Alþýðublaðið - 15.09.1964, Side 8

Alþýðublaðið - 15.09.1964, Side 8
FORSETAFRÚ DÓRA ÞORHALLSDOTTIR MINNING t FYRIR tæpum hálfum mán- uði átti ég erindi að Bessastöð- um. Var mér þá sagt, að for- setafrúin dveldist á sjúkrahúsi vegna tannaðgerðar. Líðan henn- ar var þó talin góð, og var búizt við að sjúkrahúsvistinni myndi brátt lokið. Síðastliðinn fimmtu- dag hafði verið boðaður ríkis- ráðsfundur, en var skyndilega aflýst, að ósk forseta, vegna þess að líðan forsetafrúarinnar hafði versnað. Ekki grunaði mig þá að dauðinn væri svo nærri. En um kvöldið var hún látin. And- : látsfregnin kom eins og reiðar- slag. Ekki aðeins yfir mig, held- ur yfir þjóðina alla. Örfáum dög- um áður en hún var lögð inn á sjúkrahúsið hafði ég séð hana glaða og reifa. Lífið virtist brosa við henni, og hún brosti við líf- inu. Engin hugsun var fjær en hugsunin um dauðann, sem að vísu ávallt getur borið að með einhverjum hætti, en sem þó virtist svo órafjarri. Manni finnst stundum dauðinn taka of mikið og of fljótt, en hvort sem maður hefur leyfi til að hafa skoðun á því eða ekki, er þó hitt víst, að hér hafa margir misst mikið og of fljótt: forseti ís- lands, fjölskylda hans, forseta- embættið og þjóðin öll. Forseta- embætti okkar er nýtt, aðeins 20 ára. Forsetahjönin Ásgeir Ásgeirsson og forsetafrúin Dóra Þórliallsdóttir, hafa átt sinn mikla þátt í mótun þessa emb- ættis. Þetta embætti hafa þau bæði gert í senn virðulegt en þó alþýðlegt. í þessari mótun hefur forsetafrúin átt sinn mikla þátt. Hún hefur verið virðuleg húsmóðir á forsetasetrinu á Bessastöðum, og hún hefur stað- ið við hlið manns síns, bæði innan lands og utan á þann hátt, að þjóðin hefur haft mikinn sóróa af, og forsetinn mikinn styrk. Forsetafrúin hefur verið manni sinum sá styrkur og sú stoð í starfi, að tæpast er hægt að hugsa sér að sú aðstoð hefði mátt betri vera. Forsetahjónin hafa verið mjög samhent. í vit- und þjóðarinnar eru þau svo samtengd, að ekki er unnt að nefna annað án þess að hitt komi fram í hugann. Forsetafrú Dóra Þórhallsdótt- ir var góðrar ættar, dóttir Þór- halls biskups Bjarnarsonar og Valgerðar Jónsdóttur. Hún fékk hið bezta uppeldi i æsku. Hún var virkur þátttakandi í ung- mennafélagshreyfingunni, á fyrstu árum þessarar hreyfingar. Hreifst af hugsjónum hennar og trúði á framgang þeirra. Var hvort tveggja þetta, holl upp- eldisáhrif heimilisins og hug- sjónir ungmennafélaganna henni hinn bezti skóli og undirbúning- ur undir lífsstarfið. Hún giftist 24 ára gömul Ásgeiri Ásgeirs- syni og hefur staðið við hlið hans í nærri háifa öld sem fræðslu- málastjóra, bankastjóra, þing- manns, forseta Alþingis, forsæt- isráðherra og forseta íslands, á þann hátt sem sjaldgæft er, og -verið manni sínum ómetanlegur styrkur. Er nú að honum mikill harmur kveðinn við andlát hennar. Öll íslenzka þjóðin send- ir honum, börnunum, tengda- börnunum og barnabörnunum innilegar samúðar og hluttekn- ingarkveðjur, en huggun má það vera að minningin um forseta- frú Dóru Þórhallsdóttur mun lifa. Emil Jónsson. t „Skjótt hefir sól brugðið' sumri, því séð hef ég fljúga fannhvíta svaninn úr sveitum til sóllanda fegri.