Sovétvinurinn - 01.01.1937, Qupperneq 10
[Sovétríkin 20 ára].
Stac h a n of f - h rey f i n g i n
tveggja ára.
Á tveim síðustu árum liefir Stachanoff-hreyfing-
in rutt sér til rúms, og er hún nú orðin alls ráð-
andi í auknum og bættum afköstum hinnar
sósialistisku vinnu og í allri tækni. Hún er orðin,
eins og Stalín komst að orði, „hin lifræna, ósigr-
andi lireyfing nútímans“. Þessi hreyfing er runnin
frá einstaklingsmeti í vinnuafköstum — frá koia-
námuverkamanninum Stachanoff, sem til þess
tíma var óþekktur maður. Nú hefir liún horizt um
land allt. Grundvöllur hreyfingarinnar er gagnhugs-
aður og hún er viðurkennd sem megin-undirstaða
hagfræðilegra og menningarlegra framfara.
Fyrsta Staclianoff-tilraunin var fólgin i mjög
einfaldri verkaskiptingu — losun kolanna og brott-
færzlu þeirra. Með þessari verkskiptingu eyddu
verkamennirnir ekki tíma í að hlaupa sífellt úr
einu verkinu í annað, ýmist að losa kolin eða aka
þeim í burtu. I stað þess að áður voru kolabor-
arnir notaðar i 5—6 tíma á dag, en lágu hinn tim-
ann ónotaðir, voru þeir nú i notkun allan vinnu-
tímann. Jafnsk jótt og heill vinnuflokkur vann með
þessari aðferð, óx kolamagnið, sem losað var, mjög
mikið, þrátt fyrir það, að verkamönnum væri
fækkað.
í öllum greinum þjóðarhúskaparins byrjuðu
EFTIR CLIFFORD MARCHANT
hundruð verkamanna þá þegar að keppa við Stac-
hanoff, finna upp nýjar vinnuaðferðir og setja ný
afreksmerki. í verksmiðjum þungaiðnaðarins, við
járnbrautirnar, í spunaverksmiðjunum, í inálm- og
skipasmíðaverksmiðjum, í pappírsiðnaðinum, við
sykurræktina og á bómullarökrunum óx alls staðar
með sí-auknum liraða, ósjálfráður áhugi fyrir
auknu framleiðslumagni.
Á fyrstu þjóðarráðstefnu Stachanoff-verka-
manna, liaustið 1935, lýsti Stalín þessum fyrirmynd-
um verkalýðsins á eftirfarandi hátt: „Þessir menn
eru óháðir íhaldssömum og þunglamalegum skoð-
unum sumra verkfræðinga, tæknifræðinga og hag-
fræðinga, halda liugrakkir fram á leið, brjóta úr-
eltar reglur, en skapa nýjar og betri. Þeir leiðrétta
og fara fram úr þeim áætlunum, sem stjórnendur
iðnaðarins hafa samið. Þeir jafnvel leiðrétta verk-
l'ræðinga okkar og tæknifræðinga; ekki ósjaldan,
að þeir kenni þeim og livetji þá, því að þeir eru
menn, sem hafa fullkomið vald á tækninni í sínu
fagi, og þeir skilja það, að það, sem sótt er til
þeirra, verða þeir aftur að sækja til fullkomnari
tækni.
Frá byrjun Stachanoff-breyfingarinnar var vöxt-
ur hennar og viðgangur tryggður. Hún bendir á
r j <r JNn i ji
Sovétskipið Kuban að leggja
af stað frá Odessa með 2V-i
milljón kg. af matvælum, sem
verkalýðurinn í Sovétríkjun-
um sendi að gjöf konum og
bornum á Spáni 27. sept. sl.
10