Alþýðublaðið - 28.02.1965, Page 2

Alþýðublaðið - 28.02.1965, Page 2
Kltstjórar: Gylfi Grönflal (áb.) og Beneöikt Gröndal. — KitstjómarfuU- «rul : Eiður Guönason. — simar: 149UU-14S03 — Auglj'slngasiml: 14906. Utgetandi: Albýðuflokkurinn AOsetur: Alþýðuhúsiö við Hverfisgötu, Reykjavik. — Prentsmiaja Alþýðu- tolaðslns. — Askriftargjald kr. 60.00. — 1 lausasölu kr. 5.00 eintakið. MEIRA FÉ TIL VERKA- MANNABÚSTAÐA EIN AF hugsjónum jafnaðarmanna er á þá lund að ríki og sveitarfélögum beri að tryggja öllu landsfólki sómasamlegt húsnæði. Af þessu leiðir, að gera þarf sérstakar ráðstafanir til aðstoð ar þeim, sem hafa minnst efni og lægstar tekjur. Þetta var gert með lögunum um verkamannabú- staði á sínum tíma. Þegar þjóðin komst til bjargálna eftir heims- styrjöldina, hætti mörgum ríkisstjórnum til að gleyma nauðsyn verkamannabústaða, og smám saman var lögð minni áherzla á byggingu þeirra. Lögin urðu úrelt vegna verðbólgu og á tímabilinu 1950—1956 má segja, að verkamannabústaðakerf ið hafi nær lognazt út af. Alþýðuflokkurinn lagði á það megináherzlu í núverandi stjórnarsamstarfi, að verkamannabú- staðakerfið yrði endurlífgað. Voru lögin um þær byggingav endurskoðuð og þau sniðin við hjálp fyr ir þau 10% þjóðarinnar, sem hafa lægstar tekjur. Síðan var allmiklu fé beint til þessara mála og hóf ust byggingar verkamannabústaða um land allt. i Enda þótt mikið átak hafi verið unnið á þessu sviði, telur Alþýðuflokkurinn brýna nauðsyn bera til að gera enn betur. Um land allt bíða mörg hundruð fjölskyldur eftir tækifæri til að eignast íbúðir innan ramma laganna um verkamannabú- staði, en fé vantar enn til frekari lána en unnt hefur verið að veita. Núverandi ríkisstjórn hefur gert mesta átak, sem gert hefur verið í húsnæðismálum íslenzku þjóðarinnar. En því miður hefur ekki tekizt að hreinsa húsnæðismálin af óhóflegri gróðastarf- semi, og virðist til dæmis lóðaúthlutun í Reykja- vík beinlínis vera við það miðuð að hjálpa þeim aðilum, sem hafa húsnæðisskortinn að féþúfu. Það er á almanna vitorði, að braskarar græði eitt til tvö hundruð þúsund á hverri meðalíbúð, sem þeir koma upp og selja hálfgerða. Engin tilraun virðist gerð af bæjaryfirvöldum til að stöðva þessa sví- virðu. Jafnframt því sem íbúðaverð er skrúfað upp, meðal annars vegna þessarar okurstarfsemi, hækkar leiga íbúða, svo að meðalfjölskylda kemst varla í húsaskjól fyrir minna en 5—7 000 krónur á mánuði. Þegar ástand húsnæðismálanna er svona, þrátt fyrir stórátök ríkisins, er nauðsynlegra en nokkru sinni að beina meira fé til verkamannabústaða, sem leysa þörf hinna tekjuminnstu. m^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmm^^^^mmmmmmmmmmmmmm Kúlup ennar skrifa betur — endast lengur. Skrifar um leið og odd- urinn snertir pappírinn. 10 000 METRAR Það er furðulegt en þó satt að blekhylkið 1 BALLOGRAF - Epoca pennunum endist til að draga rétta línu sem er tíu kílómetra löng og alltaf er þessi langa lína hrein og skýr. Tilkynníng Samkvæmt samningum milli Vörubílstjórafélags ins Þróttar í Reykjavík og Vinnuveitendasam- band íslands og samningum annarra sambands félaga verður leigugjald fyrir vörubifreiðar frá og með 1. marz 1965 og þar til öðruvísi verður ákveðið, eins og hér segir: Dv. Ev. Nætur og hdv Fyrir 2Vz tonna vörubifreiðar pr. klst. kr. 122,60 141,70 160,90 Fyrir 2V2 — 3 tonna hlassþ. pr. klst. kr- 137,00 156,20 175,30 Fyrir 3 — 3i4 tonna hlassþ. pr. klst. kr. 151,50 170,70 189,80 Fyrir ZV2 — 4 tonna hlassþ. pr. klst. kr. 164,70 183,80 203,oq Fyrir 4 — 4V£ tonna lilassþ. pr. klst. kr. 176.80 195,90 215,10 Fyrir 4>/2 — 5 tonna hfassþ. pr. klst. kr. 186,50 205,60 224,70 Fyrir 5 — Wz tonna hlassþ. pr. klst. kr. 194,80 214.00 233,10 Fyrir ðVá — 6 tonna hlassþ. pr. klst. kr. 203,30 222,50 241,60 Fyrir 6 — 6V2 tonna hlassþ. pr. klst. kr. 210,50 229,70 248,80 Fyrir 6V2 — 7 tonna hlassþ. pr. klst. kr. 217,80 236,90 256,00 Fyrir 7 — V/2 tonna hlassþ. pr. klst. kr. 225,00 244,20 263,30 Fyrir IV2 — 8 tonna hlassþ. pr. klst. kr. 232,30 251,40 270,50 Landssamband vöruhifreiðastjóra. 2 28. febrúar 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.