Skólablaðið - 01.06.1913, Qupperneq 5

Skólablaðið - 01.06.1913, Qupperneq 5
SKÓLABLAÐIÐ 85 samnefndarmanna sinna. Hann stjórnar umræðum á fundum og skýrir frá efnahag og starfsemi félagsins á aðalfundi. Hann hefir atkvæðisrétt á fundum. 9. gr. Skrifari annast um ritstörf, félagsins undir umsjón formanns. 10, grein. Féhirðir innheimtir tekjur félagsins og greiðir gjöld þess. Hann semur ársreikning félagsins, en aðalfundur úrskurðar hann. Reikningsár félagsins er almanaksárið. 11. gr. Tillögur til lagabreytinga skal bera upp á aðalfundi og ná þær staðfestingu, ef ajH þeirra atkvæða, sem greidd eru á fundi, eru með þeim. Tugamálsheitin. Mig langar til að gera nokkrar athugasemdir við grein hr. Klemens Jónssonar um tugamálsheitin (SkbL 2. þ. á.). Hann virðist skoða frakknesku eða »alþjóðlegu«. heitin eins og eitthvert lista- verk eða jafnvel helgidóm, sem vér íslendingar þurfum endilega að binda oss við, annaðhvort halda heitunum óbreyttum eða þýða þau á vofa tungu, en hví skyldum vér þurfa þess, þótt vér höf- um sömu skiftingu á mæli og vog og Frakkar og fleiri þjóðir? Hver þjóð hefir sín heiti á tölastöfunum, þótt þeir sé sjálfir alþjóðlegir, og Grikkir hafa t, d. sérheiti á tlestum einingum frakkneska tugakerfisins, en ekki hin sem algengust eru í útlönd- um, þótt mörg þeirra sé af grískum stofni. Þeir kalla t. d. meter »pibi« (d; alin), hektoliter »kilo«, og kilometer »staction«. Hoi* lendingar, sem standa oss niiklu nær, hafa líka sérStök tugamáls- heiti af sinni tungu. Það er kunnugt, að þá er hér var breytt peningareikningi fyrir nálægt 40 árum, og tugaskifting tekin þar upp, komu í stað dals og skildings króna og eyrír, gömul heiti á gangsitfri (með öðru gildi), og olli það engum rugling', enda sættu menn sig fljótt við það. Sama er að segja um það,

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.