BFÖ-blaðið - 01.05.1990, Qupperneq 11

BFÖ-blaðið - 01.05.1990, Qupperneq 11
Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri: 1. Ég er þeirrar skoðunar að það sé hverjum einstaklingi heppileg- ast að vera laus við áfengisneyslu. Enda þótt áfengisneysla í hófi sé sjálfsagt í augum margra eðlileg- ur og óaðskiljanlegur hluti skemmtana- og samkvæmislífs, þá eru hin neikvæðu áhrif áfeng- isneyslunnar fyrir hvern ein- stakling og alla í umhverfi hans miklu neikvæðari en svo að jákvæðari þættirnir vegi þar upp á móti. Það er því miður þannig í samfélagi fólks að áfengisneysla er ekki einkamál þess sem áfeng- isins neytir. Áfengisneyslan hef- ur ótrúleg áhrif á allt umhverfi þess sem áfengisins neytir, oftar en ekki veldur áfengisneyslan ósætti og ágreiningi, brýtur niður trúnað og eyðileggur fjölskyldu- tengsl, svo ekki sé talað um vinnutap og heilsutjón þess sem áfengisins neytir. Þeir sem ekki neyta áfengis bera þannig oft þungar byrðar af áfengisneyslu annarra. Þannig lendir það þjóð- félagslega tjón sem áfengisneysl- an veldur, hvort sem er í formi glataðra vinnustunda, glataðrar heilsu og dýrrar sjúkrahússvist- ar, slysa, afbrota, jafnt á þeim sem ekkert hafa til saka unnið í þess- um málum og á þeim sem valdir eru að ógæfunni með því að taka það áhættusama og örlagaríka skref, að láta áfengið ná tökum á sér. Það eru þannig margvísleg og þung rök sem hníga í þá átt að áfengisneysla sé óheppileg og ætti að vera keppikefli að vinna gegn henni eins og annarri vímuefna- notkun. En þrátt fyrir það sem ég hef sagt hér að framan og vegna þeirrar spurningar sem til mín var beint vil ég í örstuttu máli draga saman afstöðu mína og segja að ég hef ávallt fyrst og fremst verið bindindismaður fyrir sjálfan mig og látið öðrum eftir að taka sínar ákvarðanir. En ástæð- an fyrir því, að ég kýs ekki sjálfur að neyta áfengis er fyrst og fremst sú, að fátt eða ekkert veit ég aumkunarverðara en heilbrigð- an, skyni gæddan mann sem af fúsum og frjálsum vilja kemur sjálfum sér í ástand, sem hann er ófær um að stjórna, kemur sjálf- um sér í ástand þar sem hann ræð- ur í raun engu lengur um athafnir sínar og ákvarðanir, er orðinn ómerkilegur leiksoppur vímu og óráðs og hefur þannig kastað frá sér þeim hæfileikum sem greina manninn frá dýrunum. 2. Brýnast finnst mér í áfeng- isvörnum að efla mjög og auka það starf sem unnið er á vegum samtaka eins og AA-samtakanna og SÁÁ, en það ótrúlega mikil- væga starf og góði árangur sem þessi samtök ná í baráttunni við áfengissýkina er að mínum dómi skýrustu og bestu skilaboðin sem hægt er að senda út í þjóðfélagið um skaðsemi áfengisins. Hver maður sem unnið hefur sjálfur bug á áfengissýki sinni er talandi dæmi um að áfengið leysir ekki vandamálin heldur eykur þau og hann er talandi dæmi um að það er hægt, ef menn raunverulega vilja, að ná fullum tökum á áfeng- isneyslunni og hætta henni. Ég hygg að áfengisvarnarstarf sem unnið er af þeim sem sjálflr hafa verið háðir áfenginu og orðið áfengissýkinni að bráð, sé miklu árangursríkara heldur en þrot- laust starf bindindissamtaka og manna sem tala um þessi mál án þess að hafa upplifað þau sjálfir og gengið í gegnum þær vítiskvalir sem ofneysla áfengis og baráttan við hana eru. En auðvitað ber svo líka að efla almennt fræðslu- og upplýsingastarf um skaðsemi áfengis og annarra vímuefna, því auðvitað er áfengi vímuefni, sem í engu er eðlisólíkt þeim vímuefn- um sem barist er gegn af öllum kröftum. Aldagömul hefð áfengisneysl- unnar breytir í engu eðli áfengis- ins sem vímuvalds, og það að vím- unnar er neytt í klingjandi kristal í gullskreyttum sölum skilur hana ekki með neinum hætti frá skítugri heróínsprautunni í kjall- aragreninu. Margrét ívarsdóttir, nemi: 1. Áfengi hefur slæmar afleiðing- ar, og það eru fáir sem kunna með það að fara. Af reynslu minni við vinnu mína á skemmtistað, og eins vegna reynslu af einstakling- um sem ekki kunna með það að fara, þá hefi ég snúist algerlega á móti því. 2. Það ætti að hætta að selja bjór. Fræðsla og fyrirbyggjandi aðgerð- ir eru mikilvægar. Það þarf að 11

x

BFÖ-blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.