Skólablaðið - 01.11.1916, Qupperneq 5

Skólablaðið - 01.11.1916, Qupperneq 5
SKÓLABLAÐIÐ 16S Kennaraskólinn settur 1. vetrardag. (Úr ræðu skólameistarans.) Þaö er sannast aö segja, aö tíminni er stuttur, sem þiö hafið til undirbúnings undir kenslutímana. En þar er ekki gott viö að gera. Námsárin eru fá og kenslutíminn stuttur i skólanum, en námsgreinarnar á hinn bóginn margar, sem nauösyn þykir, aö kennaraefni beri kensl á. Það hefur verið hreytt ónotum að skóla þessum fyrir það, hversu margar námsgreinar hann hefur í takinu, og þess þá auðvitað vænst honum til niörunar, að nám og kensla sé kák eitt til málamynda. Það veit og finnur trauðlega nokkur annar betur en eg, að kenslan og námið hlýtur í öllum greinum að verða af helst til skornum skamti. En þegar eg hugsa til efnahags þeirra, sem skólann sækja, og atvinn- unnar, sem hann veitir aðgang að eftir á, þá hika eg viö aö heimta námstímann lengdan, og má hver lá það sem vill. Þegar eg aftur lít yfir námsgreinarnar, sem skólinn veitir tilsögn i, þá finst mér ekki heldur, að nein þeirra megi missa sig. Meira að segja finst mér ekki, að nokkurt kennaraefnið megi slá slöku við neina þeirra eftir því sem hér hagar til, því að flestallir kennarar verða einir síns liðs, þegar þeir taka til kenslustarfa, þurfa þvi að kunna alt það, sem i skólunum er kent, og vera jafnvígir á kenslu í öllum greinum. Vera má að ykkur, sem eruð að byrja skólanám, finnist all-langt aö horfa fram á þriggja vetra nám — svo fer oft ungum mönnum — og virðist hægt að læra næsta mikið á svo löngum tíma, en hins get eg þó, aö annað veröi efst á baugi um þaö er lýkur, og aö ykkur finnist hann þá hafa veriö lielst til stuttur og margt ónumið af því, er þið bæði vilduð og þyrftuð. Svo hlýtur þaö aö verða. Skólinn ætlar sér ekki þá dul, að gera ykkur að þaullæröum mönnum í þeim greinum, er hann hefur um hönd. Hitt vill hann reyna, aö byggja hjá ykkur trausta undirstöðu, er þiö megið siðan byggja ofan á eftir því sem hagur og ástæður leyfa. Þá nær hann tilgangi sínum, ef hann getur leiðbeint ykkur og hjálpað til áframhaldandi hollrar sjálfsmentunar, þó að hann geti ekki veitt ykkur yfir-

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.