Alþýðublaðið - 24.09.1964, Qupperneq 2
Bltstjórar: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedtkt Gröndal. - Fréttastjórl:
Ami Gunnarsson. — Ritstjórnarfulltrúl: Eiður Guðnason. — Símar:
14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið vlð
Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskriftargjald
fcr. 80.00. — 1 lausasölu kr. 5.00 eintaklð. — Útgefandi: Aiþýðuflokkurinn.
Dönsku kosningarnar
ÚRSLIT kosninganna í Danmörku urðu nokk
aið á annan veg en flestir höfðu ætlað. Borgara-
flokkarnir bættu við sig meira fylgi, en ætlað
ivrar og unnu þingsæti af smærri flokkunum.
Jafnaðarmenn í Danmörku mega vel við una.
Þeir juku fylgi sitt um 80 þúsund atkvæði og héldu
öilum þingsætunum, sem þeir unnu í kosningun-
um árið 1960.
Jens Otto Krag hefur nú beðizt lausnar fyrir
ríkisstjórn sína, en mjög er þó talið ólíklegt, að
forsvarsmönnum borgaraflokkanna verði falin
stjómarimyndun. Talið er fullvíst, að jafnaðar-
menn verði áfram í ríkisstjórn undir forustu
Krags.
Styrkleikáhlutföllin í danska þinginu eru nú
'þannig, að gömlu stjórnarflokkarnir hafa 88 þing
menn, fyrrverandi stjómarandstaða 81 þingmann
Og eru þá ótaldir tíu þingmenn úr flokki Aksel
Larsen, sem boðið hefur jafnaðarmönnum sam-
starf, en þeir hafnað.
Kosningamar í Svíþjóð og Danmörku hafa sýnt
og sannað svo ekki verður villzt, hve traust
fylgi jafnaðarmanna er á Norðurlöndum og hverra
vinsælda stefna þeirra nýtur hjá álmenningi þar.
„Norræn samvinna"
ENN er ekki séð fyrir endann á deilu Loftleiða
og SAS. Flugmálastjórar Norðurlanda þinguðu fyr
ir skömmu í Reykjavík um málið, og hyggja á ann
an fund innan tíðar.
Alþýðublaðið skýrði frá því fyrir nokkru, að
SAS nyti nú stuðnings ríkisstjóma Noregs, Dan-
merkur og Svíþjóðar í deilunni við Loftleiðir, og
skyldi nú einskis látið ófreistað til að knésetja hið
ís'lenzka flugfélag. Óneitanlega er nú allt útlit fyr
ir að beita eigi „norræni samvinnu“ til að kreppa
að Loftleiðum.
Þetta er þó ekki sú tegund norrænnar sam-
vinnu, sem við íslendingar höfum kappkostað að
efla með frændþjóðum okkar. Hákon Bjarnason,
skógræktarstjóri, kunnur áhugamaður um norræna
samvinnu, lét ,svo ummælt í blaðagrein fyrir
skömmu, að fái SAS áfram að traðka á rétti Loft-
leiða, hljóti slíkt að hafa ófyrirsjáanlegar afleið-
ingar fyrir samvinnu íslands við Noreg, Dan-
mörku og Svíþjóð.
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, hefur
og iátið svo ummælt, að ríkisstjórnin styddi Loft-
leiðir af alhug og mundi veita félaginu þann stuðn-
ing, sem hún mætti, gegn árásum utanaðkomandi
aðila.
I þessu máli standa íslendingar einhuga sam-
an um hagsmuni þjóðar sinnar, og láta ekki rétt
sinn fyrr en í fulla hnefana.
wmmmm.
I»yrill dælir úr síldveiöiskipi á miöunum.
Síldardælan
reyndist vel
Reykjavík, 22. sept. — KG.
