Skólablaðið - 01.05.1921, Page 11
Maí 1921
SKÓLABLAÐIÐ
59
kostaður af bænum, og sjeu börnin skóla-
skykl. 6. Skortur á góðum námsbókum.
Helga-kveri beri að útrýma úr skólanum. I
landafræði og Islandssögu sjeu notaðar bæk-
ur Karls Finnbogasonar og Jónasar frá
Hriflu, en ekki aðrar lakari, þó til sjeu.
Stafsetningarorðabók sje notuð í efri bekkj-
unum. Einnig tímarit og blöð. Vantar bóka-
safn handa börnunum. 7. Skólavistin slitin
úr sambandi við lífið. Vantar leikvöll og
leiktæki. Leiki, sund og glímur ætti að
leggja meiri úherslu á. Meiri útivist, kynn-
ing við nágrennið, þekking á þjóðlífi, fram-
leiðslu, verslun. 8. Störf og stjórn sje meir
lögð i hendur nemendanna. 9. Betri flokk-
un nauðsynleg þegar i haust. 10. Flokkað sje
tvisvar á vetri. 11. Fjarverur eru of miklar,
einkum vantar oft þau börnin, sem illa eru
að sjer. Skipuð sje skólahjúkrunarkona, sem
líti eftir börnum sem vanta og sje millilið-
ur milli skóla og heimila. 12. Lítið samræmi
í kcnslunni og samvinna milli konnaranna.
Nauðsyn að gera lesskrá, heildaráætlun um
kensluna. — Um kennara skólans gefa þeir
enga skýrslu. Segjast hafa fundið meðal
kennaranna mikla samviskusemi og skyldu-
rækni, en þó sitt hvað kunni að vera at-
hugavert við suma þeirra, sje engan dóm
liægt að kveða upp um það meðan hinu
ytra fyrirkomulagi skólans sje jafn ábóta-
vant og raun er á.
Ymsar breytingar hafa þegar orðið á
skólastarfinu síðan nýja skólanefndin tók til
starfa. Kennarar skólans hafa t. d. byrjað
á að hafa með sjer mánaðarfundi um skóla-
mál, og getur margt gott af því leitt. Er það
höfuðskylda skólanefndar að sjá skólanum
þegar næsta vetur fyrir ráðgefandi eftirlits-
manni. Nýir straumar liggja í loftinu, og er
mikils af þeim að vænta, ef skólanefnd
heldur svo áfram sem hún hefir byrjað.
Á. Á.
Hvítárbakkaskólinn.
Á siðastl. hausti höfðu sótt um hann 41
nemandi. Af þeim komu 36. — í vor tóku
10 burtfararpróf og luku því, en 20 fluttust
upp í efri deild.
Viðgerð hafði farið fram á skólahúsunum
yfirleitt og komið var upp hcrbergjum á
skólalofti. Var því húsnæði sæmilegt, enda
var heilsufar gott og starfandi skólalíf. Virt-
ust nemendur kunna vel við sig og gerðu
allir þeir, er fluttust upp í efri deild, ráð
fyrir að koma aftur á liausti komandi, að
öllu óbreyttu.
Samlif og samstarf var einkar gott. Byrj-
aður hver dagur með sálmasöng, biblíulestri
og bænagerð, og endaður á sama hátt áður
cn gengið var til hvilu.
Á málfundum nemenda voru oft flutt er-
indi ýmist af kennurum eða nemendum. Á
áliðnum vetri komu kennarar og nemendur
flestir frá Hvanneyrarskóla uppeftir. Voru
þar ræddar uppástungur um samvinnu og
samkepni milli skólanna í ýmsum greinum.
Er hugmyndin sú, að koma upp sameigin-
legum sjóði fyrir skólana báða og verði svo
veitt úr honum verðlaun eftir þvi, er efni
standa til. Verða verðlaunin eign skólanna
eftir ákveðna vinninga. Annars er ekki full-
komið skipulag komið á um þetta. Var kos-
in nefnd úr hóp kennara og nemenda beggja
skólanna til að koma þessu i fast horf, og á
hún að liafa lokið starfi sínu snemma á
næsta vetri. Verður því tekið til starfa á
þeim grundvelli, er þá verður lagður, óðar
á komandi vetri. Er trú min sú, að sam-
vinna þessi verði til eflingar skólunum og
er i ráði, þegar sjóðnum yxi fiskur um
hrygg, að styðja efnilegustu nemendur skól-
anna á víxl til framhaldsnáms í þeim grein-
um, er þeim væru hugleiknastar.
Skömmu áður en skólanum var sagt upp
komu nemendur á fót sjóði, til þess að
styrkja i framtiðinni fátæka, en áhugasama
nemendur í eldri deild. Sýndu þeir rausn
svo mikla, að gefa og lofa 10 króna árstil-
lagi æfilangt, sumir þeirra. En allir lofuðu
myndarlegu árstillagi og til fleiri ára. Ligg-
ur það i augum uppi, að slíkar sjóðstofnan-
ir eru skólanum mikill ávinningur. Og sýn-
ir þessi sjóðstofnun, betur en nokkur orð,
þá hlýju hjartans, er nemendur báru til skól-
ans.
Annars má geta þess, að fjárhagur skólans
er þröngur. En takist skólanum að vinna
liug og hjarta þeirra, er sækja hann, — og
takist honum að vinna samúð og velvild hjá
sem flcstum góðum ög gegnum mönnum, er
ekki ástæða til að fárast uni það, þótt þröngt
sje í búi. Sú hlýja alda samúðarinnar myndi
lyfta honum upp og bera hann fram. E. A.