Alþýðublaðið - 24.09.1964, Page 11
Ætfiaðí að verða hnefa
leikari, en er nú heims
methafi í sleggjukasti
HA\N ætlaði að’ verða hnefa-
leikari — vjldi helzt líkjast Joe
Louis, sem var átrúnaðargoð hans
jjessi maður sem við erum að ræða
um heitir Harold (Hal) Vincent
Conolly, núverandi heimsmethafi
í slegffjukasti.
Conolly fæddist fyrir 33 árum
i borginn Somerwille, Massachus
etts. Hann var sterklega vaxinn,
en vegna þess að annar handleggur
hans var mun styttri, reyndist
vonlaust fyrir Conolly að gerast
hnefaleikari og hann gat ekki
heldur orðið lyftingarmaður.
* HANN VARÐ SLEGGJUKAST-
ARI.
Brátt fór hann að veita sleggju
kasti athygli og e.t.v. hefur það
verið vegna hins írska uppruna
Conollys, en eins og kunnugt er,
er sleggjukast þjóðariþrótt írlend
inga. Árið 1954 kastaði Conolly
Iengst 54,18 og komst með þann
árangur í raðir beztu sleggju-
kastara Bandaríkijanna. Tveim
árum síðar kastaði hann 10 m.
lengra og var þá kominn í fremstu
röð í heiminum.
* OLYMPÍSKUR MEISTARI
Árið 1956 varð hann bæði olym-
pískur meistari og sló eign sinni
á heimsmetið, sem Rússinn Kriv-
onosov hafði átt um skeið, heims-
met Conollys var 68.54 m.
Hinn vinsæli íþróttamaður áleít
nú að hann hefði náð sínu bezta
og bætti sig lítillega næstu þrjú
árin. En olympíuárið 1960 náði
Conolly takmarki allra sleggju-
kastara - hann sigraði 70 metrana
kastaði 70,33 m. og allir voru
öruggir um, að hann myndi hreppa
olympískt gull öðru sinni. En það
fór á annan veg, Rússinn Ruden-
kov sigraði og Conolly, sem var illa
upplagður kastaði „aðeins“ 63,59
m. sem nægði í 8. sæti.
★ 70,67 M. 1962.
Nú álitu flestir, að Conolly vær
búinn, en þaö reyndist öðru nær
Hann breytti stílnum veturinr
1960 til 1961, en Svíinn Asplunt
Framh. á bls. 13
Frá Golfklúbb
Suöurnesja
KEPPT var í undanrásum þeirra
8 liða er eftir voru í firmakeppni
klúbbsins um síðastliðna helgi.
Úrslit undanrásanna voru þessi:
Bifreiðaleigan Braut, (Bogi Þor-
steinsson) vann Kaupfélag Suður-
nesja (Hólmgeir Guðmundss.).
Verzlun Hauks Ingasonar (Þor-
geir Þorsteinsson) vann Málning-
arverktaka Keflavíkur (Pétur Guð-
mundsson.).
Verzlunin Nonni og Bubbi (Helgi
Sigvaldason) vann Olíufélagið h.f.
(Þorbjörn Kjærbo).
Járniðnaðar og pípulagningar
verkt. Keflavíkur (Sævar Sören-
son) vann Skóbúðin Keflavík h.f.
(Jón Þórsteinsson).
Bifreiðaleigan Braut vann Verzl,
Hauks Ingasonar og Verzl. Nonni
og Bubbi vann Járniðnaðar og
pípulagningarverkt. Keflavíkur.
Útslitaleikur keppninnar verður
því á milli Bifreiðaleigunnar
Braut, sem Bogi Þorsteinsson kepp
in fyrir og Verzl. Nonni og Bubbi
sem Helgi Sigvaldason keppir
fyrir.
Snjallir norskir
spjótkastarar
í landskeppni Norðmanna,
Svía og ítala, sem fram fór á
Olympíuleikvanginum í Róm
um helgina sigruðu Norðmenn
glæsilega í spjótkasti. Ras-
mussen kastaði lengst eða
76,80. Terje Pedersen varð
annar með 75,18 m. og Lievore,
Italíu, varð þriðji með sömu
kastlengd og Pedersen. Þriðji
Norðmaðurinn, Arne Os, sem
enn er junior, fékk að vera
með tutan keppni og kastaði
79,23.! Hann sigráði því bæði
núverandi og fyrrverandi heims
methafa í keppni, þ. e. Lievore
og Pedersen. Myndin er tekin
af hinum snjöllu norsku spjót-
kösturum á leikvanginum í
Róm, talið frá vinstri: Willy
Rasmussen, 84,18, Arne Os,
79,23 og heinnsttnethafinn
Terje Pedersen, 91,72.
IIÞRÓTTAFRÉTTIR I
11 STUTTU MÁLI I
★ Moskva, (NTB-AFP). Gennadi
Bliztnetzov stökk 4,90 m. á stöng
á móti í Kiev, það er rússneskt met
Gamla metið sem hann átti sjálf-
ur var 4,80 m.
* Helsingfors, (NTB-FNB). Það
var sett met hvað áhórfendafjölda
snertir á Olympíuleikvanginum
í landskeppni Finna og Svía í
frjálsum íþróttum um síðustu
helgi. Alls greiddu 92056 aðgangs-
eyri. Gamla metið var 91419 frá
1958. Þessi áhorfendafjöldi kom,
samanlagt báða dagana.
★ Tokyo, (NTB-Reuter). Japa»
verður eina landið, sem sendir
keppcndur í allar 20 íþróttagrein-
ar Olympíuleikanna. USA, Sovét,
Þýzkaland og Ítalía senda þátÞ*
takendur. í |18 greinar. Sameinað
lið A.- og V. Þýzkalands sendir
flesta keppendur, en síðan koma.
Sovét, USA, Japan og Ástralía.
Alls taka 98 þjóðir þátt í leikjun-
um, 14 fleiri en í Róm fyrir 4 ánim
Bílamerki ÍBK
ÝMIS knattspyrnufélög hafa
undanfarið látið gera eftirlíkingar
af félagsmerkjum til þess að festa
á rúður bifreiða sinna. Merki
þessi hafa síðan verið seld, við
vægu verði. Margir velunnarar
félaganna hafa keypt merki þessi
og unnið tvennt með því, annars
vegar styrkt félögin fjárhagslega
og „skreytt” bifreiðar sínar.
Nú hafa liinir nýbökuðu íslands
meistarar í knattspyrnu tekið upp
þerrnan nýja sið og gefur á að
líta mynd af merki þeirra með
greinarstúf þessum. Kjörorðið er:
Framh. á 13. siðu.
- Félagslíf -
INNANFÉLAGSMÓT Í.R.
Keppt verður í kastgreinum.
karla og kvenna í dag og á morg-
un kl. 5.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 24. sept. 1964 H
I