Alþýðublaðið - 31.12.1964, Blaðsíða 4
Áramótin bjóða eldi Keím
Gerið því allt,
sem I yðar vaidi
stendur til
aS verjast þeim
vágesti
Látið pappaumbúðir ekki safn
ast saman. Komið þeim út,
annað hvort með því að
brenna þeim í miðstöðvarkatl-
inum, eða hendið þeim í ösku-
tunnuna.
Leyfið ekki reykingar nálægt
jólatrénu, pappírsskrauti, eða
pappírsumbúðum. Hafið nóg
af stórum og góðum ösku-
bökkum alls staðar í íbúð-
inni og notið þá óspart. —
Geymið eldspýtur þar sem
litlar hendur ná ekki til
þeirra. Gerið áætlun um hvað
pér eigið að gera, ef eldur
brýzt út. Hafið handslökkvi-
tæki við höndina — og í lagi
— vatnsfötur eða jafnvel garð
slöngu tengda við vatnskrana
nálægt jólatrénu.
En munið, að ef þér
getið ekki samstundis
slökkt sjálfur, þá kall-
ið umsvifalaust í
slökkviliðið í síma:
11 1 00.
Brennið ekki áramótagleðina
Húseigendafélag Reykjavíkur.
Ófærðin
Frh. af 1. síðu.
ryðja vegi á morgun, gamlárs-
dag, ef veður leyfir. Talsmaður
vegaeftirlitsins tók það fram, að
meðan veður væri eins og þaö
liefur verið í dag, væri engum bíl
fært inn fyrir Elliðaár —.hvað þá
lengra.
Þá hafði blaðið samband við
lögregluna í Reykjavík. Sam-
kvæmt upplýsingum hennar hefur
verið mjög mikið annríki vegna
■umferðartruflana. Tvö minnihátt-
ar slys urðu, en talsvert var um
toifreiðaárekstra. Til dæmis höfðu
.orðið 12 árekstrar frá hádegi og
til klukkan 6. Þá var og mikið að
gera við að svara fyrirspurnum
í síma, og hjálpa bifreiðum, sem
höfðu stöðvast í fyrrinótt.
Litlar truflanir urðu á rafmagni
en svo mikið álag var á síma-
kerfinu, að símanotendur urðu
lengi að bíða til að fá sóninn.
Ekkert varð að bátum í höfninni.
Fréttamaður blaðsins hafði
samband við nokkra staði vestan-
lands og norðan og spurði frétta
af veðri.
Á Flateyri var leiðindaveður,
hvasst og nokkur snjókoma. Eng-
ir skaðar höfðu orðið af veðrinu.
Tveir Akureyrartogarar lágu í
höfninni, höfðu leitað þar vars
undan veðri.
Á Patreksfirði var veðrið
slæmt á svipaðan hátt og á Flat-
eyri. Ekkert hafði komið þar fyr-
ir, en vegir allir í kring orðnir
ófærir.
í Ólafsvík var veðrið vont, en
var þó verra í gær og fyrradag.
Þá var rok og stórhríð.
Stórhríð var í StykkÍBhólmi,
norðan 12 vindstig, en lítil úr-
koma. Særok var þar mikið og
snjórinn orðinn blautur. Skóf því
ekki.
Á Skagaströnd var mikil snjó-
koma í nott, en hægara í dag.
Sérstaklega var hvasst milli kl.
7 og 11 í gærkvöldi og þá mun
jám hafa tekið af nokkrum hús-
um.
Mjög hvasst var á Siglufirði í
gær, en betra veður í dag. Raf-
áskriffasíminn er 14900
magnslaust varð kl. 9 í gærkvöldi
og kom straumurinn ekki aftur
fyrr en kl. 4 í dag. Á meðan var
notast við rafmagn frá Síldar-
verksmiðjum ríkisins. Siglufjörð-
ur fær rafmagn frá Skeiðfoss-
virkjun, en bilunin varð innan-
bæjar, vegna ísingar á háspennu-
kapli.
Lyfjabúðir
Lyfjabúðin Iðunn hefur nætur-
vakt til 2. janúar.
Nýársdagur Ingólfsapótek opið
frá kl. 9-22.
Vesturbæjarapótek næturvakt
frá 2. til 9. janúar.
Sunnudag 3. janúar: Apótek
Austurbæjar frá 9—22.
ÓfærB á
Akureyri
Akureyri, 30. des. — GS, GO,
HÉR HEFUR verið iðulaus stór-
hríð í allan dag. Það byrjaði að
snjóa í gærkvöldi í logni og í
morgun var komin moldöskubylur
með 7—8 vindstigum af norðri og
8—9 stiga frosti. Ófærð er mikil
á götum bæjarins og vegir út úr
bænum ófærir. Hingað kom þó
nokkur mjóik í dag og ekki er út-
lit fyrir mjólkurskort yfir hátíð-
ina.
Mikið hefur verið um bílafestur
á götunum, enda veðrið eins og
gerist verst hér norðanlands. Upp
úr klukkan 5 í dag fór svo að draga
úr veðurhæðinni, en snjókoman er
enn mikil. Ekkert hefur komið fyr-
ir í veðrinu.
Hannes á horninu
Framhald af 2. síðu
lendingar, á þessum 5 aldarfjórð
ungum.
ÞESSUM DEGI megum við
ekki glata. Hann verður að
vísu ekki dagur, þar sem dansað
verður á torgum. Ekki dagur leikja
og brauðs. En hann á að vera
helgur dagur, og við eigum að
kenna börnum okkar hvað hefur
helgað liann. Að það eru þúsund
irnar, sem neituðu að trúa því
að ekki væri hægt að lifa á ís-
landi og aldrei skiluðu auðu.“
K.F.U.M.
UM ÁRAMÓTIN:
Gamlárskvöld:
Kl. 11.30 e. h. Áramótasam-
koma í húsi-félagsins við Amt-
mannsstíg.
Á Nýársdag:
Kl. 8,30 e. h. Almenn sam-
koma í húsi félagsins við Amt-
mannsstíg. Sverrir Sverrisson,
skólastióri, talar. Einsöngur.
Sunnudagur 3. janúar:
Kl. 10.30 f. h. Sunnudagaskól-
inn við Amtmannsstí'g, Drengja-
deildin Langagerði. Samkoma f
samkomusalnum Auðbrekku 50,
Kópavogi.
Kl. 1,30 e. h. Drengjadeildirn-
ar Amtmannsstíg, Holtavegi,
Kirkjuteigi.
Kl. 8,30 e. h. Samkoma í húsi
félagsins við Amtmannsstig. Sira
Jóhann Hannesson, prófessor,
talar. Fórnarsamkoma, Allir vel-
komnir.
Árshátíð K.F.U.M. og K.
verður haldin þriðjudaginn 5.
janúaf kl. 8 í húsi félaganna. Að-
göngumiðar seldir hjá húsvörð-
um og sækist í síðasta lagi á
sunnudag.
Flugeldar, Rakettur, Blys - LONDON, tóbaksverzlun
4 31. des. 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