BFÖ-blaðið - 01.07.1993, Side 8
hefur ekki verið nægur verða menn að vinna
lengur til að fylla töluna...
Við fórum líka í bílasafn Toyota. Þar er
saga bifreiðarinnar rakin með sýnishornum
frá upphafi bílaaldar. Ýmsir bílanna hafa
verið endurgerðir af einstakri snilli Japana
en aðra hafa þeir keypt í frumgerðum, m.a.
einkabifreið Roosevelts Bandaríkjaforseta.
Við sáum ótal bíla, allt frá þriggja hjóla
Benz 1886 til nýjustu hátækni-gerða Toy-
ota...
í stuttu máli
Japanir eru iðin og vinnusöm þjóð. Þeir
eru þegnhollir, kurteisir og tillitssamir en
ekki síður kappsamir. Þeir hafa tileinkað sér
margt úr verk- og tæknikunnáttu annarra
þjóða og leggja sig í líma um að ná betri ár-
angri en þær. Þeir eru ein ríkasta þjóð
heims.
Japanir halda tryggð við margar fornar
venjur en taka sér þó ýmislegt til fyrirmynd-
ar úr menningu annarra þjóða. Allir kann-
ast við Sumo-glímuna og júdó, þjóðaríþrótt-
irnar - en vinsælasta íþróttagreinin er hafna-
bolti.
... Og teygðu úr tánum
í lok lauslegra þanka ber þess að geta að
ferðin var að sjálfsögðu afar ánægjuleg og
skipulagning öll hin ágætasta. Loftur Ag-
ústsson, auglýsingastjóri P. Samúelssonar
hfi, var traustur og skemmtilegur fylgdar-
maður okkar allan tímann og Yamada úr-
vals leiðsögukona.
Raunar fórum við ofurlítið hjá okkur þeg-
ar við sáum hana í flugstöðinni ytra með
spjald á lofti. Á það var letrað: Islensku Toy-
ota-verðlaunahafarnir! Við framrúðu bifreið-
arinnar, sem okkur fjórum var ekið í (rúm-
góðri 9 manna...), haíði sams konar spjaldi
verið komið fyrir. En játa verður að ferða-
löngunum leið eins og fyrirmennum þegar
þeir voru sestir í þægilega sjálfrennireið og
teygðu úr tánum eftir all-langa ferð!
Og ótalmargt áhugavert og forvitnilegt
þar hinum megin á hnettinum lifir að sjálf-
sögðu lengur í minningunni en dálítið stremb-
inn níu stunda tímamunur á Islandi og í
Japan - tólf stunda flug frá Tokýó til Kaup-
mannahafnar og sólarhrings ferð af hóteli í
heimsborg milljónanna til höfuðborgar af
hóflegri stærð...
Karl Helgason er ritstjóri Æskunnar.
Afangar í umferðarmálum
1914. Samþykkt voru á Alþingi lög þar
sem m.a. var kveðið á að enginn mætti
stýra bifreið nema hann væri orðinn 21.
árs, og einnig að ávallt skyldi tempra
ökuhraða til að komast hjá slysum.
1925. Fyrstu bílasímarnir voru kynntir í
Þýskalandi.
1927. Fyrstu sjálfvirku umferðarljósin í
Bretlandi voru sett upp.
1932. Félag íslenskra bifreiðaeigenda,
FÍB, var stofnað.
1935. Bretar kynntu próf fyrir verðandi
ökumenn. Þar átti meðal annars að at-
huga hæfni þeirra til að stjórna ökutæki,
sjón þeirra og þekkingu á umferðarregl-
um.
1936. Volkswagen, bíll fólksins, var kynnt-
ur í Þýskalandi. Hönnuður hans var
Ferdinand Porsche.
1957. Fyrstu stöðumælarnir í Reykjavík
voru teknir í notkun, alls á annað hundr-
að talsins.
1958. Hámarkshraði bifreiða í Reykjavík
var hækkaður úr 25 kílómetrum á
klukkustund í 35 kílómetra og í 45 kíló-
metra hraða á nokkrum stöðum.
1968. Islendingar skiptu úr vinstri um-
ferð yfir í hægri umferð.
1975. Fyrsta rall á íslandi.
1979. Noktun öryggisbelta í framsætum
bíla lögboðin á Islandi.
1983. Maður að nafni Noble náði rúmlega
1000 kílómetra hraða í bílnum Thrust 2.
1987. Bugatti Royal frá árinu 1931 var
seldur fyrir um 580 milljónir íslenskra
króna á uppboði í Royal Albert Hall, en
enginn bíll haíði verið seldur svo dýru
verði áður.
1988. Islenskir ökumenn voru skyldaðir,
samkvæmt nýjum umferðarlögum, til að
aka með ljós allan sólarhringinn.
R.J.
8