Alþýðublaðið - 28.11.1964, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 28.11.1964, Qupperneq 2
 Rltstjórar; Gylfl Gröndal (áb.) og Bonedikt Gröndal. — Fréttastjórl: 'Ami Gunnarsson. — Ritstjómarfulltrúi: Eiöur Guðnason. — Símar: 14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — ABsetur: Alþýöuhúsiö vlð Hverfisfiötu, Reykjavík. — Prentsmiöja Alþýðublaðsins. — Áskrittargjald kr. 80.00. — í lausasölu kr. S.OO eintakið. — Útcefandi: Alþýðuflokkurinn. Ólónsferill Framsóknar DAÐUR Hannibals Valdimarssonar við Fram- sóknarmenn hefur vakið nokkra athygli, og velta menn fyrir sér, hvórt Hannibal hyggist segja skil- ið við gamla félaga í Alþýðubandalaginu og stofna til búskapar með Framsóknarmaddömunni. Ýmsir eru þó á þeirri skoðun, að hér sé aðeins um tíma- bundið framhjáhald að ræða, og sé Hannibal á þennan hátt að reyna að styrkja aðstöðu sína eftir flokksþing kommúnista. Alþýðublaðinu finnst ekki úr vegi að minna Hannibal á ummæli hans um Framsóknarflokk- inn, sem birtust í Alþýðublaðinu fyrir nokkrum árum. Þá sagði Hannibal: „Framsóknarflokkurinn hefur um langt skeið leikið þann leik að látast vera frjálslyndur og rót- tækur fyrir kosningar, en skipa sér undir íhalds- merki að kosningum loknum. Ýmsir óbreyttir fylg- ismenn Framsóknarflokksins hafa fyrirlitningu á þessu athæfi forkólfanna, en fá ekki við neitt ráð- ið. Tímanum er óhætt að gera sér grein fyrir því strax, að Framsóknarflokknum þýðir ekki að ætla að leika þennan sama leik einu sinni enn. Kjós- endur muna loforð hans og fyrirheit í kosninga- baráttunni haustið 1949 og láta áreiðanlega ekki blekkja sig einu sinni enn. Séu skrif Tímans sprott- in af því að áhrifamenn Framsóknarflokksins vilji stefnubreytingu, þá verða þeir að gera annað og meira en láta Tímann setja upp vinstra bros“. Undir lokin kveðst Hannibal ekki ræða frekar um „ólánsferil Framsóknarflokksins“ að sinni, en klykkir út með því að tala um.Framsóknarflokk- inn sem „forustu afturhaldsins“ hér á landi. Ferill Framsóknarflokksins er með slíkum- endemum í íslenzkum stjórnmálum, að slíks eru -engin dæmi. Hentistefna.og tækifærispólitík hefur einkennt afstöðu hans frá upphafi. í ríkisstjórn hefur hann skipað sér undir íhaldsmerki, eins og Hannibal réttilega segir, að utan stjórnar þótzt frjálslyndur umbótaflokkur, þótt fæstir hafi látið blekkjast af tvískinnungshætti Tímans. Það yrði sannarlega kóróna á ólánsferli Fram- sóknarflokksins, ef Hannibal Valdimarsson gengi nú til liðs við hann. Hætt er við, að margur mað- urinn brosi, ef Hannibal á eftir að skreiðast upp í til maddömunnar, eftir að hafa verið stjakað út úr flatsænginni hjá kommúnistum. Starfsstúlka óskast Starfsstúlku vantar nú þegar í Kópavogs- hæli, Upplýsingar í síma 41504 og 41505. Skrifstofa ríkisspítalanna. REYKJALUNDAR LEIKFÖNG ýV ERU löngu landsþekkt. ☆ GLEÐJIÐ BÖRNIN MEÐ GÓÐUM LEIKFÖNGUM. Avallt fyrirliggjandi fjölbreytt úrval af plast og tré-leikföngum. VINNUHEIMILIÐ AÐ REYKJALUNDI Aðalskrifstofa að Reykjalundi, súni um Brúarland. Skrifstofa í Reykjavík Bræðraborgarstíg 9, sími 22150. Frá aðalfundi Samlags skreiðaríramleiðenda Seldi 3833 tonn af skreið 1963 AÐALFUNDUR Samlags skreiðarframleiðenda fyrir árið 1963 var haldinn þann 20. nóv- ember síðastliðinn í Þjóðleikhús- kjallaranum. Framkvæmdastjórinn, Bragi Eiríksson flutti sk-ýrslu stjórnar- innar og sagði að það ár seldi Skreiðarsamlagið ea 3833 tonn af skreið. Mestur hluti framleiðslunnar var seldur til Nígeríu og tals- vert til ítalíu. Eins og að venju voru greidd- ar verðbætur fyrir skreiðina, og í þetta sinn ca 2.5 milljónir króna. í skýrslu stjórnarinnar var einnig skýrt nokkuð frá ástandi skreiðarmarkaðanna nú og sér- staklega í Nígeríu. Þar er nú all erfitt ástand og markaðurinn slæmur,; og hafa flestir kaupend ur óskað eftir frestun á afskipun um í bili. Markaðurinn í Nigeríu hefur breytzt til hins verra hin síðari ár. Nígeríumenn auka eigin fisk- veiðar og hafa í því sambandi byggt all mörg kælihús. Þetta bendir til þess, að Nígeríumenn munu minnka innflutning á að- fluttum fiskafurðum. Fram komu í skýrslu stjórnar- innar nokkrar áhyggjúr varðandi Framhald á 13. síðu. JOHANNES |Á BORG Reykjavík, 26. nóv. ÁG. UT er komin hjá Ægisútgáf unni bókin Jóhannes á Borg, minningar glímukappans, som Stefán Jóusson, fréttamaður hefur skráð. Bókin er í 36 köflum . Nefnist sá fyrsti „Ágæt byrjun“ og sá síöasti „Heim úr víking“. Hógvær end ir! Bókin er 304 blaðsíður að stærð, prýdd fijölda mynda af Jóhannési heima og erlendis. Gísli Ástþórsson sá um út- lit bókarinnar. í upphafi bók arinnar segir Jóliannes: „í þessa bók licfur höfundur skráð það citt, sem ég vildi segja og með þeim hætti, sem ég vildi það sagt hafa“. Bókin spannar Iangt tíma- bil í ævi Jóhannesar, allt frá því hann fæðist á Barði milli Akureyrar og Oddeyrar, 28, júlí 1883 og þar til hann opnar veitingasali Hótel Borgar ||930. Jóhannes glímir við björninn 2 28, nóv. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.