Skólablaðið - 01.05.1921, Síða 12
SKÓLABLAÐIÐ
Mal 1921
60
Hjarðarholtsskólinn
starfaði í vetur frá því í byrjun nóvember
til marsloka. Nemendur voru 20, 11 pilt-
ar og 9 stúlkur. þessar námsgreinir hafa
verið stundaðar, eftir skýrslu skólastjóra til
Alþingis: íslenska, íslandssaga, reikningur,
náttúrufrœði, landafræði, mannkynssaga,
samtal um íslenskar bókmentir, teikning,
handavinna fyrir stúlkur einföld landmæl-
ing fyrir pilta, danska og enska, fyrir þá er
vildu; tóku flestir þátt í dönsku en tveir í
ensku. Ennfremur leikfimi, eftir því sem við
varð komið, en húsnæðið ónóg. — Prófdóm-
endurnir, Ami læknir i Búðardal og síra
Jón Guðnason á Kvennabrckku ljúka lofs-
orði á kensluna og aðbúð alla við nemendur.
H. Hjv.
----O----
ZZ FRJETTIR ZZ-
—o—
Yfirráð á skólahúsum.
það mun eigi ósjaldan hafa borið við hjer
á landi, að ágreiningur befir orðið um það,
hver ráðin hefði á skólahúsum, og munu
hreppsnefndir og bæjarstjórnir að jafnaði
þóst þar einráðar. Hjer i Reykjavík varð
fljótt reipdráttur nokkur milli hinnar ný-
kjörnu skólanefndar og bæjarstjórnarinnar,
og lauk því máli með úrskurði stjórnarráðs-
ins 29. f. m. Brjef stjórnarráðsins er svo
hitandi:
„þjer hafið, herra fræðslumálastjóri, í
brjefi dags. 21. þ. m., látið uppi álit yðar um
erindi formanns skólanefndarinnar í
Reykjavík þar sem hann beiðist úrskurðar
um það, hvort skólanefndin hafi að fullu
ráð yfir skólahúsi bæjarins, og hvort bæjar-
stjómin hafi nokkra heimild til að leyfa
húsið til notkunar.
Út af þessu skal yður hjer með til vitund-
ar gefið til leiðbeiningar, og til birtingar fyr-
ir nefndum skólanefndarformanni, að ráðu-
neytið er yður sammála uin, að skólanefnd-
in liefir að lögum umráðin yfir skólahús-
inu undir yfirumsjón og eftirliti yfirstjórn-
ar fræðslumálanna, og að bæjarstjórnin get-
ur því ekki veitt leyfi til notkunar hússins,
en að ráðuneytið þó á hinn bóginn telur
skolanefndinni óheimilt að láta nota húsið
til annars en lögboðinnar barnakenslu
neina mcð leyfi bæjarstjórnarinnar.'*
Latínufrumvarpið,
eða frumvarp mentamálanefndarinnar um
breyting mentaskólans, sem stjórnin lagði
fyrir neðri deild, dagaði uppi þar í deild-
inni. því var vísað til mentamálanefndar,
sem vænta mátti, en nefndin klofnaði. Með
frumvarpinu mæltu þrir, Bjarni frá Vogi,
Magnús dósent Jónsson og Jón Jlorláksson,
og lögðu þeir auk beldur til að lengra yrði
gengið en í frumvarpinu var ætlast til og
latína gerð að inntökuskilyrði í 1. bekk skól-
ans. Aðrar breytingatillögur voru smávægi-
legri Minni hlutinn, þorsteinn Jónsson og
Eiríkur Einarsson, fluttu rökstudda dagskrá
þess efnis, að málinu yrði frestað, og vildu
þó ekki að öllu færa til sömu rök báðir.
Málið kom til 2. umr., og var talað um það
af miklum móði í deildinni lengi dags og
fram á nótt. Var þá fundi slitið það sinn,
og kom málið ekki á dagskrá framar, enda
má telja víst að dagskrá minni hlutans
hefði orðið samþykt. H. Hjv.
Setningafræði
Jakobs Jóh. Smára er nú komin út. Er það
allmikil bók, 18 arkir, og útgáfan prýðileg í
alla staði. Arsæll gefur út, en Acta hefir
prentað.
-----o-----
Tvö síðustu blöð Skólablaðsins hafa af
ýmsum ástæðum tafist nokkuð, einkum
vegna anna prentsmiðjunnar, og eru les-
endur vinsamlega beðnir að virða á betra
veg.
SKÓLABLADID kemur út einu sinni
í mdnuði, J'/d (,rk lesmdls hvert blað, 18 arkir
á dri. Kostar 6 krónur, og greiðist fyrirfram,
í janúar. Útgefendur: Ásgeir Ásgeirsson, Helgi
Hjörvar og Steingrimur Arason.
Afgreiðslu og innheimtu annast
II e l g i II j örvar, Tjarnargötu 18. Sími 808.
Utanáskrift blaðsins er:
Skólablaðið, Reykjavík (Pósthólf 84).
Prentsmiðjan Aeta — 1921