Sovétvinurinn - 01.09.1934, Side 5

Sovétvinurinn - 01.09.1934, Side 5
[Sovétvin u ri n 11 Sveitaþorpið Naltsjik í lýð- veldinu Kabar- dino- Balkaria. Myndin sýnir gömlu og nýju byggingarnar í þorpinu. verkamannabústaðir, skólar, barnaheimili, menningarhallir, leikhús, sjúkrahús, hvarvetna í þessu frjósama, jarðefnaríka landi uxu mann- virkin fram eins og örlátur jurtagróður, og hrifning fjöldans af af- rekum sínum var blátt áfram áfeng, hjartsýnin, trúin á framtíðina, trúin á leiðsögu kommúnistaflokksins. Asamt nokkrum frönskum og belgiskum ferðamönnum sat ég í þessu landi veizlur með óbreytt- um úkrainskum verkamönnum, — þar á meðal einhverja ríkmann- legustu veizlu, sem ég hef nokkurntíma setið (í nýiðjuborginni Gor- lofka). Ég var þar viðstaddur leiksýningar, hljómleika, danssýning- ar, — dansinn er nefnilega þjóðlist, sem er óaðskiljanleg rússnesk- um þjóðum, enda þótt Mgbl. segi, að dans hafi verið þar harð- bannaður, unz Rússar fengu fast sæti í ráðinu. — Rússar hafa fræg- asta ballett heimsins, á öllum skemmtistöðum og kaffihúsum eru iistdansar, í menningargörðunum svokölluðu dansar almenningur, börn og fullorðnir, ég hefi meira að segja séð Rússa dansa í járn- brautarvagni. Dansbannið í Rússlandi er m. ö. o. samskonar öfug- mæli og bannið gegn landafræði, sem Mgbl. segir að hafi ríkt í RÚ88landi, þangað til nú, að Rússar fengu fast sæti í ráðinu. All- Ur heimurinn veit nefnilega, að bolsar bafa gert víðtækari land- fræðirannsóknir og landkannanir en nokkur þjóð önnur síðan þeir tóku við völdum. Flotar rússneskra vísindamanna hætta lífi sínu á ári hverju í rannsóknum á norðurhjara veraldar, Síberíu og Mið- Asíu, — sbr. Tsjeljuskin. Yfirleitt má segja, að bolsar séu tölu- vert sterkari í landafræði en Morgunblaðið. Sem sagt, þetta var hungursneyðin í Ukraine 1932. — Samt hefir því alilrei verið neitað, að einmitt það ár, síðasta ár fyrstu 5-ára- áætlunarinnar, hafi verið vöruskortur t landinu, verksmiðjur áætl- unarinnar voru að fullsmíðast, og enn ekki farnar að framleiða að ráði, og baráttan við sveitaburgeisana gegn samyrkjunni olli í bili margskonar óreglu, töfum og erfiðleikum. Aðal-»hungursneyðin í Ukraine* var aftur í fyrrahaust, eins og minnugir blaðalesendur kannast við frá hungursögnum Morgun- Idaðsins og andsvörum mínum í Alþýðublaðinu. Það er í þeirri hungursneyð, sem Mgbl. »drepur nú í framhjáhlaupi* aðeins sex milljónir inanna. Þá átti allt að vera í dauðateygjunum i Ukraine, en ráðstjórnin að hafa bannað blaðamönnum að ferðast um landið. Uni |ietta leyti í fyrra ferðast nú samt einn viðurkenndasti og sann- söglasti blaðamaður lieimspressunnar, Walter Duranty, um Ukraine og Norður-Kákasus, hungurlöndin. Hann er fregnritari auðvalds- hlaðsins New York Times, hel'ir annast Rússlandsfregnir þessa stór- hlaðs síðan 1921, og nýtur mikillar virðingar, jafnvel hjá stjórn Bandaríkjanna, enda þótt hann ferðist að jafnaði eftir jörðinni, hefir verið ráðunautur Roosevelts forseta í Rússlandsmálum. Hann er um allan