Alþýðublaðið - 22.12.1964, Qupperneq 15

Alþýðublaðið - 22.12.1964, Qupperneq 15
Pardew hætti að hugsa um þetta eins og hún hefur gert, þegar búið er að flytja hana til. — Ef hún fær nú þá flugu í höfuðið, að þú sért að reyna að halda henni í burtu frá þessum unga manni .... — Hvaða fjarstæða .... Þegar hún mundi hitta Nonu um helgina ásamt foreldrum liennar væri tækifæri til að ving ast við hana og tala um Len Bel- lamy, og sýna henni að það var ekki hans vegna sem hún vav flutt til. — Það var ævinlega líf og fjör á ' barnadeildinni og þau börnin, sem ekki voru mikið veik voru yfirleitt kát og fjörug. Þetta var einmitt það sem Nona hafði þurft með. Hún batt töluverðar vonir við kvöldverðarboðið í Woodleigh. Kevin sendi bíl sinn og einkenn- isklæddan ökumann til að sækja liana. Þegar hún kom til Wood- leigh voru Pardew hjónin þar fyrir en dótiir þeirra ekki. Hún ætlaði að vera hjá gamalli skóla- systur sinni um helgina þar sem hún átti frí. — Þetta hefur hún gert til aS forðast það að hitta mig, hugsaði Ruth, þegar hún sá hve vandræðaleg móðir Nonu var þegar hún var að skýra frá þessu. Þetta voru ekki bara dutl- ungar úr óþægri stelpu, þetta var hrein stríðsyfirlýsing. — Henni Nonu okkar finnst lífið á spítalanum vera heilt æv- intýri, sagði nú frúin. Það verð- ur líklega ekki svo lítið, sem hún þarf að segja henni vinkonu sinni, ef ég þekki þær rétt. — Hefur hún sagt yður, að næstu þrjá mánuði verður liún á barnadeildinni? spurði Ruth. — Já og hún er afskaplega hrifin af þeirri tilbreytingu. — Bölvuð þvæla, sagði Kevin. Hún er forreið yfir því að hafa flutt til. En hún jafnar sig áreið- anlega. Við erum þér mjög þakk- lát Ruth fyrir að hafa flutt liana til. — Ungar stúlkur eiga það til að láta sér verða alvarleg mistök á, sagði- frú Pardew. Ég hafði hér um bil gert eina slæma skyssu. Það var myndarlegur Iæknastúdent, sem átti ekki græn an eyri .... nú leit hún stríðnis- Iega á mann sinn, en hann svar- aði um hæl. Hver sem sá náungi liefur verið þá slapp hann sannar lega naumlega. Svo skellihló hann að sinni eigin fyndni, Molly Pardew var greinilega ekki bet- ur gefin en svo, að henni fannst þetta afskaplega fyndið líka. Ruth fannst frúin afskaplega brúðulég, það var svo sem auð- séð á öUu að hún hafi aldrei á ævi sinni difið hendi í kalt vatn eða snert á nokkru verki. Hár hennar var vandlega uppsett, augnabrúnirnar vel snyrtar og hláturinn hvellur. Hún hlaut að hafa verið afskaplega sæt ung stúlka á sín- um tíma, en tilfinningalif lienn- ar var sennilega ekki þroskaðra en almennt er hjá 16-17 ára stúlk um. Ruth hugsaði með sér, að í útliti væri Nona tvímælalaust mjög lík móður sinni, en skap- gerðin var greinilega allt önnur, því Nona var töluvert skapmikil. 24 Kevin var ekkert að skafa ut- an af hlutunum frekar en venju- lega. — Við viljum komast hjá því, ef þess er nokkur kostur, að Nona flækist á einhvern hátt í málefni þessa drengs, sem hún alls engin kynni ætti að hafa af. Ruth fannst hún mega til með að segja, að það væri nú varla hægt að komast hjá einhverri flækju-vegna slyssins, sem þegar hafði skeð, og það gerði hún. — Já, slysið var ljóta fjárans óheppnin, samsinnti Kevin. Rutli varð hugsað til þess, að þetta slys var síður en svo búinn hlutur fyrir Len Bellamy, og enn einu sinni varð hún svolítlð rugl- uð, þegar hún fann hverjar and- stæður bjuggu í Kevin. Henni hafði líka skilizt að í þessu boði ætti að ræða um það hvað hægt væri að gera fyrir drenginn en gestgjafinn og gestimir virtust síður vilja tala um þetta, og því var málið ekki rætt. Þau drukku sherryglas úti á svölunum og svo fór Kevin með hana til að sýna henni