“ Þessi orð listaskáldsins góða koma fram í hugann, þegar for- setafrú Dóra Þórhallsdóttir er í dag kvödd hinztu kveðju. Fyrr á sumrinu gegndi hún störfum sínum með sama tignarbrag og ávallt áður. íslenzka þjóðin hafði þá gilda ástæðu, að því er bezt varð séð, til að ætla, að hún fengi notið starfskrafta frú Dóru í mörg ár enn. En að kvöldi hins 10. þ. m. andaðist forsetafrúin í Landsspítalanum eftir skamma legu. Æðri máttarvöld vissu það, sem mannleg augu gátu ekki skynjað, og nú hverfur frú Dóra héðan ,,til sóllanda fegri“. Þjóðin kveður hana með hryggð og söknuði, en þakklát fyrir líf hennar og starf. Mynd hennar mun lengi geymast í hug og hjörtum íslendinga. Biskupsdóttirin frá Laufási giftist ung eftirlifandi manni sín um, herra Ásgeiri Ásgeirssyni, forseta íslands. Það varð hennar hlutskipti að standa við hlið hans í fjölþættum og vandasömum störfum fyrir þjóðfélagið. Hann varð fræðslumálastjóri, þingmað ur, þingforseti á stórhátíð, ráð- herra og bankastjóri, og nú hef- ir hann um 12 ára skeið gegnt æðsta embætti landsins, forseta- embættinu. Bezti liðsmaður forsetans á þessum ferli var frú Dóra, sem auk þess að láta sér annt um störf hans og frama, sá alltaf svo imi, að hann ætti athvarf á vÞtlegu og elskulegu heimili hjá henni og börnum þeirra. For- setafjölskyldan er mótuð af þeim kærleiksríka fjölskyldu- anda, sem frú Dóra skapaði. ■ Vináttubönd fjölmargra Vest firðinga við heimili forsetans frá þingmannsárum hans voru honum mikill styrkur þá, en þeim hefir einnig verið við hald ið síðan af trygglyndi og ræktar- semi, sem einkennt hefir bæði hjónin. Það er margs að minnast úr lífi og starfi frú Dóru á þessari stundu. Það óskoraða traust. sem þióðin hefir vot.tað herra Ásgeiri Ásaéirssyni, forseta hefir hún einníg vottað forsetafrúnni. Óáleymanleg er mynd frú Dóm. beaar hún kom fram á há- tíðastundum við hlið manns sins: eÞir að hann varð forseti. Hún var fríð kona og glæcileg, og bar h'nn íslenzka bióðbúning af látlevsi oa virðuleik. Hún bar aldurinn svo vel. að ókunnuair. sem sáu hana í fyrsta sinn á b«ssu sumri. hefðu mátt ætla. að hún væri tutt.uau árum vnsri. vfírhraað hennar var tígulegt og framkoman ÖH ,svo örugg, að a’droi rtreikaði. Innanlands oa utan dáðust. menn að forsetafrúnni, og beir fiöimöreu pestir sem komið hafa til Reqsastaða meðan hún róði har húsum. minnast með gleði heirrar aestrirni Og alúðar. sem har var iafnan að mæta und jr houoor stiórn. S+undum vnru grstir e. t,. V. fleiri en hæfði hú=aVi7nnum. oa iók bað á vanda húsmóðurinnar en forsetafrú’n gat samt látið fara vel um alla. Hún var hlutverki sínu vaxin, einnig þegar mest á reyndi, Alþingismenn hafa jafnan heimsótt forsetasetrið einu sinni á ári með konum sínum. Það hafa alltaf verið gleðistundir — menn hafa lagt dægurþrasið til hliðar, og notið góðs atlætis for- setahjónanna. Á síðustu heim- sókn okkar bar þó þann skuggá, að forsetafrúin varð fyrir því óhappi, að hún hrasaði á gólfi og handleggsbrotnaði. Læknir var sóttur, og bjó hann um brotið til bráðabirgða á skammri stundu, og þegar því var lokið, kom for- setafrúin aftur í gestahópinn, og gegndi áfram húsmóðurskyldum sínum, eins og ekkert hefði í skorizt; Að mínum dómi sýnir þetta at- vik, að frú Dóra var gædd frá- bærum viljastyrk og einbeitni, og svo skyldurækin, að fátítt er. Hún kunni að taka því, sem að höndum bar, og hið mikla þrek hefir verið henni styrkur á bana beðinu. Það er sjónarsviptir að þessari glæsilegu, hugprúðu og göfugu konu, Dýpstur er söknuður forset- ans, herra Ásgeirs