BFÖ-blaðið - 01.01.1982, Page 10
menn félagsins stóðu að stofnun tryggingarfélagsins
Ábyrgðar hf. Jafnljúft er og skylt að þakka þann
stuðning sem Ábyrgð hf. hefur veitt til starfsemi fé-
lagsins og þann skilning sem forráðamenn Ábyrgðar
hafa jafnan sýnt, er málefni BFO hefur borið á góma.
Þó vitnað sé til framfærsluskyldunnar, er rétta stefnan
sú að við styrkjum hverjir annan svo sem frekast er
unnt, þannig að báðir aðilar eflist. Ábyrgð hf. hefur frá
upphafi Ijáð rúm fyrir skrifstofu og fundaraðstöðu sem
félaginu er ómetanleg. Hér skulu einnig þökkuð
samskipti við starfsfólk Ábyrgðar sem hafa verið
óvenju góð, og létt að skilja velgengni félags sem hef-
ur slíku starfsfólki á að skipa.
BFÖ-BLAÐIÐ
Ritnefnd BFÖ hefur á starfstímabilinu unnið sérstak-
lega gott starf. Stjórnin ákvað í upphafi hve mörg tölu-
blöð kæmu út, og stóð ritnefnd fyllilega við þær
óskir. Blaðið hefur verið fjölbreytt og blrt fréttir og
fræðslu úr stafi BFÖ og utan úr heimi. Þá hefur
þrautseigja ritnefndar gert mögulegan tekjustofn
auglýsinga eins og fyrr var vikið að. Nýlega var ákveð-
ið að breyta um stærð blaðsins og kom síðasta
tölublað út svo breytt. Það er mat glöggra manna að
breytingin sé til bóta. Ekki þarf að fjölyrða um gildi
þess að geta sent málgagn til félaganna, ekki síst
þeirra er búsettir eru fjarri skrifstofu félagsins. Blaðið
kom út fjórum sinnum hvort ár.
UNGMENNADEILD BFÖ
Eins og þingfulltrúum er kunnugt, var á síðasta
þingi BFÖ stofnuð ungmennadeild, er sérstaklega
skyldi vinna að málefnum þeirra félaga sem tilheyrðu
aldrinum 12-25 ára. Á grundvelli lagabreytinga var á
þinginu talin stjórn deildarinnar undir stjórn félaga
okkar Jóhanns Halldórssonar.
Starfsemi deildarinnar fór hægt af stað, en starfs-
grundvöllur kannaður. Ljóst er að málefni ungmenna-
deildarinnar þarf að ræða á þessu þingi, og mun
formaður hennar gera síðar á þinginu grein fyrir starf-
inu. Ekki er nokkur vafi á að starfsemi meðal yngri
félaga BFÖ hefur mikla þýðingu fyrir framtíð félagsins.
Starfsemi vélhjólaklúbbanna í Hafnarfirði og í Breið-
holti hafa sýnt að máttur ungra manna er síður en svo
þverrandi, og hefur viðgangur klúbbanna aukist.
Framkvæmdastjóri félagsins, Einar Guðmundsson á
hér drjúgan þátt og hér með þakkaður sérstaklega. Ef
æskan réttir þér örvandi hönd, þá ert þú á framtíðar-
vegi. Þeirra orða skulum við minnast og vaka yfir starf-
semi ungmennadeildarinnar sem fjöreggi framtíðar
BFÖ.
BIFREIÐAKAUP
Nátengdur framkvæmd ökuleikninnar er sá liður
skýrslunnar sem hér fer á eftir.
