Alþýðublaðið - 25.11.1964, Qupperneq 13

Alþýðublaðið - 25.11.1964, Qupperneq 13
Ályktanir 30. Jbings Al&ýðuflokksins Framhald af 1. síðu flokksþingið áherzlu á, að kappkostað sé að taka vísindi og tækni í sem ríkustum mæli í þjónustu íslenzkra atvinnuvega. En jafnframt minnir flokksþingið á, að öllum tilraunum til þess að auka framleiðslu og bæta tekjuskiptingu er spillt þegar til lengdar lætur, nema því aðeins að jafnvægi sé í þjóðarbúskapnum, gjaldeyrisstaðan sé traust og verðlag haldist stöðugt. Forsenda þess, að unnt sé að auka framleiðslu og bæta tekjuskiptingu, er því, að komið sé í veg fyrir greiðsluhalla við útlönd og verðbólgu innanlands. Þegar Alþýðuflokkurinn gekk til núverandi stjórnarsamstarfs í árs- lok 1959, gerði hann það í tvennu skyni fyrst og fremst. Annars vegar j vildi hann koma efnahagskerfi landsins á traustari og heilbrigðari grund-' völl og skapa þannig skilyrði fyrir örari framleiðsluaukningu en ella og betri lífskjör en þjóðin hefði notið að öðrum kosti- Hins'vegar vildi hann stuðla að réttlátari tekjuskiptingu með stórfeldri aukningu almanna- trygginganna. Flokksþingið telur, að mikill árangur hafi náðst á báðum þessum sviðum. Atvinnuvegirnir eru nú reknir á traustari og heilbrigðari grundvelli en áður. Viðskipti öll eru frjálsari og hagkvæmari og vöruúrva! neytenda meira og betra en um áratuga skeið. Gjaldeyrisstaðan gagnvart öðrum þjóðum hefur batnað verulega. Samtímis hafa bætur almannatrygginga verið stórlega auknar, margvíslegur annar félagslegur stuðningur við al- mpnning verið aukinn, t .d. með fjárframlögum til húsbygginga og fram- lögum til menntunar og menningarmála. Flokksþingið leggur þó áherzlu á, að mörg brýn verkefni bíði fram, undan, og ályktar, að þátttaka Alþýðuflokksins í ríkisstjórn skuli beinast að því að ná þessum markmiðum: 1. Leita ber eftir víðtæku samkomulagi um kaupgjalds- og kjaramál og frið á vinnumarkaðinum, og sé sérstök áherzla lögð á að koma í veg fyrir áframhaldandi verðbólguþróun- 2. Gera verður alhliða ráðstafanir til þess að auka framleiðni í öllum at- vinnuvegum landsmanna í því skyni að stytta vinnutíma og auka launa- tekjur. 3. í því skyni verður m.a. að stórauka rannsóknar- og leiðbeiningarstarf- semi í þágu atvinnuveganna og bæta menntunarskilyrði. 4. Sérstaklega verður að efla útflutningsiðnað, bæði þann, sem vinnur úr sjávarafurðum og nýjan útflutningsiðnað, er hagnýti'vatnsorku og hveraorku landsins. 5. Halda verður áfram að auka og bæta almannatryggingar, sérstaklega með því að koma upp lífeyrissjóði fyrir alla landsmenn. 6. Halda verður áfram að vinna að því, að allir eigi þess kost að búa í eigin húsnæði, bæði með því að gera byggingar stórum hagfelldari og ódýrari en nú á sér stað, og með því að gera lánveitingar til bygginga sem hagkvæmastar. 7. Endurskoða verður skatta- og útsvarslöggjöf m.a. í því skyni að hækka persónufrádrátt, fjölga viðmiðunarþrepum við skattaálagningu og lengja þau og innheimta skatta og útsvör af laununum jafnóðum og þau eru greidd. Síðast en ekki sízt vill flokksþingið leggja áherzlu á, að komið verði á raunhæfu eftirliti með skattaframtölum og skattsvik fyrir- byggð. 