Alþýðublaðið - 22.12.1964, Side 16
| „Ævintýri á gönguför" |
! jólaleikrit Leikfélagsins i!
AMHUMtHHHtHMMHVIMW HHMHHHHHMHMMHMHTi
Reykjavík, 21. des. GO.
Frumsýning á jólaleikriti Leik-
félags Reykjavíkur Ævintýri á
gönguför, verður á 3. í jólum, en
Ragnhildur Steingrímsdóttir setur
leikinn á svið. Þetta er í fyrsta
tskipti sem hún vinnur fyrir L.R.
en hún hefur á undanförnum ár-
um ferðast um landið og stjórnað
um 201 leiksýningum. Hitt er svo
annað mál, að Ævintýri á göngu
för eftir Hostrup ei' enginn ný-
græðingur á sviðinu í Iðnó. Sýn-
ingin nú um jólin verður sú ní-
tunda, sem færð er upp í því húsi
Og líklega sú tólfta alls á landinu.
Fyrst var leikurinn sýndur í Iðnó
árið 1898 á vegum L.R. og síðast
var hann sýndur þar árið 1952 og
þá urðu sýningarnar alls 50. Þýð-
ingin sem nú verður notuð er
eftir Jónas frá Hrafnagili en Lár-
ius Sigurbjörnsson yfir fór hana
fyrir uppfærsluna 1952 og Tómas
Guðmundsson orti nokkra söng-
textana upp.
Brynjólfur Jóhannesson leikur
Kammeráð Krans birkidómara, en
Haraldur Björnsson verður í hlut
verki assesors Svale. Þessir tveir
heiðursmenn fóru með sömu hiut
verk á sýningu Leikfélagsins árið
193^3. Erlingur Gíslason verður í
hlutverki Skrifta Hans, en Inga
Þórðardóttir leikur frú Krans.
Vermundur er leikinn af Gísla
Halldórssyni, en Björg Davíðsdótt
ir og Guðrún Ásmundsdóttir fara
með hlutverk Láru og Jóhönnu.
Björg er nú í fyrsta skipti í meiri
háttar hlutverki, en liún er ný-
útskrifuð úr leikskóla Leikfélags
ins og hefur aðeins leikið smáhlut
verk áður. Arnar Jónsson og Pét
ur Einarsson fara með hlutverk
stúdentanna Ejbæk og Herulfs og
Pétur bóndi er leikinn af Karli
Sigurðssyni.
Steinþór Sigurðsson gerði leik
tjöldin og undirleik annast þau
Guðrún kristinsdóttir og Máni
Sigurjónsson. Þau munu skiptast
á og leika undir aðra hvora sýn-
ingu.
Næsta verkefni L.R. verður svo
barnaleikritið Almansor konungs-
son eftir Ólöfu Árnadóttur. Það
verður frumsýnt í Tjamarbæ í
byrjun janúar. Leikritið er byggt
á austurlenzku ævintýri og er
fyrsta leikrit Ólafar sem sýnt er
ó sviði. Hún hefur áður gert leik-
rit fyiár barnatíma útvarpsins,
Leikstjóri verður Helgi Skúlason.
Nú um jólin er leikskrá L.R.
sextug, Hún kom fyrst út um jól
in 1904 með leikritinu John Storm
eftir Hall Cane.
KYNDISTÖÐIN f KÖPA-
VOGI TEKIN TIL STARFA
Reykjavík, 21. des. - GO
Á LAUGARDAGINN vígði bæjar-
stjórinn í Kópavogi, Hjálmar Ól-
afsson, hina nýju kyndistöð, sem
(sett hefur verið upp til hitunar á
svokölluðu Sigvaldahvérfi. neðan
Digranesvegar í Kópavogi. Sagt
hefur verið frá fjarliitunarkerfi
þessu áður hér í blaðinu, en það
á að hita upp 70 hús í hverfinu og
verðui' jafnframt fyrsta sporið í
hitaveitumálum Kópavogskaup-
staðar.
Hverfi það, sem hér er um að
rseða teiknaði og skipulagði Sig-
valdi Thordarson arkitekt, en
kjarni þess eru 50 keðjuhús sem
| öll eru byggð eftir sömu teikning-
I unni. Á fundi þ. 19. febr. 1963
I samþykkti svo skipulagsnefnd
j Kópavogs, að láta gera athugun á
! þvi, hvort hagkvæmt væri að
leggja fjarhitun í þetta nýja liverfi
og var Fjarhitun sf. fengin til að
gera þá athugun. Að henni lok-
inni samþykkti Bæjarstjórn til-
lögu þess efnis að bæjarsjóður
byggði og ræki fjarhitunarkerfið
og ákvað jafnframt að lóðunum
yrði úthlutað með kvöð um þátt-
töku í hituninni.