heim talinn fyrsta flokks heimild um Sovét, þekkir hið nýja ríki út og inn, sögu þess og þróun, bæði í menningarefn- um og almennri þjóðmegun. Hann er óhlutdrægur og ástríðulaus fregnritari, kaldur og skýr. Safn af Rússlandsgreinum hans hefir verið gefið út í stóru bindi, Russia Reported 1921—1933 (evrópisk útgáfa hjá Gollancz, London). Hann skýrir þannig frá hungursneyð- inni í Ukraine og Norður-Kákasus í fyrra, þar sem Mgbl. lét sig ekki muna um að sálga sex milljónum: I miðjum september, um það leyti sem hungurfregnirnar voru háværastar: »Ég hefi nú verið í 200-mílna bifreiðarferð um hjarta Ukraine, og get fullyrt, að uppskeran er afbragðs góð og allt hung- urtal er hlægilegt , . . íbúarnir, frá börnum til gamalmenna, hafa heilbrigt útlit, og virðast vera vel nærðir«. Nokkru síðar: »Ég dreg saman í eitt ábrif mín af ferðalaginu og af samtölum mínura við tugi af bændum og héraðsstjórnum. Sam- yrkjuhreyfingin var ekki vinsæl af öllum, það var mikil óvirk mótstaða árið sem leið, og þeir sem börðust á móti urðu fyrir þungum búsifjum. En nú er engin mótstaða framar, og þeir sem störfuðu samkvæmt fyrirmælum Kremls, eru nú farnir að njóta góðs af árangrinum. 1 stuttu máli, vélgengi og samyrkja rússnesks landbúnaðar hefir haldið innreið sína fyrir fullt og fast í landinu, °g Kreml hefir sigrað. * Seinna í september: »Eftir tíu daga ferð mína um Norður-Káka- sus og Ukraine, þar sem ég naut meira frjálsræðis á ferðum mín- um, en búizt liafði verið við, endurtek ég þá skoðun, að Kreml hafi unnið úrslitasigur í baráttunni fyrir samnýtingu Iandbúnað- arins*. Walter Duranty er síðan á mánaðarferð um Vestur-Evrópu og mætir þar hinum ægilegu hungurfregnum um Rússland, sem þá var verið að skipuleggja í Þýzkalandi og Austurríki (Hitler, Innitzer kardínáli). Síðan fer hann aftur til Rússlands. í desember, eftir að hann hefur fullvissað sig um, að hungurhéruð Mbl. eru birgð upp að vistum, farast honum svo orð (um leið og hann birtir skýrsl- urnar): »Þessi útkoma réttlætir bjartsýni þá, sem héraðsstjórnir létu í ljósi við mig á ferð minni um Ukraine og Norður-Kákasus, — bjartsýni, sem stóð í svo hrópandi mótsögn við horfellissagnir þær um Ráðstjórnarríkin, sem útlireiddar voru í Berlín, Riga og Vín- arborg, og settar voru saman af aðilum, fjandsamlegum ráðstjórn- inni, í því augnamiði að koma á elleftu stundu í veg fyrir viður- kenningu Bandaríkjanna á Ráðstjórnarríkjunum, með því að upp- mála Káðstjórnarríkin sem land! þar sem allt væri í rústum og ör- vinglun«. Þessum æðrulausa sérfræðingi amerísku auðvaldsblaðanna um hungursneyðina miklu í Rússlandi 1933, þar sem Mgbl. felldi sex milljónir manna með svo mikilli sigurgleði, — þannig farast lion- um orð. Það er óhætt að óska Morgunblaðinu til hamingju með yfir- standandi hungursneyð í haust og komandi hungursneyð í vetur. 5

x

Sovétvinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sovétvinurinn
https://timarit.is/publication/237

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.