8. Gera verður áætlun um þróun skólakerfisins, er sé við það miðuð, að allir eigi þess kost að afla sér fullkominnar menntunar, bæði í al- mennum greinum og tæknigreinum, aílt frá skyldunámi. til háskóla- náms- 9. Verðlagn'íngarkerfi íslenzks landbúnaðar ásamt útfluningsbótakerfinu verði endurskoðað og skipulegar ráðstafanir gerðar til að gera land- búnaðarframleiðsluna ódýrari og hagkvæmari íslenzkum neytendum og framleiðendum með nýrri tækni og bættri skipulagningu. 10. Gerð verði heildaráætlun um skipulega byggð landsins og uppbyggingu atvinnuvega í því skyni að tryggja stöðuga og örugga atvinnu um allt land. 30. þing Alþýðuflokksins felur miðstjórn og þingflokki Alþýðuflokksins að leggja höfuðáherzlu á að fá þessum málum framgengt. Á mettima Fiamhald af síðu 7, stjóri var Jóhannes Markússon, en Magnús Ágústsson var loft- siglingarfræðingur. Flogið var í 25 þús. feta hæð. Flugvélarnar fengu báðar meðvind, sem var að meðaltali 100 hnútar. Fengu vélarnar mikinn meðvind sem er nefndur „jet“-straumur, og myndast aðallega í mikilli hæð og þá stundum á takmörkuð um beltum. Happdrætti AlþýðubSaðsins ER FLUIT AÐ HVERFISGÖIU 4 kjallarinn GENGIÐ INN FRÁ HVERFISGÖTU - SÍMI 22710 Góðor markaðshorfur TVENN alþjóðleg félagssamtök, sem íslendingar eru aðilar að, héldu hina árlegu aðalfundi sína í Vín dagana 29. sept. til 2. októher. Félög þessi eru Alþpóðafélag fisk- mjölsframleiðenda og Samband útflutningslanda fiskmjöls, en þau voru bæði stofnuð á árimum 1959 og 1960, þegar verðhrunið varð á manna, og þó sérstaklega vegna hinnar skipulagslausu sölustefnu þeirra. Markmið þessara félaga er að auka samskipti með fiskmjöls- framleiðendum í hinum ýmsu framleiðslustörfum og stuðla á þann hátt að því, að þeir fái rétt látt verð fyrir afurðir sínar. fiskimjölsmörkuöunum vegna hins ört vaxandi fismjölsiönaðar Perú- Miðflokkar Framhald af síðu 3. taka úrslitin á Sikiley en þar jókst atkvæðatala kristilegra dem ókrata, jafnaðarmenn töpuðu um það bit 2% atkvæðanna á sama tíma og frjálslyndjr og jafnaðar menn Saragats unnu talsvert á. 'MmUMMMMWUMMMMUW Aðalfundur FUJ ✓ í Arnessýslu AÐALFUNDUB Félags ungra jafnaðarmanna í Ár- nessýslu verður haldinn fimmtudaginn, 26. nóv. n.k. klukkan 9 síðdegis í Iðnskól anum, Selfossi. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundar- störf. 2. Inntaka nýrra félaga. 3. Jón Ingi Sigurmunds- son, kennari flytur frá- sögu af Berlínarferð. 4. Guðmundur Jónsson segir frá flokksþingi. FUJ-fundur í Hafnarfirði NÆSTKOMANDI fimmtu dagskvöld verður haldinn fél agsfundur hjá FUJ. í Hafn- arfirði í Alþýðuhúsinu kl. 9 síðdegis. Umræðuefni: Bæj armál. Bæjarfulltrúum Al- þýðuflokksins boðið að mæta á fundinum. mmtmMmmHMHnHHiv Fundi þessa sóttu 108 fulltrúar og áheyrnarfulltrúar frá nær 20 framleiðslulöndum, en auk þeirra tóku 70 umboðsmenn og innflytj endur, sem verzla með fiskmjöl þátt í nokkrum fundum, sem þeir voru sérstaklega boðnir á. Af hálfu íslenzkra framleiðenda