Orkuverðið verður sem næst
80% af áætluðu kostnaðarverði
við sérkyndingu. Tengigjald var
ákveðið 30.000 krónur af hverju
keðjuhúsi eða 47.50 ó rúmmeter
og sama gjald fyrir hvern rúm-
metra í öðrum húsum hverfisins,
sem óskað væri eftir að tengdust
kerfinu. Þá hefur verið samþykkt
gjaldskrá fyrir kerfið, kr. 10.00
fyrir hvern rúmmeter af vatni en
auk þess reiknást fastagjald kr.
0.40 fyrir hvern rúmmeter af
vatni í húsi.
Það, að hægt er að hafa orku-
verðið lægra, en með venjulegri
kyndingu er végna þess að í stór-
um katli er liægt að brenna
þyngri og ódýrari olíu, auk þess
Framh. á 14. síðu.
Alþýðublaðið kost*
ar aðeins kr. 80.00 á
mánuði. Gerizt á«
skrifendur.
Stærsti og
komnasti báturinn
Reykjavík, 21. des. - GO
NÝR bátur kom tll landsins í
morffun, Reykjaborg eign Baldurs
Guðmundssonar útgerðarmanns.
Báturinn er sá stærsti og full-
komnasti að öllum búnaði, sem
enn liefur komið liingað til lands.
Hann er 333 brúttótonn búinn
tvehn 600 ha. Lister díselvélum,
eða 1200 ha. alls. Hann er með
tveim skrúfum, ísframleiðsluvéi,
vél til að vinna vatn úr sjó og
nýrri tegund af kraftblakkargálga,
sem hægt er að Ieggja og færa trl
eftir þörfuin.
Eimingarvélin er af Nyres gerð
og afkastar 2—214 tonni af vatni
á 'ólarhring. Hún mun einkum
notuð í sambandi við ísframleiðsl-
una. Sérstakur ísgeymsluklefi er
frammi í skipinu og heldur hann
20 stiga frosti á Celsius og útbún-
aður er til að blása ísnum aftur í
lestarnar.
í vélarrúminu, sem er líklega
það stærsta í íslenzkum fiskibáti,
eru sem fyrr segir tvær vélar, en
auk þess hefur vélstjórinn skrif-
stofu innaf, þar sem hann getur
fylgst með öllu í vélarrúmi gegn-
um glugga og einnig er þar renni-
bekkur og rafsuðuvél. Ljósavél er
engin í vélarrúmi, heldur eru
tveir 48 kw. rafalar tengdir aðal-
vélum, en ljósavél til að keyra í
landi er staðsett frammi undir
hvalbak.
Aftur í skipinu eru íbúðir fyrir
16 menn, rúmgóður matsalur og
eldhús. Engar mannaíbúðir eru
frammí. í brú eru öll fullkomnustu
fiskileitar og siglingatæki, en hún
er mjög rúmgóð.
Skipið var smíðað í Sandefjord
í Noregi og gekk 13 mílur í reynslu
ferð. Skipstjóri verður Haraldur
Ágústsson, sem áður var með Guð-
mund Þórðarson og frægur er a£
aflasæld. Með honum verður sama
áhöfnin, að undanteknum vélstjór-
unum.
1. vélstjóri er Hermann Helga-
son.
1 MILUÓN í AMT-
BÓKASAFNIÐ Á
AKUREYRI?
Reykjavík, 21. des. EG.
FJÁRVEITINGANEFND hefur
lagt til, að ein milljón króna verði
veitt til Amtbókasafnsins á Akur
eyri, ef bókasafn Davíðs Stefáns-
sonar verður keypt og varðveitt
þar.
Dr. Gylfi Þ. Gíslason, mennta-
málaráðherra, upplýsti á Alþingi
í dag, að þessi tillaga væri flutt
i samráði við ríkisstjórnina og
hann kvaðst ennfremur vilja upp-
lýsa, að ef svo færi, að bæjar-
stjórn Akureyrar tæki ákvörðun
um að kaupa hús skáldsins og
varðveita bókasafnið þar, þá teldi
ríkisstjórnin sig hafa heimild tii
að láta þetta fé ganga til styrktar
þeim kaupum.
MOSKVU, 21. desember (NTB-
AFP) — Sovézkir Iiðsforing)jar
skýrðu frá þvi í dag, að landvarna
ráðherrann^ Rodion Malinovsky
dveldist við Svartahaf í orlofi og
væri væntanlegur til í Moskvu eft
ir nokkra dagra.
Vélbáturinn Reykjaborg I Reykjavíkurhöfn.
i