Alþýðublaðið - 08.12.1964, Blaðsíða 13
3 ástarsögur frá „HilcSi
„ íí
Réttur ástarinnar. Ný skáldsaga eftir Ib Henrik Héraðslækninn eftir Cavling
Skáldsaga eftir Denise Robins. Cavling. keraur nú út í 2. útgáfu.
Þetta er hrífandi lýsing á bar- Einkaritari læknisins. Nútíma Fyrsta útgáfa sem kom út fyr-
áttu ungrar stúlku um fyrstu saga. ir nokkrum árum seldist gjör-
ást mannsins. Cavling þarf ekki að kynna samlega upp á örstuttum tíma.
hann selzt alltaf upp.
Harðar deilur
71 gegn 17
Framh. af 11. síðu.
rnótherja, að lið nái að sýna mjög
góðan leik. Beztir hjá ÍR voru Þor-
Steinn Hallgrímsson, Birgir Jak-
obsson, Guðmundur Þorsteinsson
og Hólmsteinn Sigurðsson og skor
uðu þeir 6, 16., 12 og 16 stig, talið
í sömu röð.
Dómarar voru R. G. Hyslop frá
Skotlandi og Guðjón Magnússon,
sem kom í stað danska dómarans
Dan Christiansen, sem átti að
koma til landsins á föstudagskvöld
en vegna seinkunar á vél Lof tleiða
frá Kaupmannahöfn kom liann
ekki til landsins fyrr en hálftíma
eftir að leiknum lauk. — AB,
KR - Valur
Framh. af bls. 11.
og ekkert við því að segja. Staðan
í hálfleik var 10:3 og leiknum l'auk
með 17:8 sigri KR. *
Lið KR er mun sterkara en í
fyrra og getur orðið skeinuliætt á
íslandsmótinu. Lið ÍR-inga er enn
að mötast éftir hina miklu blóð-
töku í haust. Dómari var Björn
Kristjánsson.
Fleiri og fleiri hallast að því, að
þetta Reykjavíkurmót sé eigin-
lega ekkert annað en hálfgert grín-
mót, þessir stuttu leikir í meist-
araflokki eigi engin rétt á sér. Við
erum á þeirri skoðun, að breyta
þurfi fyrirkomulagi mótsins, leika
klukkutíma leiki í mfl. karla og 40
mín. leiki í kvennaflokki og hafa
annaðhvort hraðmót fyrir yngri
flokkana, eða þeir leiki sína leiki
í æfingatímum félaganna, en úr-
slitaleikir færu síðan fram í Há-
logalandshúsinu. Handknattleiks-
unnendur hafa ósköp takmarkað-
an áhuga á mótinu eins og það er
nú.
Auglýsingasíminn 14906
Farmhald af síðu 1.
stætt mál að ræða, aðeins væri
verið að endurnýja geyma, sem
ekki fullnægðu lengur kröfum
tímans, og taldir væru ónýtir.
Kommúnistar héldu því fram
'áð hér væri um stjórnarskrárbrot
að ræða, eh talsmaður Framsókn
armanna í efri deild. Ólafur Jó-
hannesson lagaprófessor við Há-
skóla íslands, treystist ekki til
>að taka undir þá fuliyrðingu, held
ur taldi, að okkur bæri ekki
skylda til að leyfa þessa mann-
virkjagerð hér á landi.
í efri deild kvaddi sér fyrstur
hljóðs Gils Guðmundsson (K) og
kvað hér vera mjög alvarlegt mál
á ferðinni, og sagði að hér byggi
annað og meira undir en viðhald
einnar olíustöðvar.
i neðri deild var það Ragnar Arn
alds (K) sem fyrstur tók til máls
og hélt háværa ræðu um það sem
hann kallaði „hervæðingu" Hval-
fjarðar og sagði að hér væri um
skýlaust brot á stjórnarskrá ís-
lands að ræða. Það sem nú hefði
verið gert væri móðgun við Al-
þingi og alvarlegt lögbrot og samn
ingurinn því ógildur. Minntist
Ragnar síðan á gamla tillögu, er
liann flutti um þetta mál i fyrra
og kvartaði undan því, ,,að sezt
hefði verið á hana“ og hún ekki
fengið fram að ganga. Ragnar
sagði ennfremur, að Þessar fram-
kvæmdir gætu hugsanlega verið
tengdar áformunum um kjarnorku
flota NATO, en geta má þess að
síðastliðinn sunnudag fullyrðir
Þjóðviljinn að svo sé. Mundi ein-
hver vafalaust kalla þetta skort á
samræmi.
