Sovétvinurinn - 01.01.1937, Side 20

Sovétvinurinn - 01.01.1937, Side 20
[Sovétríkin 20 ára]. Nýjustu fréttir. Jósep Stalin. Hinn risastóri isbrjótur Jósep Stalin hljóp af stokkunum fyrir nokkrum dögum i Leningrad. Hann á að verða flaggskip i austurhöfum. Nettó tonn 11 .(XX), 1(K) metra langur, 23,2 breiður og 20 metra djúpur. Hefir 9 katla og 3350 hestöfl, geng- ur 15% milu. Skipið er eins sterklega byggt og nokkur kostur er á. Kolarúm er fyrir 4000 smálest- ir, og vatnsgeymir stærri en áður þekkjast, fyrir langar ferðir i íshafinu. Hefir útbúnað til að létta sig og þyngja eftir þörfum. Dælurnar afkasta um 1500 smálestum á klukkustund. Öll rannsóknar og skipstjórnartæki eru af nýjustu og fullkomnustu gerð. Meðferðis hefir hann stóra sjóflugvél og tvær minni flugvélar. Hann liefir einnar kilówatts stutt- bylgju-útvarpsstöð, sem nær hvert hann vill um íshafið og lil Moskva, ennfremur 2 kílówatta lang- hylgjustöð í þjónustu veðurfræðinnar. Skipið er liið fullkomnasta í „civilflota" Sovétrússlands. Iþróttamótið í Kiev. Til staðar voru 40 þús. áhorfendur og fjöldi Sovét-rússneskra meta sett. Ennfremur var sett heimsmet í kringlukasti. Zoja Sinizkaja setti heims- met með kringlu 74.23 metr. (hægri liendi 43.13 metr.). Heimsmetið var 67.82 og sett af Pólverj- anum Zeisik. Nýjustu tölur um kornupp- skeru o. fl. í Sovétríkjunum. Opinberar skýrslur frá land- búnaðarráðuneytinu segja þetta um jarðargróðann í ár í Sovét- rikjunum: I kornframleiðslu hefir verið sett met. Meðalupj)- skera af liektara liefir orðið 70 pud (rúml. 16 kg.) eða sama sem 1150 kg. Afrakstur korns á ríkisbú- um og samyrkjubúum hefir orðið í ár meira en 7 milljarð- ar puda, eða um 120 millj. smá- lesta! — Ef nú uppskerunni er jafnað á hvern verkamann þessara búa, þá koma um 90 pud, eða 1440 kilogr. á mann, en fyrir stríð 1914 ekki nema 22 pud eða 352 kg. á mann. Sykurframleiðslan hefir orð- ið y3 meiri en i fvrra; uppsker- an í ár verður um 960.000 smá- lestir, fram yfir árið 1936. Jarðeplauppskeran hefir auk- ist um 59% samanborið við 1936, eða um 100.000 smálestir. Bómullar- og linframleiðsla fór langt fram úr áætlun. — Framleiðsla þessa árs færir samyrkjubændunum — á bvern virkan dag — helmingi meira korn og helmingi meiri peninga en 1936. H. N. 20

x

Sovétvinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sovétvinurinn
https://timarit.is/publication/237

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.