Alþýðublaðið - 22.12.1964, Blaðsíða 6
HARDIR KOSTIR
Albert Zobala, 31 árs gömlum
vörubílstjóra í Los Angeies,
finnst ekkert jafnast á við heim-
ilið — og það er þess vegna,
sem hann vill ekki fara heim.
. Kona hans sótti um skilnað
frá honum, en bauðst þó til þess
að taka við honum aftur, ef hann
uppfyllti 15 skilyrði, sem hún
lagði fram skriflega í réttinum.
Hér eru þau:
j i
.i
1. Ekki dropa af alkóhóli.
. Láta mig hafa hvern eyri,
sem þú vinnur þér inn.
|3. Þú mátt ekki koma neins
1 staðar við eftir vinnutíma.
4. Þú mátt undir engum kring-
j umstæðum heimsækja systur
j þína.
5. Þú mátt aldrei gera neinum
öðrum en mér greiða.
Þú mátt aldrei kaupa öl.
7. Hvað sem ég bið þig um að
í gera, verðurðu að gera það
umsvifalaust.
8, Þú mátt aldrei stíga fæti
inn á bar, jafnvel þó að þér
sé boðið.
9. Þú mátt aldrei lána nokkr-
um manni peninga — ekki
einu sinni tíu cent.
10. Þú verður að láta mig 'sækja
launin þín.
11. Þú mátt aldrei svo mikið sem
ýja að lygi við mig.
12. Þú mátt aldrei gorta af
neinu við neinn.
13. Ef þú hefur eitthvað að gera,
máttu aldrei fara krók.
14. Ef þú þarft að láta klippa
þig, máttu aðeins vera kort-
ér hjá rakaranum.
15. Þú mátt aldrei koma isvo
mikið sem einni mínútu of
seint heim.
Og svo var enn ein viðbót:
Allt þetta og miklu meira
heimta ég af þér, ef ég á að
opna dyrnar fyrir þér. Ef þú ekki
fellst á þetta, geturðu hypjað
þig. — Og það gerði Albert.
WWWtWVWWMMMWWWWWWWMMWWWMW
Heimsmeistari
i sturtubaði
geisl-
á tán-
18 ára gamall Texasbúi, — að honum útfjólubláum
Gary Stanford, steig um dag- um til að hlýja honum
ínn út úr baðherberginu sínu um.
í háskólanum í Houston, vafði
handklæði um mjaðmirnar og
lýsti sig heimsmeistara í
sturtubaði. Hann hafði verið
hvorki meira ne minna en 36
klukkutíma undir sturtunni.
Húðin var öll krypluð — og
vatnsósa, ; en hann var hins
vegar tandurhreinn og óskaði
einskis annars en að þorna.
Hinn nýi heimsmeistari fór
undir sturtuna rétt fyrir mið-
nætti á ' sunnudegi. Hann
hafði lesið í blaði, að einhver
náungi í Kansas hefði staðið
30 tíma undir sturtunni, og
hann hafði svarið að slá það
met. Hann stóð við orð sín og
var nákvæmlega 36 tíma og sex
mínútur undir bununni.
Á meðan hann þraukaði
undir bununni eyddi hann tím-
anum í að syngja, tefla við vini
sína fyrir utan bunima og
hlusta á grammófónplötur. —
Þess á milli fékk hann sér
sjúss, en vinir hans beiridu að
WWWWWtWWWWWWWWWWWWWWWVTi
6 22. des. 1964 — ALÞÝ0UBLAÐIÐ
Á fund drottningar
Háskólastúdentar í Bret-
landi gera það venjulega einu
sinni á ári að klæða sig upp í
undarlega búninga, aðallega
til að safna fé til hvers kyns
góðgerðastarfsemi. — Fyrir
skemmstu var svokölluð „Bag
Week,” í háskólanúm i South-
ampton og þá fóru þrír stúd-
entar, fengu sér leigðar gamal-
dags hermannabúninga og
brynjur og hugðust ganga fyrir
drottningu í Buckinghamhöll
í Lundúnum. Lögreglunni
þótti þetta ókennilegir náung-
ar og spurði, hvað þeim væri
á höndum. Þegar þeir sögðust
vera komnir til að leysa her-
vörðinn af, báðu lögreglumenn
þá að hypja sig brott sem
skjótast.
