Skólablaðið - 15.05.1910, Blaðsíða 1

Skólablaðið - 15.05.1910, Blaðsíða 1
SKOLABLAÐIÐ 1910. ____C' _ . FJÓRÐl ÁRGANOUR Reykjavík, 15. maí. i 5. tbl. Kennaraskólinn. I. Úr ræðu skólameistara við uppsögn kennaraskólans. .....Það er eins og að það fylgi þvíaltaf aðnokkru leyti sérstök ábyrgð eða vandi að vera fyrstur. Það er altaf svo mikið undir upphafinu komið. Það er ekki lítils vert fyrir hvaða tnálefni sem er eða stofnun eða félagsskap, hvernig hin fyrstu kynni af þeim verða. Þér eigið nú það mikilsverða hlutverk fyrir höndum, að koma almenningi í skilning um, að eigi hafi verið að óþörfu eða ófyrirsynju í það ráðist, að auka kröfurnar um undirbúning barnakenn- ara og kosta til þess ærnu fé eftir vorum efnum. Þér eigið að hjálpa alþýðu manna til að skilja það, sem hún hefir átt of bágt með að skilja til þessa, hvílíkur munur er á góðri barnakenslu og slæmri; að það er hrópleg fyrirmunun að velja menn til þeirrar sýslu af handahófi og rétt til mála- mynda, rétt eftir því hver ódýrastur fæst, eins og alt annað skiftí litlu. Jeg skal eigi orðum eyða að því, hversu almentþaðer enn, að meta skakt barnakennarastarfið; og það litlu fremur með alþýðu en lærðu mönnunum svo kölluðu. Hitt sný eg eigi aftur með, að það er mikils vert, varðar miklu fyrir land og lýð, að leiðrétta þá skökku skoðun, og eg treysti yður til að reyna að vinna að því. Eigi á eg við það, að þér gjörið það með blaðagreinum. Þær geta verið góðar með, en með þeim vinst það samt aldrei. Af er sú tíð, að

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.