Alþýðublaðið - 25.11.1964, Blaðsíða 16
Sn/or yfir öllu á Siglufirði
Siglufjörður, 24. nóv. I sær átti aff opna skarðiff, og telja
HÉB hefur verið hlýtt og gott veð- menn að lítill snjór sé í því. Ýta,
ur í dag. Snjór liggur nú yfir öllu, sem lagffi af stað, varð þó að snúa
og Sigluf jarðarskarð er ófært. í I við, þar sem blindbylur var uppi.
rATODi
B
Miðvikudagur 25>. nóvsmber 1964
MUNU LEITA SÉRSTAKLEGA AÐ
SPRENGJUM OG PÚÐURKERLINGÚM
HI\N árlegi fullveldisfagnaður Stúdentafélags Reykjavikur
verður haldinn að Hótel Borg n.k. mánudagskvöld. Hefst fagnaður-
inn með borðhaldi kl. 7 og er vandað til veizlufanga. Meðal skemmti-
atriða er gluntasöngur þeirra Kristins Hallssonar og Guðmundar
Jónssonar, ræða Jónasar H. Haralz og nýr skemmtiþáttur Ómars
Ragnarssonar Að loknu borðhaldi og skemmtiatriðum verður stig-
inn dans til kl. 3 eftir miðnætti. Aðgöngumiðasala er hjá Gunnari
Ragnars í Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssen í Austurstræti og er
verði miða mjög í hóf stillt. Myndin er tekin af óperusögvurunum
við æfingu á Gluntasöngvunum. (Ljósm. K. J.)
BERKLAVEIKI
Á ÞÓRSHÖFN
Reykjavík, 24. nóv ÓTJ.
BERKLAVEIKI kom upp á
þremur heimilum á I>órshöfn í
Nórður - Þingeyjarsýslu fyrir
tskömmu, og varð að flytja átta
íbörn og unglinga á hæli til lækn
inga.
Strax og vart var við veikina
var byrjað að rekja slóð hennar
og var hún rakin til fullorðins
manns, sem dvalist hafði á öllum
heimilunum. Sigurður Sigurðsson
landlæknir úpplýsti að öll til-
fellin hefðu verið á byrjunarstigi
og því þyrftu börnin aðeins að
dveljast stuttan tíma á hælinu.
Hann sagði einnig að auðvitað
hefðí allt fólk verið berklaprófað
sem möguleiki var á að hefðu
fengið veikina.
Aðspurður, kvað hann slík til-
felli alltaf geta komið fyrir með-
an eitthvað fólk gengi með veikina
í sér.
Endurminningar
Önnu Borg
komnar út
ÍReykjavík, 24. nóv. ÁG.
►
; í DAG komu út í Kaup-
;mannahöfn Endurminningar
|Önnu Borg, sem Poul Reumert
;hefur safnað. Bókin kemur út
lá vegum Gyldendalsbókaútgáf
unnar. Bókin er komin hing-
að, og var send bóksölum í dag
Hún er prýdd mörgum mynd
iuni og er í vandaðri útgáfu
itwwwwvtwvmwwwwv
Hver byggir
í Surtsey?
Reykjavík, 24. nóv. ÓTJ.
EINHVER deifa hefur komið upp
milli Rannsóknarráðs ríkisins og
Vestmannaeyinga, en þessir að-
ilar eiga erfitt með að koma sér
saman um livor hafi meiri rétt
til þess að byggja fyrsta húsið í
Surtsey. Rannsóknarráðið skipaði
sérstaka Surtseyjarnefnd, og var
m.a. talað um að það félli í henn
ar hlut að reisa húsið, eða sjá um
það. Bæjarbúar í Vestmannaeyjum
vilja hins vegar hvergi láta sinn
hlut, og verður vandamálið vænt
anlega rætt á bæóarstjórnarfundi
þar á næstunni. í athugun er
hvort réttara sé a‘ð byggja hús,
eða flytja Þangað létt stálhús.
TOLLGÆZLAN telur ekki vera
ástæðu til þess að grípa til sér-
stakra aðgerða vegna „jólasmygls-
ins”. Alþýðublaðið hafði í dag
samband við Unnsteinn Beck, sem
sagðist ekki búast við að gripið
30 ökumenn
voru kærðir
TJM 30 ökumenn voru kærðir eftir
„herferff” sem lögreglan í Reykja-
vík gerði í nótt. Voru kærurnar af
ýmsum orsökum, mest þó fyrir of
hraðan akstur, og ólag á Ijósaút-
búnaffi. Ekki er vitað um slys á
mönnum utan hvað 5 ára drengur
varð fyrir bíl í Kópavogi. Hinsveg-
ar urðu skcmmdir á nokkrum bíl-
um sem keyrðu saman eða á Ijósa-
staura og gangstéttir, af völdum
hálkunnar. Salt og sandur var bor
inn á þær götur sem hættulegastar
þóttu.
wwwwwwwwwwwwwww
yrði til sérstakra aðgerða nema
eitthvað óvænt kæmi fyrir. Það
eina sem veruleg áherzla yrði
lögð á, væri að leita uppi sprengj-
ur og púðurkerlingar sem reynt
væri að smygla inn fyrir gamla-
árskvöld.
