Sovétvinurinn - 01.01.1937, Page 5

Sovétvinurinn - 01.01.1937, Page 5
[Sovétríkin 20 ára] Friðarmálin og fólkið. „Bara að friðurinn héldist! Þá myndi ég geta verið rólegur og notið lífsins eins og frjáls maður.“ Brotið land, hls. 113. I bókinni „Brotið land“ eftir Maurice Hindus, sem út kom á íslenzku fyrir nokkrum árum, í þýð- ingu Yilmundar Jónssonar landlæknis, segir höf. frá þvi meðal annars, er liann eftir margra ára fjarveru kom aftur heim i sveitina sína i afskekktu héraði á Rússlandi. Þetta gerist á eftir stjórnar- hyltingunni og eftir það, að sovjetin hafa tekið við stjórn landsins. Lítill kafli í þessari ágætu hók hefir fest sig svo í vitund minni, að hann rifjast upp fyrir mér aftur og aftur, með krafti þess sem lifir, af því að það er satt. En vitanlega gefa lika athurðir þeir, sem alltaf eru að gerast í heiminum, tilefni til þess, að þessi minning helzt við. Þessi kafli, sem ég á við, er viðtal höfundarins við frænda sinn, rússneskan hónda, sem leitar hans í næturkyrrðinni, þegar aðrir sofa, til þess að spyrja hann um álit hans á því, livort Rúss- land muni fá að vera í friði fyrir árásarstriði ann- ara þjóða. Fram af mæddum vörum lians hrýzl setningin, sem ég hefi valið fyrir inngangsorð að þessari smágrein: „Rara að friðurinn héldist!“ Síðan lieldur liann áfram og talar i nafni rúss- nesku bændanna, rússneska fólksins um skelfing- ar ófriðarins, sem alltaf ganga fyrst og fremst úl yfir fólkið, út yfir alþýðuna, og hann spyr: „Fyrir livað er hægt að ásaka okkur? Fyrir livað er hægt að ásaka Hönnu mína, eða mig eða litlu dreng- ina okkar, éða hændurna, þeirra Hönnur og þeirra börn? Því þegar Pólverjarnir koma, þá eru það við, Hönnur okkar og litlu hörnin okkar, sem þeir misþyrma.“ Svona liefir það verið, er það og verður það, það er alltaf alþýðunni, fólkinu, sem blæðir i styrjöldunum, fyrst og fremst.. Það er alþýðan, sem fyrst verður hungursneyðinni að hráð, alþýð- an, sem vcrður að sitja heima og þola ógnir styrj- aldanna, þegar aðall _ og auðmenn yfirgefa hið sökkvandi skip og flýja landið. Jafnvel alþýða þeirra landa, sem sigra, hefir venjulega ekki ann- Eftir AÐALBJÖRGU SIGURÐARDÓTTUR að upp úr styrjöldunum en það, að sjá á hak sín- um hraustustu sonum og verður að þola hungur og allskonar liarðrétti, til þess að halda hernað- inum við. Hin gullnu loforð um auð og velsæld, sem ávöxt styrj aldanna, uppfyllast aldrei, að því er alþýðuna snertir, það er ekki einu sinni að neinu ráði séð um þá menn, sem farlama verða í hern- aðinum. Frá mínu sjónarmiði er það því svo, að hin ein- asta von um varanlegan lieimsfrið hyggist á al- heimssamtökum alþýðunnar. Alþýða allra landa er líka þegar byrjuð að sjá það, að verkamaðurinn og bóndinn ver hezt sitt eigið lieiinili, með því að taka höndum saman við verkamenn og hændur annarra landa, í stað þess að lierja á þá og leggja þeirra heimili i rústir. Hvers vegna skyldu verka- menn og bændur óska eftir liernaði? Hvers vegna skyldu þeir vilja yfirgefa friðsamlegt starf til þess að drepa og vera drepnir? Það eru hvort sem er æfinlega þeir, sem sendir eru forsendingar þessar. Ég var í París í sumar og sá þar heimssýning- una. Einhverir liafa ef lil vill vonað, að hún yrði til þess að draga þjóðirnar saman og tryggja frið- inn í heiminum. Ekki hefi ég neina trú á, að svo verði, en eitt sá ég þar þó, sem nú eftir á hefir i huga mínum mótazt sem táknmynd möguleikans fyrir heimsfriði. Það var líkneskið mikla, sem gnæf- ir á burst rússneska sýningarskálans. Likneskið sjálft er fullkomið listaverk, hver lína er fullkom- in fegurð, að manni finnst. Á kvöldin gat ég stað- ið tímunum saman og horft á það hera við dökk- an næturliimininn; risavaxinn verkamaður og kona með stvrkleik og ákveðinn tilgang meitlað í hverja línu. Þá var sem mér fyndist þau reiðubúin að leggja út í baráttuna, að leggja undir sig alla jörð- ina, ekki með sverði og stáli, heldur með þeim frið- samlegu starfstækjum, sem þau héldu í höndunum. Og ég sagði við sjálfa mig: Ef draumurinn um heimsfrið á nokkurn tíma að rætast, þá hljóta það að verða samtök alþýðunnar, verkamannsins og bóndans um allan heim, sem bera hann fram til sigurs. Aðalbjörg Sigurðardóttir.

x

Sovétvinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sovétvinurinn
https://timarit.is/publication/237

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.