Skólablaðið - 01.11.1916, Side 16

Skólablaðið - 01.11.1916, Side 16
176 SKÓLABLAÐIÐ og reyna aö fá þingmenn sína til þess aS hugsa rækilega um fræðslumálin. Skýrsla um gagnfræðaskólann í Flensborg 1915-16 barst rétt nýlega. Hún ber gleSilégt vitni um aö sá skóli stendur í góSum blóma, þó aS nemendur hafi stundum verið þar fleiri; þeir voru síöastl. vetur 56, en 16 sem sótt höfSu um skólavist, komu ekki ýmsra hluta vegna. Bókasafn nem- enda (Skinfaxi) auögast, Nemendasjóður skólans vex, er nú um 700 kr.; Dánargjöf GuSmundar Grímssonar er nú oröin yfir 3000 kr.; hún er gefin til styrktar nemendum skólans. í heimavist voru síöastl. vetur 24 piltar. Húsnæöi hafa þeir ókeypis í gamla skólahúsinu, en fæöi, ljós, hiti og þjón- usta varö 86 aurar á dag. Þetta er furöu litið í annari eins dýrtíö og var í fyrra. En margt var gert til span&ðar, hrossaket haft í staö sauðakets — og skyldu fleiri gert hafa —, piltar bjuggu sjálfir um rúm sin og burstuðu skó sína. Kenslukraftar við skólann eru í besta lagi. Tíu nemendur tóku burtfararpróf síðastl. vor, og þrír þeirra luku þvínæst gagnfræðaprófi við hinn almenna mentaskóla meö hárri ein- kunn. Bendir það til aö Flensborgarskólinn standi ekki að baki hinum gagnfræöaskólunum. Kaupendur Skólablaðsins eru mintir á, að gjalddagi þessa árgangs var 30. júní í sumar, og er vinsamlega mælst til að þeir greiði andvirði hans sem fyrst. Dýrtíöin (hækkað verð á pappir og prentun) veldur þvx að nauöugur er einn kostur að ganga eftir yngri og eldri skuldum við blaðið í haust. Ánægju- legt væri að sem flestir tækju ómakið af útgefanda með því að greiða skuld sína ókrafðir. Sérstaklega væntir blaðið þess, að allar fræðslunefndir greiði skuldir sínar í haust. Útgefandi: Jón Þórarinsson. — Prentsmiðjan Rún.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.