Unnsteinn kvað „jólaumferð-
ina“ hafa dreifst meira á síðustu
árum, þánnig að hún hæfist í okt-(
óher, og því hægara um vik að I
fylgjast með henni. Þetta kæmi j
sér vel, ekki síst vegna þess að
tollgæzlan hefði ekki í mörg ár
verið svo illa mönnuð. Að vísu
væri nokkurnvegin fullliðað, en
það væri alls ekki nóg. Á síðustu
árum hefðu komið ýmis ný verk-
efni, sem hefðu krafist fulls vinnu-
tíma nokkurra manna, og engir
hefðu komið í staðinn fyrir þá.
Aðspurður um hvar þeir settu
mörkin um það magn sem farþegar
mættu hafa með sér sagði Unn-
steinn að það væri nokkuð laust í
reipunum. Ekki væri nokkur leið
að framfylgja neinum föstum
ströngum reglum þar að lútandi.
Hefðu tollgæzlumenn búið sér
sjálfir til reglur um þetta, þar sem
aðallega er lagt upp úr því að ekki
sé alltof mikið „óhóf”.
Hækkun á Sogs-
virkjunarbréfum
Handfitin
ekki afhent
í febrúar
Kaupmannahöfn, 24. nóv.
(NTB - Ritzau)
Þingnefndin, sem á að
f jalla um Iagafrumvarpið um
afhendingu norrænu hand-
ritanna hefur enn ekki hald
ið fund, aff því er skýrt er
frá í Kaupmannahöfn í dag
Þaff er því almenn skoðun,
að ekki verði lokið við með-
ferff frumvarpsins fyrir fund
Norðurlandaráðs í Reykja-
vík í febrúar.
Uppliaflega stóðu vonir til
að þingið lyki meðferð máls
ins fyrir þann tíma svo að
frumvarpið yrði samþykkt og
handritin afhent í Reykjavík
í sambandi við fund Norffur
landaráðs.
Verði frumvarpiff sam-
þykkt tálaiar það ekki aff
handritin verði þegar afhent.
Ljósmynda verður og gera
við handritin fyrst og að því
að sagt er kunna mörg ár að
líffa áður en hin umtöluðu
liaudrit koma til íslands.
wwwwwwwwwwwwwww
SAMKVÆMT lögrum nr. 35 frá 23.
maí 1959 var stjórn Sogsvirkjunar
innar heimilað að bjóða til sölu 30
millj. kr. skuldabréfalán, og skyldi
fénu variff til virkjunarfram-
kvæmda við Efra Fall, en Seðla-
bankinn annaðist sölu og dreif-
ingu bréfanna, sem komu á mark-
aðinn í desember 1959.
Bréf þessi voru til skamms
tíma, frá 1-5 ára, og var síðasti
flokkurinn með gjalddaga 1. nóv-
ember 1964.
Það nýmæli var tekið upp f
sambandi við þessa skuldabréfaút-
gáfu, að bréfin voru verðtryggð, og
miðaðist tryggingin við hækkua
rafmagnsverðs. Þannig var greidd
verðlagsuppbót á nafnverð hvers
bréfs í hlutfalli við hækkun raf-
magnsverðs í Reykjavík frá þvf
sem var í okt.-nóv. 1959 við úb-
gáfu þeirra til gjalddaga.
Verðbætur, sem greiddar eru ft
E-flokk nefndra bréfa, námu
40.43% á nafnverð þeirra. Vat
gjalddaginn 1. nóvember sl.
BJÖRN BJARNASON GEKK
/ /
UR SOSIALISTAFLOKKNUM
BJORN BJARNASON
BJÖRN Bjarnason, fyrrverandi
formaður IS3u, hefur sagt sig úr
Sójíalistaflo!d:r.-jm. Gcrðist þetta
í Iok flokksþingsins, sem háff var
hér í Reykjavík, og lauk nú um
helgina. Á þinginu mun Björn
hafa haidið uppi mikilli gag*n-
rýni á stjórn flokksins.
Blaðið hafði samband viff Björd
í dag, og leitaði eftir staðfest*
ingu á þessari frétt. Kvað Bjöm
þetta vera rétt, en vildi ekkl
greina frá ástæðum.
Þaff er kunnugt, að flokksþing
Sósíalistaflokksins var hin mesta
halelújasamkoma, og munu fáir
utan Björns, hafa hreyft and
mælum gegn framgöngu flokka
stjórnarinnar.