WVWWWWMWVWVMWWWWWVWWWWHWWWWWWVWWmWWWW
Áætlanir um einsfæða
tilraun í Svíþjóð
SÆNSK nefnd stakk upp á því
fyrir skemmstu, að varið skyldi
rúmum 250 milljónum króna af
ríkisfé til þess að gera nákvæma
rannsókn og tilraunir með það,
hvað helzt má gera í baráttunni
gegn afbrotum unglinga, en slík
tilraun, ef af verður, mun ekki
eiga sér neina hliðstæðu í heim-
inum.
byggt upp til hins ýtrasta allar , öll vera styrkt, svo að þau gætu
sínar stofnanir til barna- og ungl , starfað með sem mestum árangri,
ingaverndar. Barnavernd, skólar, ! jafnframt því sem samstarf þess-
geðverndardeildir, vinnumiðlun, ara stofnana yrði eins náið og
lögregla og ákæruvald mundu þá unnt er.
BAK VIÐ TJÖLDIN
Hugmyndin er, að yalin verði
meðalstór þorg í Svíþjóð, 50-80
þús. manna borg, og bæjaryfirvöld
unum gefnar frjálsar hendur með
það hvernig þau verja umræddu
fé í því augnamiði að hindra að
börn og unglingar lendi á villi-
götum.
Ástæðan til þessara tillagna
nefndarinnar er sú staðreynd, að
afbrot og and-þjóðfélagsleg eða
asoeial afstaða barna og unglinga |
hefur færst.mjög í vöxt í Sví-
þjóð, eins og raunar mjög víða !
annars staðar, á seinni árum, — ^
þrátt fyrir allar tilraunir til að
koma í veg fyrir þá þróun.
Þekking á því, hvaða ráð séu
tiltækilegust til að berjast gegn
þessari óheillaþróun er mjög af
skornum skammti, og telur nefnd-
in að tilraun, er aukið geti þekk-
ingu manna á þessu sviði, yrði
mjög verðmæt.
Umrædd borg mundi þá geta
RUDOLF BING, hinn valdamikli forstjóri Metropolitan óper-
unnar í New York, er víst ekki almáttugur, þegar allt kemur til
alls, a.m.k. hefur hann ekkert getað ráðið við inflúenzufaraldur-
inn, sem þar geisar um þessar mundir, svo að þurft hefur að aflýsa
hverri sýningunni af annarri.
Hann hefur því brugðið á það ráð að setja upp auglýsingu í
sal söngvaranna, þar sem segir, að á meðan á faraldrinum standi
megi ekki ‘kyssa alvörukossa á sviðinu. Og hann bætir við kur-
eislegum tilmælum um, að á meðan á sama faraldri standi stilli
söngvararnir sig um að kyssast á bak við tjöldin líka.
_ Jf _
TIL þess að forðast blóðsúthellingar hafa þrír stóru flokk-
arnir í Nígeríu orðið sammála um að banna stuðningsmönnum sín-
um að hafa með sér á fundi byssur, boga og örvar, axir og flöskur.
— ★ —
VEITINGASTAÐUR einn í Hollywood auglýsir:
„Dæileg, meyr fílasteik. Minnsta pöntun: tuttugu porsjónir.
Við getum ekki staðið í því að skera einstakar porsjónir af fílum
okkar“.
“ ★ —
SEXTÁNDA konan hefur skilið við eiginmann sinn, Glynn
Wolfe, vegna þess að hann gaf fimmtándu konunni alltof mikinn
gaum. Það er óþarft að taka það fram, að sá marggifti Wolfe er
hótelstjóri í Las Vegas.