Alþýðublaðið - 16.02.1965, Page 6

Alþýðublaðið - 16.02.1965, Page 6
D* $£5 EZ VIÐ TJÖLDIN FRÚ GUÐRÚN l efur aldrei komið til Mallorca, en frú Sigríður, nágrannakona liennar, er nýkomin þaðan. Frú Guðrún spyr, dálítið öfundsjúk: — Og hvernig var það? — Indælt. — Og hvar er Mallorea eiginlega? — Hef ekki hugmynd um það. Kom þaðan í þotu! — ★ — INN á milli hóstakastanna í kvefinu sí’nu um daginn hafði Johnson Bandrríkjaforseti þó kraft til að koma með einn spádóm: — Ég tel það augljóst, að árið 2000 verði meðaltekjur Banda- ríkjamanna orðnai 720.000 krónur á ári. — ★ — MARGT höfum við heyrt merkilegt um jarðarfarasiði þeirra í Amerík- unni, en hérna kemur ein frásögn, sem kom okkur þó aldeilis á óvart og okkur þykir hugmyndin ekki sérlega smekkleg. Geraíd nokkur McKinney frá Minford í Ohio er ráðinn í að njóta sinnar eigin jarðarfarar á meðan hann er enn á lifi. Hann hefur því boðið ættingjum og vinum til slíkrar hátíðar, sem hann hyggst halda í nánustu framtíð. „oetta verður mjög músíkölsk skemmtun", segir Mr. McKinney, „og ég ætlast til að allir viðstaddir njóti hennar vel“. Það, sem er einna verst við hugmyndina er það, að hann hefur ráðið prest til að koma fram á „skemrmtuninni". — ★ — UM S0% af ibúum Egyptalands reykja nú hið hættulega liashisli og aí þeim sitja nú um 20.000 í fangelsi vegna eiturlyfjaneyzlu. Þessar upplýsingar komu fram í ræðu viðkomandi ráðherra í egypzka þinginu fyrir skemmstu —- og hann bætti við, að í Kairó einni væri notað 3 milljarða króna virði af hashish á ári. ' — ★ — HANN hafði gefið konunni sinni leyfi til að aka bílnum og sat nú við hliðina á henni í ökuferð gegnum bæinn. Hún var ósköp skapæst og sagði: — Eru þeir ekki alveg svakalegir þessir fótgangendur. Þarna þurfa þei-r alltaf að vera að ganga á miðri akbrautinni. Hann klappaði róandi á hönd henni og sagði: — Milla mín, kannski lagaðist þetta nú, ef þú keyrðir út af gangstéttinni. LÍTILL vafi er á því, að svona brúðarkjóll mundi vekja miklar deilur og þaðan af meiri hneykslun, ef hann sæist I venjulegri kirkju, en hætt er við, að það yrði þröng á þingi í þeirri kirkju, ef af slíku yrði. Stúlkukindin hér á myndinni er 25 ára gömul og heitir Nancy Kovack og hún mun koma svona fram í hlut- verki sínu „Big Shirley“ — „sjógörl“ og fyrrverandi flenna — sem hjálpar leynilögreglumanni í starfi hans í myndinni „Shir- Iey“, sem Carroll Baker leikur líka í. Annars skyldi enginn halda, að Nancy þessi sé eitthvert skípi, þó að hún sé svona þokkaleg í laginu. Auk þess að leika í kvikmyndum, þcgar henni bjóðast hlutverk, kennir hún við Kaliforniuháskóla. --♦BMIII!llllllllllllllllllllllWilllllll!llllllilillll!llll]llllillllli!ll!llllll!llllllimmillHlllllll[llllllllllllllllimilllllll!lllil!lllililiSlli'!lili!;i|lll[llll[IHIIlllHlliminilltillllllllllllHllllllllllllllÍÍÍl ÍTALSKUR FJALLABÆR, SEM VAKNAR AF DVALA / 3 VIKUR LITLI bærinn San Giovani In- fiore á suðurodda Ítalíu er nú aftur sokkinn í eins konar dvala sem á eftir að endast allt árið út. AUir ungir menn og flestir hinna eldri eru búnir að kyssa sínar kærustur og eiginkonur og farn HÉLDU FÖNGUM í ÆFINGU Fangaverðirnir í Bassa í Líb eríu gættu þess; að fangarnir kæmust ekki úr þjálfun meðan þeir sætu inni. Þeir voru vanir ,að hileypa föngunum út á nótt- ’unni, og þegar fangamir komu heim aftur í morgunsárið, deildu ábatanum af innbrotum sinum með fangavörðunum. En nú sitja fangaverðirnir líka á bak við lás og slá og yfirvöldin eru að kanna allt ástand fangelsismála í Líb eríu. ir burt til vinnu sinnar í Þýzka landi, Sviss, Frakklandi, Belgíu og Norður ítalíu. Á meðan mennirnir voru heima, eða á tímabilinu milli aðfangadfegskvölds' og, fram á þrettánda, voru haldin 100 brúð kaup i bænum — það voru nefni Iþga 4000 vorkamenn komnir heim til nokkurra daga dvalar. í bænum eru aðeins 18.000 