garðinn. Páskaliljurnar undir trjánum voru nú allar fölnaðar, en þær SÆNGUR REST-BEZT-koddar Endurnýjum gömlu sængurnar, eigum dún- og fiðurheld ver. Seljum æðardúns- og gæsadúnssængur — og kodda af ýmsum stærðum. DÚN- OG FIÐURHREINSÚN Vatnsstíg 3. Sími 18740. iwmtwwwwwtwww***** hlutu að hafa verið fallegar hugs- aði Ruth meðan þær voru í full- um blóma. Garðurinn var samt ennþá ljómandi fallegur og mörg haustblómin skörtuðu enn sínu fegursta. Ruth hefði getað verið þarna klukkustundum saman og dáðst að þessu. Henni varð skyndilega hugsað til Grieg kon- sertsins, og þá um leið varð lienni hugsað til John Corts og systur hans. í garðinum var til- búið klettabelti með allskyns gróðri. Það hlaut að hafa kostað dálaglegan skilding að láta út- búa það. Þarna var líka lítil brú og tilbúinn foss. Kevin sýndi henni garðinn, sem hann greini- lega var mjög stoltur af, en Ruth fannst eins og eitthvað vantaði þarna. Eftirlíkingar gátu aldrei fullkomlega laðað fram töfra náttúrunnar hve góðar sem þæ voru. Þegar þau komu aftur heim að húsinu kom frú Triggs og sagði að maturinn væri tilbúinn. Þau snæddu við kertaljós og fluttu sig svo inn í annað her- bergi og drukku þar kaffi er þau höfðu lokið við að borða. Rutli reyndi nokkrum sinnum að brjóta upp á málinu, sem henni fannst hún hafa komið til að ræða, en það fékk ekki hljóm- grunn. Þegar hún gerði það fór Molly Pardew ævinlega að tala um einhver ný föt, sem hún hafði verið að fá sér eða að segja frá getur ekki verið til taks hvenær sólarhringsins, sem er. Ef fólk býst við þvi, skaltu sannarlega sýna því, að þessu er ekki þann- ig varið. Ruth brosti líka, en það fylgdi ekki hugur því brosi. — Vinnutími minn er ekki frá níu til sex, sagði hún, og því miður liætti ég ekki að vinna þótt ég hafi fataskipti. Þetta er eiginlega eins og að vera skip- stjóri á skipi. Skipstjórinn þarf ekki að standa vaktir, en ef eitt- hvað fer aflaga, þá verður hann' að mæta í brúnni. SÆMGUR Hrein frisk heilbrigð húð Endurnýjum gömlu sængurnar. Seljum dún- og fiðurheld ver. NÝJA FIÐURHREINSUNIN Hverfisgötu 57A. Sími 16738. síðasta bridgekvöldínu, sem hún hafði tekið þátt f. Ruth fannst það alveg stórfurðulegt að karl- mennirnir skyldu geta hlustað á þessa bannsetta vitleysu, sem hún var sífellt að blaðra um. Þar kom að, að hún þoldi þetta ekki lengur og reis upp. — Þið verðið að afsaka, en nú má ég til með að fqra til baka. Þetta er fyrsta kvöldið sem nýja vaktakerfið er við lýði, og ég er því miður hrædd um að það sé ekkert sérlega vinsælt. Þess- verð ég helzt að vera til staðar og reyna að sjá um að allt gangi fyrir sig. Kevin virtist verða fyrir tals- verðum vonbrigðum. — Þú hlýt- ur að hafa einhverja aðstoðar- manneskju, sagði hann, sem get- ur litið eftir þessum venjulegu störfum fyrir þig. — Þetta eru nú ekki alveg venjuleg störf, sagði Ruth. Þetta er heilmiklar breytingar. Ég hef mínar eigin hugmyndir um það hvernig reka á sjúkrahús, og ég er hrædd um að ég verði að koma þeim í framkvæmd sjálf. Kevin reyndi að brosa, en sagöi svo. — Ég- býst við aö fyr- irrennari þinn hafi ekki verið ákaflega mikið ó ferð og flugi um spítalann. Þú verður að láta fólkinu skiljast að þú átt þína frídaga eins og aðrír og að þú NÝ SENDING a£ SVÖRTUM GLANSANDI REGNKÁPUM. Verð kr. 595,00. BERNHARÐ LAXDAL Kjörgarði. brunatryggingar á húsum í smíðum, véium og áhöidum, efnl og lagerum o.fi. ygging henlar ýöur Innbús Vatnstjóns Innbrots Glertrygglngar ITHYGGINGAFÉLAGIÐ HEIMIR LINDAR GATA » REYKJAVlK SlMI 2126 0 SlMNEFNI ; SURETY ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 22. des. 1964 15

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.