Alþýðublaðið - 06.10.1964, Side 10
• . •' •••• ••:•:;;•••-::i;-
KR sigraði Akureyri á
vafasamri aukaspyrnu
MIKIÐ annríki var í Bikarkeppni
KSÍ á sunnudaginn var. En þá
fóru fram þrír leikir í keppninni.
Tveir í Reykjavík og einn á Akra-
nesi. KR var aSili a8 báðum leikj-
unum hér, og hafði sigur í hvort-
tveggja. Annarsvegar meistara-
flokkurinn, gegn Akureyringum,
sem nú hafa tekið' sæti í I. deild
á ný, en sluppu með nauman sig-
ur á heimavelli, gegn B-liði Fram
á dögunum í þessari sömu keppni,
og hinsvegar KR-b, sem atti kappi
við hina nýbökuðu íslandsmeist-
ara frá Keflavík. Á Akranesi máttu ■
■'mÓTTAFRÉTm
i STUTTU MÁLI
★ London, 4. okt. (ntb-reut.-)
England sigraði írland í knatt-
^pyrnu á laugardag með 4-3 í Wind
ójor Park og Wales vann Skotland
Jheð 3-2 í Cardiff.
★ Osló, 4. október (NTB).
, Lyn varð norskur meistari í
Snattspyrnu 1964, hlaut all$,.26 st.
í 18 leikjum, en 9 lið eru í 1.
deild. — Fredrikstad er í öðru sæti
með 24 stig og Sarpsberg þriðja
með 23 stig. Raufoss og Brann
fellu nið'ur í 2. deild.
Arsþing Körfuknattleikssam-
bands íslands fer fram í KR-hús-
inu 1. nóvember og hefst kl. 10
f. h.
heimamenn prísa sig sæla að
merja sigur yfir fall-liði Þróttar
úr I. deild.
KR — ÍBA 1:0
ÞAÐ skorti mjög á að leikur þessi
einkenndist af þeim hæfilega skap-
hita og skerpu, sem þarf til þess
að gefa knattspyrnukappleik líf og
lit, og þá ekki síst útsláttarkeppni
sem þessari. Þetta var mest mið-
vallar-puð, þar sem boltinn lenti
oftar hjá mótherja en samherja.
Segja má, að aðeins tvívegis
væru minnisstæð atvik hvort-
tveggja síðast, sitt í hvorum hálf-
leik. Annarsvegar er Magnús Jón-
atansson v. útvörður Akureyringa
átti fast skot að marki á 44. mín.
en sem Heimir varði ágætlega, svo
og er Ólafur Lárusson nýliði í inn
herjastöðu KR, stóð fyrir opnu
marki og skaut yfir. Að undan-
skildu þessu og svo skoti, er Heim
ir varði á 12 mín. leiksins, skeði Iít
ið frásagnarvert.
SÍÐARI HÁLFLEIKUR 1:0
ÞRÁTT fyrir það að Akureyringar
hertu sig.mun betur í þessum hálf-
leik og ættu nokkur skot að marki,
tókst þeim þé aldrei að setja KR-
markið í neina verulega hættu.
Þegar á 4. mín. átti Skúli sæmi-
legt skot, en Heimir varði það auð-
veldlega. og nokkrum mín. síðar
kom loftbolti frá Magnúsi, sem
féll niður fyrir framan mark KR,
en skoppaði yfir. Á 43. mín, mun
aði mjóu að Ellert tækist aí
skalla og skora, en öðrum bak
verðinum tókst að vera fyrri ti
og skalla út fyrir endamörk. Lok;
rétt fyrir leikslokin fengu KR-ing
ar aukaspyrnu dæmda á vítateigs
línu, og var sá dómur mjög vafa
samur en bjargaði hins vegar sig
inum í land fyrir KR.
Ellert Schram tók síðan spyrri
una, firnavel og skoraði glæsilegs
Hinn annars ungi og lipri mark
vörður Akureyringa, Samúel Jó
harinsson, fékk ekki ráðið vi
skotið, sem hafnaði í netinu o
tryggði KR sigurinn. Hefði mark
vörðurinn reynt að slá yfir, va
kannske möguleiki að bjarga, e
að ætla að reyna að grípa slíka
bolta, svo fastur og beinskeyttu
sem hann var, reyndist ókleii
enda þaut hann rétt undir slá o„
inn, eins og fyrr segir.