ibúar. Verkamennirnir 4000 komu heim í blómskrýddri aukalest og allir, sem vettlingi gátu vald ið, voru komnir á stöðina til að taka á móti þeim. Næstu daga var haldin hátið; dansað og trú lofazt og gifzt, og enginn hafði tima til að sofa. Bærinn, sem liggur upp í fjöllum, er bláfá- tækur, en nafn hans, sem þýð ir ,,heilagur Jóhannes i blóm- um“, lýsir honum, eins og hann lítur út á^vorin og sumrin. Allt sparifé fjölskyldunnar fer í konfetti og blómsveiga og brúð kaupsveizlur. Meðal annars þarf að leigja bíla til að aka brúð- kaupsgestunum til og frá kirkju. Og svo er þessum gleðitíma er lokiö og tregar kveðjur hafa verið tjáðar er ekki um annað að ræða en bíða þess, að mennirn ir komi heim aftur að ári. Kann ki hefur fjölskyldan stækk að í millitíðinni — en það þýð- ir, að leggja verður enn harðar að sér í námunum eða við hús byggingarnar. En þessa fáu daga kringum á-mótin er ekki til ham ingjusamari blettur á jarðríki en ,,heilagur Jóhannes á blóm- um“ og þess vegna heldur fólk áfram að búa þar, segir í frétt frá San Giovani Infirore. GAMAN, GAMAN. Fyrir skemmstu var tilkynnt að eftirlitsmenn væru væntan legir í heimavistarskóla einn í Mo kva. Við þessar fréttir var kokkinum svo mikið um, að hann hellti öllum sínum ólöglegu birgðum af vodka út í súpupott inn. Niðurstaða: Eftirlitsmennirn- ir mættu slagandi börnum og skælbrosandi kennurum, þegar þmr korhu á plássið. — Ekki er þess geíið, hvað gert var við kokkinn. Fredrick Stare, prófes;or við Harvardháskóla, heldur því fram, að langmest af fitu á amerískum karlmönnum stafi af stolti eiginkvenna þeirra af eíldamennsku sinni. Af þessu til efni hefur hann skorað á amerísk ar húsmæður (og þá jafnframt á allar aðrar):. — Ef þér viljið bjarga hjartai eiginmaims yðar og lengja líf hans, hættið þá hinum alvarlega ávana að frei ta han^ til að fá sér aftur á diskinn! & Pierre Dumas, ferðamálaráð- herra Frakklands, gaf nýlega á ráðuneytisfundi þær óþægilegu upplýsingar, að gróðinn á skemmtiferðaireikningi landsins hefði fallið á sl. tveim árum úr 9 milljörðum króna ofan í 900 milljónir. Þetta er sem sagt munurinn á þvi peningamagni, sem fraþskir fetrðamenn fóru með úr landi og því, sem er- lendir ferðamenn fluttu inn. Áítæðumair taldi hann tvær: annars vegar mjög aukinn straum franskra ferðamanna úr landi og hins vegar hátt verð- lag í Frakklandi. Við þetta má bæta ástæðu, sem TIME nefndi til ekki alls fyrir llöngu, en hún var sú, að geðvonzka franskra þjóna og annarra, sem hafa eitt- hvað annað saman við erlenda ferðamenn að sælda, væri slík að fjöldi fólks þreytist orðið á að heimsækja Frakkland af þeim sökum. Hins vegar leggur Dumas til að reynt verði að ráða bót á þessu máli með þvl að reyna að gera Frakkland að ódýrara ferða mannalandi. & Rússneski liagfræðingurinn Fjodorenko, sem styður hina nýju baráttu mannanna í Kremi] gegn skriffinnskunni, heldur því fram, að verði haldið áfram á núverandi braut, muni opinber ar skrifstofur í Sovétríkjunum þarfnast 100 milljón manna starfsliðs árið 1980. & Mannfræðistofnanir í Was- hingtonháskóla mun á næstunni hefja kennslu i öllum tegundum galdra og tröllskapar. — Þtta kann að hljóma dálítið undarlega en tilgangurinn er sá að gefa stúdentum dýpri innsýn i stjórn málaaðferðir hinna nýju, frum stæðum þjóðum. jsb AMOK í RÉTTINUM. Fyrrverandi undiraðmíráll í ítalska flotanum, 74 ára a5 aldri trylltist í réttarsal í San Remo fyrir nokkru. Hann dró upp skammbyssu, drap réttarþjón og særði fjóra, þeirra á meðal dóm- arann. Áður en lögreglan kom til skjalanna, var hann búinn að hleypa af 24 skotum. Lögreglan skaut aðmírálinn niður og flutti hann síðan í sjúkrahús, þar sem hann var lagður inn. Ifnn var enn með fimm ónotuð magasin í skammbyssuna sína í vasanum. £ 16. febrúar 1965 - ALÞÝ0UBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.