Þegar umfang og vfðfeðmi ökuleikninnar var orðið
svo mikið sem raun bar vitni, var Ijóst að nauðsynlegt
var að hafa á hendi bifreið sem vel væri ferðafær og
hefði rúm fyrir rúmfrek gögn keppnanna. Stjórn fé-
lagsins tók því ákvörðun sem farsæl hefur orðið, en
djarfhuga þótti í fyrstu. Fest voru kaup á Volkswagen
sendibifreið fyrir kr. 13.000.- og reyndist hún með
10
ýmsum hætti, svo sjálfsagt þótti að endurnýja og voru
því gerð skipti og keypt sendibifreið af Toyota-gerð
fyrir kr. 58.000.-. Kaupverð fyrri bílsins voru fjármögn-
uð með láni og auglýsingum utan á bifreiðina, en
velviljuð fyrirtæki greiddu vel fyrir þá kynningu. Seinni
bifreiðin var fjármögnuð með sama hætti, ásamt því
að tekjur af BFÖ-blaðinu hjálpuðu til. Það kann að
virðast ótrúlegt að félagið hafi eignast á tveimur árum
bifreið, nú að verðmæti um 80.000 krónur, en það
ótrúlega hefur skeð og vil ég þakka það bjartsýni
framkvæmdastjóra og meðstjórnarmönnum. Enn sem
fyrr lagði Ábyrgð hf. lóð á vogarskálina, lóð sem kom
á réttum tíma og kom sér vel.
Ef rétt er á haldið og áframhald verður á möguleik-
um til auglýsinga á bílnum, er ekki fráleitt að enn frek-
ari endurnýjun geti átt sér stað á komandi árum. Bif-
reiðin er lifandi auglýsing fyrir þróttmikið starf félagsins,
hvar sem hún fer.
NORRÆN SAMSKIPTI
f nóvember 1980 komu hingað til lands þeir Thorleif
Karlsen, formaður NUAT og Valeri Surell framkvæmda-
stjóri MHF og NUAT. Koma þeirra tengdist fundi
Norræna Bindindisráðsins sem haldið var hér í
Reykjavík. Stjórn BFÖ nýtti tækifærið og fékk þá til
fundar og fræddist um starfsemina ytra, ásamt þvf að
lýsa löngun okkar og þörf á aukinni þátttöku í nor-
rænu samstarfi. Thorleif Karlsen er jafnframt formaður
IAMA, alþjóðasamtaka bindindisfélga ökumanna,
en þar erum við einnig aðilar.
Með stofnun ungmennadeildarinnar og vélhjóla-
klúbbanna varð Ijóst að þörf var á fræðslu um meðferð
vélhjóla. Stjórn NUAT Ungdom varð því við beini okk-
ar og sendi hingað á síðasta vetri tvo fulltrúa til nám-
skeiðahalds í þeim fræðum. Hingað komu John Granly,
fyrrverandi formaður NUAT Ungdom, sem fulltrúi MA-
ungdom og Arne Anderson frá MHF-ungdom. Með
stuðningi frá Norræna menningarmálasjóðnum var
ferðin kostuð, og fóru þeir félagar í nokkra unglinga-
skóla, bæði sunnan og norðan lands og fræddu nem-
endur við miklar vinsældir. Framkvæmd fræðslunnar
var í samvinnu við Æskulýðsráð ríkisins, Umferðarráð
og Slysavarnarfélag íslands, sem lánaði erindreka
sinn Brynjar Valdimarsson, til að ferðast og starfa
með gestunum. Heimsókn þeirra félaga var mikil lyfti-
stöng fyrir okkur og sýnir hvað hægt er með samstilltu
átaki, og hvað norræn samvinna er mikilvæg.
ÖKULEIKNI - GÓÐAKSTRAR
Drjúgur þáttur í starfsemi BFÖ hefur verið fram-
kvæmd Ökuleikninnar. Við höfum haft trausta sam-
starfsaðila og skipulagning og framkvæmd keppnanna
hefur gengið vel í umsjá ökuleiknisnefndar og fram-
kvæmdastjóra.
1980 voru haldnar 22 ökuleikniskeppnir og 11 vél-
hjólakeppnir. 1981 voru keppnirnar i ökuleikni 23 og
vélahjólakeppnir 10. Framkvæmd keppninnar gekk á
flestum stöðum vel og þátttakendur skiftu hundruðum.
Auglýsingagildi keppnanna er mikið fyrir BFÖ og má
segja að með þeim sé viðtækust kynning á félaginu
og baráttumálum þess. Ljóst er að mikill akur er óunn-