Eysteinn Jónsson (F) gerði síð
an grein fyrir stefnu Framsóknar
flokksins, sem hann kvað fylgj-
andi þátttöku í vestrænu sam-
starfi og NATO, en ekki telja,
að okkur bæri að gera annað en
það sem við sjálfir teldum rétt
og skynsamlegt, Gæti svo farið
að í Hvalfirði skapaðist önnur
herstöð, sagði hann og ekki minni
vandamál, en í sambandi við Kefla
víkurflugvöll. Kvað Eysteinn
Framsóknarflokkinn vera andvíg
an öllum svona framkvæmdum í
Hvalfirði.
Emil Jónsson^ félagsmálaráð-
herra (A), varð fyrir svörum í
efri deild. Hann sagði, að hér
væri ekki nýtt mál á ferðinni
heldur hefði málið áður verið
rætt tvisvar sinnum á Alþingi.
Vitnaði hann síðan í fréttatilkynn
ingu ríkisstjórnarinnar, um að
heimiluð hefði verlð bygging fyrr
greindra mannvirkja f Hvalfirði
samkvæmt framkvæmdaáætlun
NATO. þeir geymar, sem þar væru
fyrir hendi væru orðnir 20 ára
gamlir, eða rúmlega það og voru
taldir ónýtir. Þeir geymar, sem
byggja ætti yrðu eingöngu not-
aðir á sama hátt og þeir, sem fjrrir
væru í Hvalfirði. Það er að segja
til þess að geyma. varabirgðir af
olíu. Það hefði verið haft á orði
að þetta væri óheimil samnings-
gerð, sagði Emil, en ekki hefði
verið leitað samþykkis Alþingis
þegar Oliufélagið h.f. leigði NATO
þá geyma sem nú eru í Hvalfirði
og væri þó hér um algjöra hlið-
stæðu að ræða.
Þá benti ráðherrann á að sam-
kvæmt varnarsamningnum værum
við skuldbundnir til að veita af-
stöðu hér undir nauðsynleg mann
virki. Til varna landsins. Emil
sagðist ekki leggja dóm á hvort
friðarhorfur hefðu batnað undan
farið, en vonandi væri það þó svo
og það væri þá fyrst og fremst
að þakka tilvist Atlanzhafsbanda
lagsins, sem hefði reynzt það mót
vægi, sem því var ætlað að vera.
Hér væri eingöngu um endurnýj
un gamalla mannvirkja að ræða
sagði Emil að lokum, og þær fram
kvæmdir sem gera ætti væru
byggðar á ákvæðum varnarsamn
ingsins frá 1951.
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra (S) minnti sömuleiðis á
að þetta mál hefði verið þraut-
rætt í þinginu áður, og hefðu öll
sjónarmið í þvi komið fram. Rík-
isstjórnin telur sig hafa óyggj-
andi heimildir til að gera þann
samning, sem gerður hefur ver
ið, sagði forsætisráðherra, Hann
benti á að vamarstöð væri þeg-
ar fyrir hendi í Hvalfirði, og að
ýmsar aðrar framkvæmdir hefðu
verið unnar hér á vegum varnar
liðsins án þess, að til kasta Al-
þingis kæmi og minnti þar á Sór-
anstöðina á Snæfellsnesi og radar
stöðvarnar á fjórum landshom-
um. Það væri skiljanlegt að endur
nýja þyrfti þessi mannvirki núna
þar eð þau væru orðin gömul.
Ef Alþingi vildi hætta við þessar
framkvæmdir sagði forsætisráð-
herra, væri sú leið greiðust að
samþykkja vantraust á ríkisstjórn
ina„ koma henni frá völdum og
segja síðan upp varnarsamning-
unum.
