BFÖ-blaðið - 01.12.1990, Qupperneq 10
Áramótakveðjur
til félagsmanna
Bifreiðastöð Hafnarfjarðar,
BSH, Reykjavíkurvegi 58,
Hafnarfirði
Söluturninn Sómi — BS,
opið allan sólarhringinn,
Reykjavíkurvegi 58,
Hafnarfirði
S GuðjónÓ hf.
Áfengi og íþróttir eiga ekki saman og enn
síður áfengi og akstur ökutækja. LÍA berst
fyrir því að hraðakstur og keppni sé ekki
stunduð í almennri umferð, heldur á af-
mörkuðum svæðum þar sem fyllsta öryggis er
gætt. Með öðrum orðum, að keppa á réttum
stað á réttum tíma.
Sama á við um akstur og neyslu áfengis.
Stjórna ökutæki eða neyta áfengis á réttum
stað á réttum tíma. Það er alveg ljóst að ef
menn neyta áfengis þá er staðurinn ekki und-
ir stýri og tíminn ekki heldur. Magnið á ekki
að vera lítið, heldur ekkert. Menn eiga ekki
að þurfa að meta þetta sjálfir frekar en lyfja-
neyslu í íþróttum. Þetta á einfaldlega ekki
saman!“
Ólafur Ólafsson landlæknir:
„Ég lýsi yfir eindregnum stuðningi við til-
lögur Árna Gunnarssonar alþingismanns og
félaga um 0,25 prómill vínandamörk við bif-
reiðaakstur. Það er staðreynd að áfengi er til í
landinu og það vill meirihluti þjóðarinnar svo
okkur er hollast að læra að umgangast það.
Meðal þess er að skilja að eftir að hafa drukkið
áfengi aki menn ekki bíl.“
Óli H. Þórðarson framkvæmdastjóri
Umferðaráðs:
„Aðalatriðið er að verði þetta frumvarp að
lögum er tekið ótvírætt af skarið með það
hvort ökumenn geta neytt einhvers áfengis
eða ekki. Með núgildandi lögum er erfitt að
segja við fólk að það megi ekki smakka áfengi
því að áfengisneysla og akstur fari ekki
saman. Fólk getur þá sagt á móti og vitnað til
laga: En mér er nú óhætt að bragða það
aðeins.
Með þessu eykst þekking og skilningur á
því að akstur og áfengi eiga enga samleið.“
Ómar Smári Ármannsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn:
„Þar sem megintilgangur frumvarpsins er
að draga skarpari línur á milli áfengisneyslu
fólks og aksturs og draga þannig úr líkum á
óhöppum og slysum í umferðinni er ég fylgj-
andi því.
Frumvarpið snýst fyrst og fremst um for-
varnir, þ.e. að vekja fólk til vitundar um að
akstur og neysla áfengis fari aldrei saman.