Skólablaðið - 01.05.1912, Blaðsíða 5
SKOLABLAÐIÐ
69
ekki svo lítill vinnusparnaður fyrir fullorðna heimilisfólkið, að
kennararnir létta af þeini töluverðu af barnakenslunni, og mun
það ekki alstaðar metið til fjár eins og vert er nú í fólksekl-
unni.
Fróðlegt gæti það verið að athuga eftir þeim gögnum sem
fyrir hendi eru, hve mikið kenslukostnaðurinn hefur aukist við
fræðslulögin nýju, en það er allmikið verk og því óvíst hvort
tækifæri muni fást til að gera sanianburð þennan, enda full-
snemt enn þá á meðan ei er fyllilega farið að vinna um land
alt að kenslu eftir fyrirmælum fræðslulaganna.
Niðurlag skólalokaræðu.
. . . . En svo eru önnur börn hér, sem eg hefi enga von
um að sjá framar, sem nemendur mína. Þau kveð eg því í
síðasta skifti sem kennari. Ykkur þakka eg hjartanlega fyrir
ianga samveru og treysti því að þið reynið nú af fremsta mætti
að launa mér og öðrum það, sem við höfum fyrir ykkur haft,
með því eina sem við getum að launurn þegið, en það er að
þið reynist vel í prófi lífsins. Að þið gerið alt sem í ykkar
valdi stendur til þess að verjast því, að freistingar nái tökum á
ykkur. Eg veít að fyrir ykkur liggja ótal hættur, ótal villigötur.
í ykkur sjálfum búa ýmis konar tilhneigingar til þess, er ykkur
mætti til tjóns verða að fara eftir. Eg býst við, að í för ykkar
muni slást margir, sem ykkur gæti til skaðræðis orðið að fylgja
í öllu. Athugið því vel í hvaða átt þið haldið.
Spyrjið jafnan sjálf ykkur, hvort Jesús Kristur mundi hafa
hugsað eins og þið, talað eða breytt eins og þið. Hann getur
sífelt leiðbeint ykkur. Þið verðið aldrei svo gömul að þið hafið
•eigi nóg af orðum hans og dæmi að læra. Biðjið hann að
styrkja ykkur til að forðast það sem ílt er, en framkvæma það
sem gott er.
Að sjálfsögðu getið þið enn lært margt gott og gagnlegt
af góðum mönnuni. Leitist jafnan við að ná hylli þeirra, leita
ráða hjá þeiin og fara að þeirra góðu ráðum.