í síðasliðnum mánuði voru hafn
ar tilraunir með að dæla síld úr
síldarskipum á miðunum um borð
í flutningaskip og flytja hana
þannig í land. Eru tæki þessi fram
leidd í Bandaríkjunum og keypti
Einar Guðfinnsson fyrsta tækið' og
hefur það verið til reynslu um
borð í olíuskipinu Þyrli. Er talið
að tilraunir með tækið liafi tekizt
með ágætum þrátt fyrir erfiðar
aöstæður I Bolungarvík.
Dæla þessi er fyrirferðarlítil og
létt. Er síldin soguð upp úr skip-
Um umferð-
arfræðslu
barna
NÚ þcgar skólarnir eru byrjað
ir og glaðværir hópar barna
streyma til og frá skólunum á ýms
um tímum dags oftast í rökkri eða
dimmu og í misjöfnu færi, þá er
nauðsynlegt aö vegfarendur séu
á eilífum verði til að fyrirhyggja
slys í umferðinni. Foreldar, kenn
arar, ökumenn og fólkiff á götun
unni, verður að taika höndum
saman til að vinna aö þessu
marki, — slysalausri umferð.
Sérstaklega verður að gæta
þessa ríkt við skólabörnin, sem
nú eru allt í einu komin út 1
hringiðu umferðarinnar, með
leyfi til að nota reiðhjól og þörf
á að komast fljótt áfram á mis-
jöfnum götum og vegum þar sem
oft er að mæta tillítsleysi ög ó-
þarfa þjösnagangi, Árlega
deyja eða limlestast mörg börn
af völdum umferðarinnar ein-
göngu. Flest af þessum slysum
væri hægt að fyrirbyggja ef nægi
inu gegnum digrar gúmmíslöngur
og þega.r hún kemur í gegn um
sogið fellur liún á flutningaband,
sem getur svo flutt hana beint til
hvaða vinnslu sem við á.
Það er þó merkara að hægt á að
vera að losa sildveiðiskipin á
sjálfu veiðisvæðinu og yfir í síld-
arflutningaskip. Þurfa veiðiskipin
því ekki að yfirgefa veiðisvæðið á
meðan veiði og veður haldast.
Ætti þetta að geta orðið til þess
að beur megi fullnýta þær ,sildar-
verksmiðjur sem til eru í ladinu.
Þá er einn af höfuðkostum dæl-
unnar að síldin á að koma gegn-
um hana eins ósködduð og frek-
ast má verða. Engar skemmdir
verða frá löndunarkröbbum, göffl-
um eða öðrum áhöldum þar sem
þaff er aðeins rani dælunnar sem
fer ofan í stíurnar.
Tæki þetta var fyrst fundið upp
af H. J. Kimmerle og sýndi hana
það fyrst árið 1949. Hann vann:
síðan að endurbótum á því og
kringum 1953 keypti Harco MaP-
ine International einkaleyfi á fyrip
tækinu. Var enn unnið að ýmsum
endurbótum og eins verið að aff-
laga það sérstaklega að fisklöndun.
Árið 1960 var það talið orðið nógu
fullkomið og var þá hafist handa
um framleiðslu fyrir heimsmark-
aðinn. Er það nú í notkun víða í
Bandaríkjunum og eins f SuðUF-
Ameríku, en fyrsa tækið sem til
Evrópu kom var tækj Einars GuS
finnssonar í Bolungarvík. HefUF
það verið reynt undir stjórn Har-
aldar Ásgeirssonar verkfræðings
og Hjalta Einarssonar fiskiðnfræS
ings. Umboðismenn fyriir Harco
dælurnar er Transit Trading Comp
any og samkvæmt upplýsiugum
frá þeim eiga afköst' dælunnaF
við réttar aðstæður að ná 108
tonnum eða 1000 tunhum á klukku
stund. Er það mun meira en þekk-
ist með öðrum tækjum eða allt a5
150%. En auk þess losnar svo
skipshöfnin við allan mokstur og
þarf ekki um annað að hugsa en
hreinsunina. ,
GEYMSLU
HURDiR
eru fyrirliggjandi.
★
Landssmiðjan
Sími 20-680.
2 24. sept. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Framhald á síðu 13.