Skólablaðið - 01.05.1921, Page 5
Maí 1921
SKÓLABLAÐIÐ
53
ekki veri eins kröfuharður í þessu efni
og jeg vildi, vegna þess að dýrtíðin hef-
ir til þessa verið því til fyrirstöðu, að
hrepparnir kæmu sjer upp viðunandi
skólastofum, en vonandi batna tímamir
svo, að á þessu verði bót ráðin. Væri þá
óskandi, að landsstjórnin gæfi ákveðnar
reglur um fyrirkomulag skóla, svo að
sjálfsögðustu kröfum yrði að minsta
kosti fullnægt, eins og t. d. að forstofa
sje eða herbergi, þar sem börnin geti
hengt föt sín, verkað af fótunum og
skift um skó, að þau geti þvegið sjer
um hendurnar, að salemi sje í lagi (og
þau þurfi ekki að fara út í fjós), að
birta og loftrými sje í lagi og að hægt
sje að opna glugga eða loftrás o. fl.
Jeg er vanur að mæla hæð og þyngd
barnanna og hefi jeg sent prófessor
Guðm. Hannessyni skýrslu um þær
mælingar, bæði í fyrra og í ár. Enn-
fremur athuga jeg þrif og þroska bam-
anna, aðgæti hörund þeirra og eitla, lús
í hári, tannskemdir og hlusta lungun.
En þetta ár prófaði jeg öll börnin með
túberkólíni, eins og áður er skýrt frá.
Börnin,er jeg skoðaði í bamaskóla
Akureyrar í haust, voru 186. Af þeim
höfðu 140 (79%) skemdar tennur, 34
voru lúsug (19,9%), 34 kirtlaveik eða
að einhverju leyti þroskalítil (18,3 %).
Sveitabörnin voru 208. Af þeim höfðu
129 (62%) skemdar tennur; 49 voru
lúsug (23,5%) ; 41 kirtlaveik eða las-
burða (18,3%).
Hvergi fann jeg nein börn nje kenn-
ara haldin af næmum sjúkdómi, er
hindraði starf og skólagöngu.
Síðan fyrsta opinbera skólaskoðunin
fór fram fyrir 4 árum síðan, hefir út-
koman verið nokkuð svipuð um heilsu-
far bamanna, nema lús hefir heldur
minkað. það gengur seint að útrýma
þeim ófögnuði hvað þá öðrum kvillum.
það er þó orðið sjaldgæft, að sjá menn
„skríða“ í lús, eins og fyrrum, heldur
er það aðeins nit, sem sjest í hárinu, og
þá einkum á stúlkubörnum. Jeg hefi
ráðlagt sem handhægasta aðferð til þess
að útrýma nit, að kemba hárið nokkur
kvöld úr steinolíu eða volgu ediki til að
drepa og leysa upp nitina. Betur líst
mjer þó á aðferð þá, sem jeg hefi ný-
lega lesið um að tíðkist í Austurríki og
þýskalandi og reynst hefir vel á styrj-
aldarárunum: Blanda skal saman stein-
olíu og bómolíu til helminga, nugga
blöndunni inn í hárið á hverju kvöldi,
hjúpa hárið með hettu (helst úr vax-
dúk) yfir nóttina og þvo síðan hárið úr
volgu grænsápuvatni morguninn eftir
og kemba úr volgu ediki. þetta hrífur á
fáum dögum. Mætti þannig útrýma í
snatri allri lús úr landinu og leita síðan
þjóðaratkvæðis um aðflutningsbann.
Sveitabörn þroskaðri en
kaupstaðabörn.
Á hverju hausti hefir það vakið eft-
irtekt mína við skólaskoðunina, hvað
sveitabömin eru yfirleitt þroskameiri
og hraustlegri en Akureyrarbörnin. Jeg
geri ráð fyrir, að aðrir hjeraðslæknar
verði varir við svipaðan mismun á
skólabörnum í sveitum og í sjóþorpum.
Verður fróðlegt að fá yfirlitstöflur yfir
landið í heild sinni, þegar unnið verður
úr skýrslum hjeraðslækna þessu að-
lútandi. Mínar tölur eru ekki nógu
margar til að fella almennan dóm, en
þær tala þó greinilega hvað þetta hjerað
snertir. Læt jeg hjer nægja, að setja
töflu yfir meðalþyngd kaupstaðar- og
sveitabama þeirra, er jeg hefi skoðað
þetta ár. Hæð barnanna fylgir hlutfalls-
lega þyngdinni og hefi jeg því slept
henni, svo að taflan sje greinilegri.
A k u r e y r i S v e i t
Aldur Drengir Stúlkur Drengir Stúlkur
10 ára 29,2 kg. 29 kg. 31,0 kg. 31,0 kg.
11 — 32,0 — 30,6 — 33,0 — 33,0 —
12 — 34,5 — 34,7 — 36,0 — 37,0 —
13 — 35,3 — 40,9 — 40,0 — 42,0 —