þess má geta, að Snæfjallahrepp
ur er svo fámennur, að eftir sam
eininguna telur hann ekki nema
kringum 50 manns.
HELSINGFORS, 12. septem-
ber (NTB-FNB) — Urho Kekkon
en forseti skipaöi formlega í dag
hina nýju samsteypustjórn borg-
araflokkanna í Fimiiandi. Skömmu
síðar mættu ráðherrar til fyrsta
fundar síns undlr forsæti Johann
esar Virolainens forsætisráðherra
úr Bændaflokknum.
Bændaflokkurinn hefur sjö ráð
herra í stjórninni, en Einingar-
flokkurinn þrjár og Sænski þjóð
arflokkurinn og Finnski þjóðar
flokkurinn tvo hvor. Auk þess sit
ur einn embættismaður í stjórn-
inni og er hann 15. ráðherrann.
Nýja stjórnin tekur við af em-
bættismannastjórn Reino Lehtos,
sem farið héfur með völd í níu
mánuði.
Utanríkisráðherra nýju stjóm
arinnar er Ahti Karjalainen, sem
einnig er úr Bændaflokknum.
Niilo Ryhta er innanríkisráðherra
og Arvo Pentti, landvarnaráð-
herra, báðir úr Bændaflokknum.
Dómsmálaráðherra er J. O. Söder-
haelm úr Sænska þjóðarflokknum
og fjármálaráðherra Esa Kaitila
úr Finnska þjóðarflokknum.
Borgarlega blaðið „Helsingin
★ MOSKVU, 12. scptember —
(NTB - AFP) — SARVAPALLI
Radhakrishnan, forseti Indlands,
ræddi á ný í morgun við Krústjov
forsætisráðherra, Hann er í Sovét-
ríkjunum í níu daga opinberri
heimsókn og ræddi vlð Krústjov
og Mikojan forsota í gær. Chavan,
landvarnaráðhorra Indlands, fer
-heimleiðis frá Moskvu í dag. —
GETA KASTAÐ I
1 KLUKKUTÍMA
Reykjavík, 12. sept - GO
SÍÐASTLEÐINN sólarhring fengu
57 bátar 27.710 mál og tunnur á
sömu slóðum og áður, SV af Dala-
tanga. Veðrið á miðunum er svip
að og verið hefur, en síldin kem-
ur ekki eins vel upp og yfirleitt
er veiðin fengin á einni klukku-
stund, nánar tiltekiö milli 9 og 10
á kvöldin.
Þessir bátar fengu 500 mál og
tunnur og þar yfir. Vattarnes 550,
Ólafur Magnússon 500, Ásbjörn
700, Ingvar Guðjónsson 1000, Sæ-
þór 700, Lco 650, Mímir 500, Guð-
björg ÍS 500, Sigurvon RE 650,
Pétur Sigurðsson 550, Hannes Haf
stein 600, Arnar 1600, Grótta
1100, Þorbjörn 500, Skagaröst 650,
Ólafur bekkur 550, Guðbjörg GK
1000, Víðir II 650, Helga Guð-
mundsdóttir 1000, Sólfari 700,
700, Guðmundur Þórðarson 800 og
Guðfinnur 500.
. Ekki var vitað um neina veiði í
morgun.
Sanomat" segir, að veikleiki stjórn
arinnar sé sá, að Bændaflokkur
inn hafi ákvörðunarréttinn f
stjórninni, á sama hátt og í stjórn
Karjalainens. Fljótlega komi í ljós
hvort menn hafi lært af reynsl-
unni og hvort hægt verði að hafa
gott samstarf við þingið, en það
sé nauðsynlegt vegna sérstaklega
erfiðra verkefna nýju stjómarinn
ar.
Blaðið telur eftirtektarvert, að
sjö ný nöfn séu á ráðherralistan
um og að Finnski þióðarflokkur-
inn hafi tekið að sér hið vanþakk
láta embætti fjármálaráðherra.
Ráðherrar Bændaflokksins séu all
ir tryggir fjdgismenn Virolainens
og skipun Karjalainens banka-
stjóra í embaptti utanríkisráðherra
sýni, að menn vilii hafa mann f
því embætti, sem forsetinn treystl
fullkomlega.
Málgágin jafnaðarmanna, „Su-
omen Sosialdemokraati" segir, að
nú sé hæet að legeia huemvndina
um aukakosningar á hilluna. Nýja
stjórnin geti sýnt á heilu kjörtíma
bili livað hún vilii. Blaðið. leggur
áherzlu á, að Jafnaðarmannaflokk
urinn muni halda uppi harðri gagn
rýni á hina nýju samsteypustjórn
borgaraflokkanna.
Kjördæmisþing
Kjördæmaþing Alþýðuflokks
ins á Norðurlandi verða háð
sameiginlega fyrir kjördæm-
in bæði á Akureyri dágana
26. og 27. september n. k.
Fundir þingsins fara fram í
félagsheimilinu Bjargi og
hefst fundtir fyrri daginn kl.
14. Auk þingfulltrúa sækja
þingið Emil Jónsson félags-
málaráðherra, formaður Al-
þýðuflokksins og Jón Þor-
steinsson alþingismaður. —
Þingfulltrúar eru hvattir til
að fjölsækja þingið. Allar
nánari upplýsingar eru gefn
ar á' skrifstofu Alþýðuflokks-
ins á Akurcyri, Strandgötu 9,
sími 1399. Nánari tilhögun
verðúr tilkynnt síðar. —
Stjórnir kjördæmisráðanna.
iWWWWWWWWWWW
J*