BFÖ-blaðið - 01.01.1982, Blaðsíða 2

BFÖ-blaðið - 01.01.1982, Blaðsíða 2
Félagsstarfíð Góðir félagar, Starfið Nú er sumarið senn að baki og mál að setjast niður og horfa fram til félagsstarfsins í vetur. I sumar hafa liðir verið fastir eins og venjulega. Öku- leiknin var haldin með pompi og prakt á 24 stöðum um landið með rúmlega 300 þátttakendum, og vélhjóla- keppnunum er einnig lokið, en þar er um færri keppendur og keppnisstaði að ræða. Úrslitakeppnir hafa farið fram og búið að skera úr um 3 fulltrúa Islands í norræna ökuleikni, sem haldin verður á Spáni i nóvemberlok. Einnig er búið að finna 2 hæfustu vélhjólakeppendurna, sem þátt taka í alþjóðlegri vél- hjólakeppni í Egyptalandi n.k. vor. Það má með sanni segja, að ofangreindar keppnir taki allan tíma framkvæmdastjórans og stjórnarmanna frá vori til hausts. Þar af leiðandi bíða ýmis mál hausts og vetrar, sem snerta meira samskipti við hinn almenna fé- laga. Hvers vegna félagi í BFÖ? Góður kunningi minn spurði mig um daginn, þegar ég bauð honum að ganga í BFÖ. „Hvað hef ég nú upp úr því?“ Góð spurning. Það var í mínum huga ekki erfitt að svara henni. Þú færð tækifæri til að taka þátt í félagsstarfi, sem vinnur að þjóðþirfamálum, þ.e. bindindissemi og bættri umferðarmenningu. Þú átt möguleika á að njóta afsláttar af ýmissi þjónustu og vöru fyrir bileigendur, auk ým- issrar félagsþjónustu annarrar. Og ekki síst styrkir þú, með þínu félagsgjaldi, aðra til starfsins. 2

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.