Skólablaðið - 01.11.1912, Síða 12
172
SKOLABLAÐIÐ
að dæma um þetta. Víða nokkuð eru lestrarfélög til í sveitum,
sem eiga dálítið af bókum. Eftir útlánsbókinni að dæma er tals-
vert lesið, en hvað er lesið? Söguruslið mest. Dæmi eru til þess
að neðanmálssögur »t>jóðviijans« hafa aldrei komið inn til bóka-
safnsins heilan vetur, en íslendinga sögur aldrei verið lánaðar
út. Þetta rétt til dæmis.
Sú bók, sem hér er verið að geta, ætti að vera til í öllum
lestrarfélögum, og komast í margra höndur. Höfundur hennar
er frægur rithöfundur, og bækur hans í miklum metum víða
um lönd; líklega þó engin kærari hugsandi lesendum en þessi,
enda er hún mæta vel skrifuð og þrungin af hugsun og um-
hugsunarefni fyrir hvern mann. Rúmið leyfir ekki að kynna les-
endum »SkólabIaðsins« efni hennar svo æskilegt sem það væri.
Vonandi að menn kynnist því sem flestir af bókinni sjálfri.
Henni er skift í 14 kafla, og segja fyrirsagnir þeirra nokkuð til
um það, Iwað höfundurinn fer: 1. Lífsflækjur (margbrotið líf)^
2. Andi einfeldninnar, 3. Einföld hugsun, 4. Einfalt mál, 5. Ein-
föld skylda, 6. Einfaldar þarfir, 7. Einföld gleði, 8. Leiguþýs-
lund og einfeldni, 9. Skrum og leyndar dygðir, 10. Veraldar-
prjál og heimilislífið, 11. Einföld fegurð, 12. Dramb og ein-
feldni í umgengni, 13. L'ppeldi til einfeldni og loks 14. Niður-
lagsorð.
Ástúðlegustu rithöfundarnir eru þeir, sem neyta gáfna sinna
og þekkingar til að reyna að gjöra mennina sælli, sem reyna
að forða villum og vísa á rétta íeið, sem hugga og friða og
sætta okkur við lífið. Wagncr er einn af þeim. Það er fyrir-
hafnarmeira að fylgja hugsun slíkra höfunda, — þó að Ijúft sé,
heldur en að flögra á yfirborðinu með þeim, sem segja eitthvað
misjafnlega holt til augnabliks nautnar; en uppskeran er og ólík.
Málið á þýðingunni er hreint og hispurslaust, sumstaðar
smellið og fagurt, svo að aðrir hefðu ekki gert betur.
Þýðara og kostnaQarmanni sé þökk fyrir þe»sa góðu bók.
Gagnfræðaskólinn á Akureyri. Skóla-
skýrsla 1911—1912.
Þar er ræða efúr séra Jónas, kennara, Jónsson við skóla-
setninguna, auk ávarps skólameistara, og kveðjuorða hans til