Skólablaðið - 01.06.1913, Blaðsíða 4

Skólablaðið - 01.06.1913, Blaðsíða 4
84 SKOL.ABLAÐIÐ Frumvarp tíl laga fyrir Kennarafélag...........sýslu. 1. gr. Tilgangur féiagsins er, að efla samvinnu milli kennara sýslunn- ar til þess að bæta mentun alþýðunnar, og hlynna að hagsmun- um kennaranna í öllum greinuni, andlegum og likamlegum. 2. gr. Félagið heldur málfundi til a5 ræða mál, er snerta tilgang þess, svo oft, sem því verður við komið, og aldrei sjaldnar en tvisvar á ári, haust og vor, og skal vorfundur vera aðalfundur félagsins. 3. gr. Formaður sér um, að á hverjum fundi sé til umræðu eitt- hvert kenslu-eða uppeldis mál Umræðuefnið skal auglýsa télags- mönnum um leið og fundur er boðaður, en fundarboð á að vera komið til félagsmanna eigi síðar en l/2 mánuði fyrir fund. — 4. gr. Atkvæðisrétt á fundi á hver félagsmaður, sern eigi stendur í skuld við félagið. A fundi ræður atkvæðafjöldi úrslitum mála. — Lögmætur er fundur, þegar 2/s félagsmanna eru á fundi. 5. gr. Það, sem fram fer á fundum, skal bóka í gjörðabók félags- ins, og skrifar formaður undir í hvert sinn með skrifara til stað- festingar. 6. gr. Félagsmaður getur hver sá orðið, karl eða kona, sem befir eða hefir haft atvinnu af kenslu og greiðir eina krónu á ári hverju til félagsins. Einnig hver sá, er lokið hefir kennaranámi. Gjalddagi árstillags er fyrir vorfund ár hvert. 7. gr. Félaginu stjórnar 3ja manna nefnd, — formaður, féhirðir og ritari, — og skal kjósa hana til eins árs í senn. 8. gr. Formaður stjórnar öllum aðgerðum félagsins meo ráði

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.