Sovétvinurinn - 01.01.1937, Síða 12

Sovétvinurinn - 01.01.1937, Síða 12
[Sovétríkin 20 ára]. Rússneski flugleiðangurinn, sem leitar heimskautsfarans Levanevskis. Á myndinni sést líka flugvélin „N-209“, sem notuð er við leitina. Rriðji maður frá hægri er stjórnandi flugvélarinnar A. D. Alexejev. Leitin ad Levanevsky. Einn af fremstu fluggörpum Sovétríkjanna, Sig- ismund Levanevsky, hóf 12. ágúst s.l. för sína frá Moskva, og var ferðinni heitið yfir Norðurheims- skautið til Bandaríkjanna. Flugferð þessi átti að verða hámark þetta ár i tilraunum Sovétstjórnar- innar um flug á norðurvegum, og hafði allt geng- ið að óskum fram að þessu. Áður höfðu prófessor Schmidt og félagar hans reist aðsetur á Norður- pólnurn, og Chkalov og Gromov og áhafnir þeirra höfðu lokið flugi vfir lieimskautið án viðkomu. Nú fóru þeir Levanevskv og menn hans á þyngri flugvél og þurftu að koma við á leiðinni sökum eldsneytis. Ætlunin var að auka við þekkingu þá á skilyrðum norðurhjarans, sem fyrirrennarar þeirra höfðu þegar aflað. En 13. ágúst sendn þeir frá sér skeyti um vélabilun, ein vélin vann illa, og þeir voru staddir skammt frá heimskautinu Ame- ríku megin. Seinna náðust skeyti í Rússlandi, en dauf og ó- greinileg og gáfu ekkert til kynna um hag flug- mannanna. En þau bentu allótvirætt á, að óhætt myndi að vona að þeir væru enn í lifenda tölu. Rökin voru í stuttu máli þessi: í fvrsta lagi reynd- ist það þvi nær óyggjandi, að skeytin væru frá Levanevsky, á það benti m. a. öldulengd skevta- sendinganna, hvenær þau voru send og sum orð- in, sem náðust. Allt stóð þetta heima við leyni- legar ákvarðanir, sem Levanevsky gekk frá áður en hann fór. í öðru lagi virtist harla líklegt, þar eð skeytin voru svo dauf og slitrótt, að þau væru send með rafhlöðuafli, sem aftur benti til þess, að sendendur væru staddir á (ísnum, er þau voru send, og þá auðvitað komizt klakklaust af úr lend- ingunni. Og i þriðja lagi gefur daufleiki skevtanna til kvnna, að Hkindi séu til þess að rafhlöðurnar séu nú gengnar til þurrðar, og sé því þögn flug- mannanna eðlileg, þó að þeir séu enn heilir á húfi. Veðurfar á norðurleiðum og ástand íssins var hvorutveggja um þetta leyti svo illt og óhagstætt, sem verða má á þessum slóðum og um þetta leyti, að því er menn þekkja til. En þrátt fyrir það eru þeir, sem bezt þekkja til, vongóðir um, að hann og félagar hans séu enn lifandi — og her þrennt til: 1 Levanevsky var margreyndur í ferðum og störfum á norðurvegum og var mjög gætinn og skýr maður; þvi er rétt að geta þess til, að hann hafi með fyrirhyggju leitað lendingar, jafnskjótt sem vélabilunar varð vart, en ekki treyst á nauð- 12

x

Sovétvinurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sovétvinurinn
https://timarit.is/publication/237

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.