Sovétvinurinn - 01.01.1937, Qupperneq 19

Sovétvinurinn - 01.01.1937, Qupperneq 19
[Sovétríkin 20 ára] RÉTTARFAR OG AFBROT I SOVÉTRÍKJUNUM. Frh. af hls. 2. Auk þeirra dómstóla, er taldir voru, eru ýmsir sérdómstólar, t. d. sérstakir dómstólar, er rann- saka afbrotamál harna, dómstólar, er fara með mál út af brotmn á verksmiðjulöggjöfinni, og hin- ir svonefndu „félagsdómar", sem menn kjósa sér á vinnustað, samyrkjubúi eða verkamannabústöð- um, lil að skera úr öllum smærri þrætum, og ágrein- ingsmálum, er upp kunna að koma á slíkum stað. Eru dómar þessir mjög útbreiddir, og gegn um starfið í þeim hljóta hundruð þúsunda verkamanna og bænda náin kynni af réttarfari og lögum og mikla æfingu í dómstörfum. Ég liefi talið nauðsynlegt að gefa þetta stutta yfirlit um dómstólana, áður en eg tek fyrir aðal- efni þessarar greinar, til þess að benda á þá stað- reynd, að með hinni lifandi þátttöku fjöldans í dómstörfum er fyrir það girt, að skapazt geti eða haldizt í Sovétlýðveldunum lagafyrirmæli eða dómvenjur, sem eru andstæð réttarmeðvitund al- þýðunnar á hverjum tíma. Skoðun réttarfræðinga i Sovétríkjunum á þess- um málum er sú, að löggjöf og dómstólar eigi að vera lifandi og starfandi tæki í höndum fólksins, lil uppeldis i félagshyggju og menningarsambúð, og til öryggis og varnar því nýja mannfélagsskipu- lagi, sem alþýða Sovétlýðveldanna er að skapa sér. II. Sá þáttur Sovétlaganna, sem fjallar um þjóðfé- lagslegar yfirsjónir, er sennilega eitt merkasta menningarfyrirbrigði vorra tíma, og alveg tvimæla- laust viturlegasta og mannúðlegasta „refsilöggjöf", sem sett hefir verið í nokkru landi. Á Islandi og í öðrum auðvaldslöndum er þessi löggjöf mestmegnis upptalning á viðurlögum við afbrotum á móti hagsmunum yfirstéttanna, og refsi- rétturinn byggist enn að mestu á þeirri aldagömlu reginfirru, að andsvar hins opinbera við vfirtroðsl- um laga eigi að vera refsing, endurgjald illra verka, ákveðið böl eða þjáning, eins konar makleg mála- gjöld — í stuttu máli: hefnd. Shr. hugtökin: hegn- ing, refsiréttur, hegningarhús, hegningarvinna o. s. frv. — Uað er ekki vandséð ættarmótið með slik- um ráðstöfunum og hlóðhefndinni gömlu eða hoð- orðinu: „auga fvrir auga, tönn fyrir tönn“. — Lög- in og fræðimennirnir gera heint og öbeint ráð fvrir sérstakri manntegund: „glæpamanninum“, sem eigandi laganna, auðmannastéttin, á i heilögu stríði við. Það lætur að líkum, að fátt er í slíkri löggjöi talið til glæpa, annað en það, sem rekst á hinn heilaga eignarrétt auðstéttanna eða önnur vfirráo þeirra. Hinsvegar eru flestar tegundir arðráns með öllu refsilausar, þótt þær steypi miklum fjölda manna i fátækt og bágindi. Hegningarlögin í auð- valdslöndunum eru, i augum auðvaldsheimspek- inga, nokkurskonar verðlisti, þar sem „glæpamað- urinn“ getur sannfært sig um livað „glæpurinn“ „kostar", og hvort „viðskiptin“ muni „borga sig“. I sem stytztu máli: Refsilöggjöf og „vísindi“ okk- ar og annara auðvaldslanda eru, jirátt fyrir smá- vægilegt endurbótakák, gegnsýrð af rangsnúnum og villimannlegum hugsunarhætti, sem ætti að vera grafinn og gleymdur fyrir mörgum öldum, í félagi siðaðra manna. Sovétlýðveldin liafa algerlega sagt sig úr lögum við slíka heimspeki. Löggjöf þeirra um þessi efni hefir þann eina tilgang, að ala þjóðfélagsborgar- ana upp í frjálsri samhúð og félagshvggju, og vernda verklýðsrikið fyrir árásum og tjóni. Þær ráðstafanir, sem ríkið gerir gegn afbrotamönnum eru því jafnan þjóðfélagslegar öryggisráðstafanir, en aldrei refsing eða persónubundin hefnd. Orðið refsing er aldrei nefnt á nafn í öllum lögunum, sem viðurlag við afbroti. Ráðstafanir Sovétlaganna gagnvart afhrota- mönnum miða fyrst og fremst í þá átt, að útrýma orsökum til afhrota, með þvi að byg'gja, upp þjóð- félag, þar sem liver maður getur notið liæfileika sinna til fulls í þjóðnýtu starfi. En hafi einhver framið tiltekið afhrot, þá grípur hið opinbera til einhverra þeirra varúðarráðstafana, sem taldar eru nægja, til að afstýra frekari hættu. 6. grein laganna er þannig: „Hinar þjóðfélagslegu öryggis- ráðstafanir eiga að liafa þann tilgang: a. að afstýra brotum yfirleitt; b. að hindra þá, sem framið hafa hættulegar samfélagsyfirsjónir, i því, að fremja fleiri; c. að uppala þá, sem framið liafa yfirsjónir, í frjálsri sambúð við hið vinnandi fólk. Hinar þjóðfélagslegu öryggisráðstafanir megal aldrei hafa þann tilgang að vera líkamleg þjáning eða særa tilfinningar mannsins, og því síður endur- gjakl eða refsing.“ I þessari grein eru lögfestar þær skoðanir, sem hinir víðsýnustu og frjálslyndustu vísindamenn liafa barizt fyrir með sorglega litlum árangri í auðvaldslöndunum. Um stefnu Sovétríkjanna í afhrotamálum segir dómsmálafulltrúinn Krylenko: „Dómstóll verka- lýðsins verndar ríkið og einstaklingana aðeins gegn athöfnum og mönnum, sem gera samfélaginu tjón og skaða cða gætu skaðað verklýðsríkið. Athafnir, sem eru samfélaginu hættulausar, eru með öllu Frh. á hls. 22. 19

x

Sovétvinurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sovétvinurinn
https://timarit.is/publication/237

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.