í liði Akureyringa má auk Jóns
Stefánssonar, miðframvarðar, sem
var einn traustasti maður liðsins,
geta Valsteins Jónssonar v. út-
herja, sem er mjög eftirtektarverð
ur leikmaður, lipur og laginn. Einn
ig var Steingrímur Björnsson oft
snarpur og harðskeyttur.
Hörður Felixsson var traustasti
maður KR-varnarinnar auk Heim-
is, sem að vísu reyndi ekki mikið
á, en greip mjög vel inn í þegar
þess þurfti með.
Einar Hjartarson dæmdi leik-
inn, var hann sýnilega ekki í of-
þjálfun og fór gjarna eftir upp-
hrópunum leikmanna. — EB
Steingrímur IBA sækir að Heimi markverði KR.
Akranes sigraði
Þrótt með 1:0
Hörður Felixson, miðframvörður, skallar frá marki KR í leiknum gcgn ÍBA.
Leikur Akurnesinga í Bikar-
keppninni við fall-lið Þróttar, sem
fram fór á Akranesi á sunnudag-
inn, bar ekki sannri bikarkeppn-
is „stemmningu” mikinn vott. —
Þetta var svona á borð við sæmi-
legan æfingaleik, þar sem jafnt
er skipað í liðin. Þróttur átti eitt
hörkuskot í stöng í fyrri hálfleik,
frá Axel, og var það einna næst
sem Þróttarar komust að marki
þeirra Skagamanna í leiknum. —
Annars var fyrri hálfleikurinn
mjög jafn — þ. e. jafn sviplítill
á báða bóga. í síðari hálfleik
herða Skagamenn róðurinn, og er
um 1/3 hluti hálfleiksins var
liðinn, tókst þeim að skora þetta
eina mark sem gerði út um leik-
inn og gaf Skagamönnum mögu-
leika á að halda áfram keppninni.
Markið kom upp úr aukaspyrnu,
sem Þórður Jónsson framkvæmdi
snoturlega og sendi inn að mark-
inu, en 'hinn efnilegi nýliði,
Guðjón Guðmundsson, bætti því
við, sem dugði og skoraði. Var
þetta rétt lagleg afgreiðsla lijá
Guðjóni og viðstöðulaus. Fleiri
möguleika áttu Skagamenn að
vísu í hálfleiknum, en þeir fóru
í súginn. Hins vegar dugði þetta
sem komið var, þar sem Þrótti
tókst ekki að gjalda í sömu mynt.
Það qr næsta eftirtektarvert, að
hin gamalgrónu lið, KR og D.A.
sigra bæði úr aukaspyrnum, og að
eins með 1 marki bæði í síðari
hálíleik. Sigrar þeirra hanga á
þprriminni — og i þau sýndur
ekki þetri. eða sigurstranglegri
leikur eða knattmeðferð en vænt-
anlegir nýliðar í I. deild, eða fall-
lið þaðan. Hver er leiksins raun-
verulegi munur? — Er hann ann-
ars nokkur, knattspyrnulega séð,
þegar á allt er litið. Spyr sá, sem
ekki veit.
Frjálsíbróttaæf-
ingar Ármenninga
Frjálsíþróttadeild Ármanns er
nú að hefja vetrarstarfið. Æfingar
deildarinnar í vetur eru á þriðju-
dögum og föstudögum kl. 7-8 síðd.
Nýr þjálfari tekur nú við störf-
um hjó frjálsíþróttadeildinni, en
það er Þorkell Steinar Ellertsson,
sem undanfarin ár hefur stundað
íþróttanám og íþróttakennslu er-
lendis.
Frjálsiþróttamenn cru hvattir til
að fjölmenna til æfinganna, og
notfæra sér góða kennslu hjó fé-
laginu. Æfingarnar fara fram í í-
þróttahúsi Jóns Þorsteinssonar við
Lindargötu.
Félagslíf:
" Innanfélagsmót í kúlu-, kringlu-
og sleggjukasti í dag, miðvikudag,
fimmtudag og föstudag kl. 6.15.
, ;• í. R.
/10 6- október 1964 - ALÞÝÐU BLAÐIÐ