Fyrir svörum af hálfu Framsókn
armanna í efri deild varð Ólafur
Jóhannesson (F). Hann taldi að
ekki væri hægt að fullyrða að hér
væri um stjórnarskrárbrot að ræða
en benti hinsvegar á að málið
hefði átt að koma til kasta utan-
ríkismálanefndar.
Birgir Finnsson (A) forseti sam
einað Alþingis vitnaði til þeirra
ummæla Ragnars Arnalds, ^að sezt
hefðj verið á tillögu hans“, og
benti Birgir ., að hún hefði verið
á dagskrá 30. okt., 13. nóv. 20.
nóv. og 4. des. hefðu farið fram
umræður um hana. Síðan hefði
hún aftur verið á dagskrá 11. des.
19. febr. 8. apríl 24. apríl og 6.
maí. Auk þess hefði þetta mál
verið rætt tvisvar sinnum útan
dagskrár, og þá hefðu umræður
verið 78 vélritaðar síður, en þeg
ar það var rætt á dagskrá urðu
umræður 68 vélritaðar síður, eðav
samtals 146 vélritaðar siður og
væri því augljóst, að þingmenii
liefðu fengið rúman tíma til að
túlka afstöðu sína Nokkrum sinn
um hefði málið verið tekið út
af dagskrá að beiðni sjálfs flutn-
ingsmannsins, sagði Birgir að lok
um.
í efri deild töluðu auk þeirra
sem fyrr eru greindir, Alfreð
Gíslason (K) og Gils Guðmunds-
son kvaddi sér hljóðs á ný.
Emil Jónsson sjávarúvegsmála
ráðherra svaraði ræðum þeirra,
sem höfðu engin ný rök að geyma.
Lúðvík Jósefsson og Þórarinn
Þórarinsson töluðu í efri deild,
en síðastur kvaddi sér hljóðs for-
sætisráðherra, Bjarni Benedikts-
son. Benti hann meðal 'annars á
að það ætti ekki að hafa í för
með sérstaka hættu, þótt einhver
annar aðili, en Olíufélagið h.f.
geymdi oliu í Hvalfirði. Svaraði
hann ræðum þeirra þingmanna
deildarinnar, sem endurtekið
höfðu röksemdir, sem fram höfðu
komið áður
Mennlamálaráð-
herraræðirum
stjórnmálaviðhorfið
MENNTAMÁLARÁÐHEKRA,
Gylfi Þ. Gíslason flytur síðasta er.
indið, sem flutt verður á vegum
félagsmálaskóla FUJ fyrir áramét,
í kvöld klukkan 9 í Alþýðuhúsinu
við Hverfisgötu. Mim ráðherrann
flytja erindi um stjómmálavið-
horfið, og eru félagar hvattlr tit
að mæta vel og stundvíslega.
Hannes á horninu
Framhald af 2. síðu
inn úr umferðinni. En það hefur
ekki verið gert til þessa.
í SAMBANDI VH) þetta vil ég
minnast á Bústaðaveginn. Þar
aka menn alltaf hratt, en hvergi
verður hálkan eins mikil og þar
þegar hálka er á annað borð.
Vegurinn er ein svellbunga.
Þessi vegur er rhjög vanræktur.
Þar er sjaldan borinn á sandur
og því síður salt. Þetta er hættu
legasti vegurinn í Reykjavík á
vetrum."
Hannes á hominu
ALÞVÐUBLAÐIÐ - 8. des. 1964 13
Útför
Páll Zóphóníassonar
f. v. alþingismanns
verður gerð frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 9. desember kl. 10:30.
Athöfninni verður útvarpað. Þeir sem vilja minnast hins látna eru
beðnir að láta líknarstofnanir njóta þess.
Unnur, Vigdís, Zópónías, Páll Hannes og Hjalti.
Innilegt þakklæti til allra þeirra er sýndu okkur samúð og vin-
arhug við fráfall mannsins mins, sonar okkar, bróður og tengda-
sonar
Viktors Heiðdal Aðalbergssonar
Sigríður Jónsdóttir
Sigríður Friðriksdóttir Aðalbergur Sveinsson
Signý Einarsdóttir Jón F. Karlsson
systklni