BFÖ-blaðið - 01.07.1986, Blaðsíða 14
Fíkniefnaneysla sem og fleiri lífsvenjur
nútímans er alvarlegasta ógnun við heilbrigði
á okkar tímum. Lífsvenjur eru ekki lengur
alfarið bundnar við náttúrufar og menningu
(2). Upplýsingastreymi er orðið svo ört að eng-
in landamæri eru til í því tilliti. Fjölmiðlar
geta haft þar veruleg áhrif á bæði til góðs og
ills. Þeir þurfa því að þekkja ábyrgð sína og
áhrif.
Heilbrigði er dagskipan yfirvalda víðast í
heiminum, ekki síst fyrir tilstilli WHO (Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar) sem vill
stefna að heilbrigði fyrir alla árið 2000. An
þátttöiíu Qölmiðla er vart að vænta mikils
árangurs. En þeir bera ekki ábyrgðina einir.
Þeir sem vinna að bættu heilbrigði þurfa að
leggja fjölmiðlunum til upplýsingar og veita
þeim alla hugsanlega aðstoð. Þetta á bæði við
um stofnanir og samtök sem að þessu vinna.
Heimildir:
1. Tidskrift om edruskapssp&rsmal - nr. 1/85. Utg. af:
Statens edruskapsdirektorat og Avholdsfolkets
landsnemd í Noregi.
2. World Health - The magazine of the World Health
Organization. — March 1986. Gefn, Sviss.
Heilsuskokk
All sérstök auglýsing birtist í Morgun-
blaðinu 17. júní síðast liðin frá Abyrgð. Þar
er almenningur hvattur til að taka þátt í
heilsuskokki Ábyrgðar og ÍR, sem standa
mun í sumar á skokkbrautunum við Laugar-
dalslaugina.
Æfingar eru stundaðar þrisvar í viku, á
mánudögum, miðvikudögum og fimmtudög-
um. Þá geta heilsuskokkarar hitt Guðmund
Þórarinsson, íþróttaþjálfara, á tímabilinu
16.30 til 18.30, sem gefur holl ráð við æfing-
arnar.
í sumar munu birtast í Morgunblaðinu
vikulegir þættir um heilsuskokkið.
Þátttaka hefur verið mjög góð. Á annað
hundrað manns hafa skráð sig í skokkið.
Hafið hugfast að aldrei er of seint að byrja.
Við hjá BFÖ-blaðinu höfum sannreynt af
eigin reynslu að heilsuskokkið er heilsu-
samleg og góð hreyfing.
Allar nánari upplýsingar eru gefnar í
14 síma Ábyrgðar 83533.
Félagsstarfið
Aðalfundur
Reykjavíkurdeildar BFÖ
Aðalfundur Reykjavíkurdeildarinnar var
haldinn 29. maí sl. Fundinn sátu rúmlega 20
félagar en hann var haldinn í Templarahöll-
inni við Eiríksgötu.
Elsa Haraldsdóttir, fráfarandi formaður
deildarinnar flutti skýrslu stjórnar og rakti
það helsta úr starfi deildarinnar sl. starfsár.
Elsa baðst undan endurkjöri og var Haukur
ísfeld kjörinn formaður í hennar stað. Aðrir
stjórnarmenn eru Vigfús Hjartarson, Jóhann
B. Jónsson, Stefán Jónatansson og Kristinn
BreiðQörð, en í varastjórn sitja Reynir Sveins-
son og Brynjar Valdimarsson.
Allmiklar umræður urðu um ýmis umferð-
armál og nokkrar tillögur voru samþykktar,
sem m.a. fjölluðu um nauðsyn á betri aðstöðu
fyrir Bifreiðaeftirlitið, auka þurfí fjárframlög
til Umferðarráðs, stuðningi lýst við Krabba-
meinsfélagið í þeirra baráttu gegn reyking-
um, hvatning til Umferðarnefndar Reykja-
víkurborgar um að samræma víða umferðar-
rétt úr svokölluðum botnlöngum, þakkir til
löggæslumanna fyrir vel unnin störf o.fl.
Nýkjörinni stjórn var falið að senda tillög-
urnar til viðkomandi aðila.
Að lokum þáðu fundargestir veitingar í boði
deildarinnar.
IIMPFRnARRDnQ
umrcnvHnDnua
Svo var það konan sem kom með nýja bíl-
inn á verkstæði, með brotinn gírkassa. Þeg-
ar hún var spurð um aksturslagið sagðist
hún byrja á því að setja í fyrsta gír, og svo í
annan gír, og svo í þriðja gír og svo í fjórða gír
og svo í rallgírinn sem væri merktur R.
Næst þegar hún kom á verkstæðið kvart-
aði hún um mikla bensíneyðslu. Við athug-
un kom í ljós að hún hafði innsogið alltaf á,
því hvar annars staðar átti hún að hengja
veskið sitt?