mættu þarna þeir Dr. Þórður Þor bjarnarson, Sveinn Benediktsson, framkvæmdastjóri, Jónas Jóns- son, framkvæmdastjóri, Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri og m'aður. í hópi umboðsmanna var Ingvar Vilhjálmsson, útgerðar- maður og Hörður Albertsson, lög- fræðingur. í Alþjóðafélaginu eru 17 með- limalönd, og eru meðal þeirra öll þau lönd, sem framleiða fiskmjöl að nokkru ráði, nema Japan. Rúss land og önnur kommúnistalönd standa líka utan þessara samtaka. í Sambandi útflutningslanda fisk- mjöls eru hins vegar eingöngu lönd, sem fyrst og fremst fram- leiða fiskmjöl til útflutnings. Sem stendur eru 6 lönd aðilar að því, þ. e. Chile, ísland, Noregur, Portu gal, Sgður-Afríka og Perú. Áætl að er, að þessi 6 lönd framleiði um 2,4 milljónir tonna af fisk- mjöli á þessu ári, en það verður um 2,4 millj. tonn af fiskmjöli á þessu ári, en það verður um 72% af heimsframleiðslunni. Langtum mestur hluti af framleiðslu út- ! flutningslandanna fer til útflutn- ! ings, eða 2,25 milljónir tonna, en 1 það er sem næst 95% af öllu fisk- mjöli, sem neyzlulöndin flytja inn. Á Vínarfundinum voru flest ! hagsmunamál fiskmjölsframleið- j enda til umræðu, jafnt þau, sem varða markaðsmál og verzlun með fiskmjöl, og hin, sem snerta hina tæknilegu og vísindalegu hlið framleiðslunnar. Eins og á undan förnum aðalfundum var samið yf- irlit yfir framleiðslu, sölu og neyzlu fiskmjöls í heiminum á ár inu 1964, og áætlanir gerðar um þessi efni fyrir árið 1965. Niður- stöður fupdanna vor’u þær, að markaðshorfur fyrir fiskmjöl væru góðiar og frainl^iðsla og neyzla fiskmjöls myndi í náinni framtíð halda áfram að vera i jafnvægi. Það var einnig rætt um markaðshorfur fyrir lýsi, og var markaðshorfur fyrir það væru Það hefir verið venja í þessum það skoðun fundarmanna, a® einnig góðar. tveimur samtökum, að haldnir væru tveir aukafundir á ári milli aðalfunda til þess að brúa bilið milli þeirra. Var ákveðið á Vínar- fundinum, að annar þessara auka funda skyldi haldinn í Reykjavík um mánaðamótin júní og júlí á sumri komanda. Var á sleða ■ varð fyrir bil Reykjavík, 24. nóv. ÓTJ. FIMM ára drengur, sem var að Ieika sér á skíðasleða, varð fyrir bíl í Kópavogi í gær. Hann heitir Björu Sveinbáörnsson, til heim- ilis að Kópavogsbraut 22. Öku- maður bifreiðarinnar segir að lianu hafi verið að mæfca annari bifreið, og ekki tekið eftir Birni fyrr en um seinan. Sem betur fer varð ekki mikið slys, en dreng urinn var fluttur í Slysavarðstof una til frekari öryggis. Lögreglan vill mjög brýna fyrir foreldrum að gæta þess að börn þeirra séu á öruggum stöðum með sleða sína. MHHMHHMMHtWHHMHH IFIateyrar- ji söfnunin SÖFNUN vegna sjóslys- J! anna á Flateyrarbátunum ! > tveimur, sem fórust í sið- j [ asta mánuði, stendur nú yf- !! ir. Tekið verður á móti fram- j J lögum á Biskupsskrifstof- J! unni og hjá dagblöðunum !; öllum. - ;! HtMHMH mtUUHUtHHHM Auglýsið í Alþýðublaðinu Auglýsingasíminn 14906 ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 25. nóv. 1964 13

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.