Ásgeirssonar, barna þeirra hjóna, barnabarna og annarra ástvina, sem varð- veita hugljúfustu minningarnar um konuna, móðurina, ömmuna — ástvininn. Þeirra huggun er rú, að látinn lifir, og hin mikla samúð, sem þeim er í dag vott- uð hyaðanæva. íslendingar kveðja forsetafrú Dóru Þórhallsdóttir hinztu kveðju með þökk og virðingu og votta forseta sínum og fjöl- skyldu hans innilegustu sam- úð. Birgir Finnsson. t SÍÐASTLIÐINN föstudag blöktu fánar í hálfa stöng yfir breiðum byggðum íslands. Forsetafrú Dóra Þórhallsdótt- ir var dáin. Þjóðin hafði misst þá konu, er hún hafði treyst til að sitja í öndvegi og sem reynzt hafði starfi sínu svo vel vaxin, að hún ávann sér virðingu og aðdáun allra. Andlátsfregnin kom fólki mjög að óvöru. Almenningur hafði ekkert heyrt um hina stuttu sjúkdómslegu forsetafrú- arinnar. Reykvíkingar minnast hennar fyrir fáum vikum, er forseti ís- lands tók að nýju við embætti sínu. Hún kom fram á svalir Alþingishússins, fríð og hraust- leg, klædd þjóðarskarti. Hún bar tákn sinnar háu stöðu með þeirri hógværu reisn, sem einkenndi forsetafrúna hvar sem hún fór meðal æðri og lægri, meðal inn- lendra og erlendra. Engum blandaðist hugur um að forsetafrú Dóra Þórhallsdótt- ír hafði hlotið í vöggugjöf ytra útlit og andlega hæfileika tíl að njóta mannvirðinga. Þar við bættist uppeldi hennar í föður- garði, sem einmitt stefndi í þá átt. Eins og kunnugt er, voru foreldrar hennar, Þórhallur Bjarnarson biskup, sonur síra Björns Halldórssonar skálds i Laufási við Eyjafjörð, og frú Valgerðar Jónsdóttur Halldórs- sonar hreppstjóra í Bárðardal. Börn biskupshjónanna voru fjögur. Tryggvi Þórhallsson, for- sætisráðherra, kvæntur Önnu Klemensdóttur, frú Svava, er giftist Halldóri Vilhjálmssyni skólastjóra á Hvanneyri, Björn, er dó ungur, 1916, og frú Dóra, er var yngst systkinanna, en hún var fædd 23. febrúar 1893. Forsetafrúin minntist jafnan bernskuheimilis síns með virð- ingu og þökk. ’ Þórhallur biskup vár glæsi- menni í sinni stöðu, gáfaður, vel ritfær og jafnframt gæddur ó- bilandi trú á framtíð íslánds, ekki sízt á sviði ræktunar og landbúnaðar. Frú Valgerður bjó manni sínum og börnum fallegt og gott heimili. En hún varð með árunum heilsulítil, því tók frú Dóra þegar á æskuárunum mikinn bátt í heimilisstörfunum innan húss og utan, og er móð- ir hennar andaðist 1913, tók hún að fullu við búsforráðum á bisk- upsheimilinu í fiögur ár. Á þeim árum vandist frú Dóra á að stiórna umfangsmiklu heimili, sem hafði ýmsum skyld- um að eeena í oninberu lífi. Hefur þess oft verið minnzt, hve henni hafi farið það vel úr hendi. Þessi ábyrgð, ásamt góðri menntun, hefur án efa verið gagnlegur undirbúningsskóli f.vrir það starf, er síðar skyldi koma. Þó heimilið fvrr og síðar hafi verið frú Dóru kærasti vettvang- ur, þá hafði hún áhuga á opin- berum málum. svo sem skóla- og kirkjumálum. Hún starfaði á sínum tíma í ungmennahreyf- ingunni oe s'ðar í kvenfélögum. Hún skildi til hlítar, að félags- störf og samtök kvenna væru gagnleg oe gætu komið ýmsú góðu til leiðar. c Árið 1917 giftist frú Dóra Þórhallsdóttir cand. theol. Ás- geiri Ásgeirssyni, núverandi for- seta íslands. Börn þeirra eru, Þórhallur, ráðuneytisstjórij kvæntur Lily Ásgeirsson, frú Vala Thoroddsen, kona Gunnajrs g 15. sept. 1964 — AtÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.