Alþýðublaðið - 02.03.1965, Síða 4
Sjáfcmg h.f.
vantar strax flakara og pökkunarstúlkur
í frystihúsið. Ennfremur flatningsmenn
og fólk í skreiðaryinnu.
Fólkið flutt að og frá vinnustað.
Sjótang h.f.
Sími 24980 og 20380.
Barnaverndarnefnd Reykjavíkur
óskar cftir að komast í samband við heimili í Reykja-
vík eða utan Reykjavíkur, sem vilja taka börn til dval-
ar eða fóstur um lengri eða skemmri tíma.
Nánar'. upplýsingar á skrifsofu barnaverndarnefndar
Traðarkotssundi 6, Reykjavík, sími 15063.
Framkvæmdastjórastarf
Á komandi vori verður ráðinn fram-
kvæmdastjóri fyrir Dvalarheimili aldraðra
sjómanna, Hrafnistu.
Væntanlegir umsækjendur sendi umsóknir
sínar til stjórnar Hrafnistu ásamt upplýs-
ingum um menntun og fyrri störf fyrir lok
marz-mánaðar.
Stjórnin.
HÖFUM TIL SÖLU
Verzlunar- og veitingabifreið, með kaffitækjum, frysti-
kistum íssölutækjum, pylsuafgreiðslutækjum, vatns-
kerfi fyrir kalt og heitt vatn og hillur fyrir söluvarn-
ing.
Bifreiðfh er t. d. hentug á síldarsöltunarstöðvum.
SÖLUNEFND VARNARLIÐSEIGNA.
Eignaréttur
Framhald af 3. síðu
Jóhann Hafstein vék nokkrum
orðum a)B stóriðjumálunum og
þá einkum hugsanlegri alúminíum
verksmiðju, og .sagði hann að um
«lík mál mundu gerðir sérsamning
ar, sem Alþingi hlyti að fjalla
sérstaklega um.
Eysteinn Jónsson (F) gagnrýndi
<að ekki skyldi hér um leið hafa
verið fjallað um réttindj útlend-
inga til atvinnufceksturs hér á
landi og taldi jafnframt að setja
: hefði átt ákvæði um hlutafélögin
þannig að 60-80% hlutafjár yrði
að vera í eigu íslenzkra aðila.
Þórarinn Þórarinsson (F) taldi
nauðsyn bera til að ,sett yrðu lög,
1 -stm bönnuðu útlendingum með
öllu að eiga eða reka hér á landi
fiskvinnslustöðvar.
Einar Olgeirsson (K) lagði á-
herzlu á 'að breyta bæri gildandi
lögum um þessi efni- Benti hann
á að jarðir hér á landi ættu eft
ir að stiga mjög í verði á næstu
árum, og bæri því að stemma
stigu við því að útlendingar gætu
keypt upp jarðir hér. á landi.
Málinu var að því búnu vísað
til 2. umræðu og nefndar.
Merkjasala
Frb. af 16. sfðu.
lagsins. Þau munii einnig bjóða til
sölu sérstakár lyklakippur, með
snortum rauðum krossi. Merkin
kosta 10 kr., lyklakippumar 25.
Rauði krossinn treystir því 'að borg
arbúar taki vel á móti bðrnunum,
og þeir er búa í stórhýsum og
hafa dyrasíma, eru vinsamlega
beðnir að greiða götu þeirra, svo
að þau komist inn.
Frá rithöfunda-
samb. islands
Reykjavík, 18. feb. 1965.
AF marggefnu tilefni og vegna
stöðugs misskilnings um félags
samtök rithöfunda vill stjórn Rit
höfundasambands íslands vekja
athygli á því, að sambandið er
heildarsamtök íslenzkra rithöf-
unda og Rithöfundafélag íslends
Er Rithöfundasambandið mál-
svari beggja félaganna út á við
og annast sameiginlega málefni
rithöfunda.
Sambandið hefur skrifstofu á
Klapparstíg 26, og er hún opin
daglega kl. 3-5.30 e.h. Starfsmað
ur sambandsins er Kristinn Ö.
Guðmundsson hdl- Veitir hann
allar upplýsingar um félagssam
tökin, fyrir rithöfunda varðandi
réttindamál þeirra og skyld efni.
Er rithöfundum frjálst að snúa
sér til skrifstofunnar, ef þeim
er einhver vandi á höndum, sem
þeir télja, að hún geti leyst úr.
F.U.J.
Klúbbfundur í kvöld.með Guð
jóni B. Baldvinssyni ritara verka
lýðsmálanefndar Alþýðuflokksins
félögum er bent á að hann hefst
kl. 9 stundvíslega.
S-VÍETNAM
Framh. af bls. 3.
haldi í dag þremur leiðtongum
búddahreyfingar, sem krefst vopna
hlés í Suður-Vietnam. Þ.remenn-
ingarnir voru handteknir eftir
mótmælaðgerðir í gær.
Hreyfingin er undir forystu
búddamunksins Thich Quang Lien,
sem hlaut menntun sína í Vale-
háskóla í Bandaríkjunum. Hann
sagði í dag, að þeir þrímenning-
arnir hefðu ekki verið handteknir
þar eð þeir væru í samtökum
hans heldur þar eð þeir væru fé
lagar í svokallaðri Sjálfsákvörðun
árréttarfylkingu.
Þessi hreyfing krefst einnig
vopnahlés og lögreglan segir að
hún sé kommúnistísk.
Lien Sagði, að helztu leiðtogar
búddatrúarmanna gætu sætt sig
við friðarhreyfingu hans, en enn
hefði hún ekki fengið opinberan
stuðning. Hann kvaðst ræða við
forsætisráðherrann um tillögu
sína um, að styrjöldinni verði hætt
og landið sameinað Norður-Víet-
nam. Hann.kvaðst fús til að verða
milligöngumaður stjórnanna í Sai
gon og Hanoi, ef á það yrði falllzt.
Hreyfing Liens vill að hermenn
kommúnista og bandarískir her-
menn fari frá Suður-V etnam og
Rússar og Kínverjar fari frá Norð
ur-Víetnam.
Lesið Alþýðubiaðið
Áskriffasíminn er 14900
Ekkert gjald hefur verið tekið
fyrir slíka þjónustu. Sími skrif-
stofunar er 13190.
Stjórn Rithöfundasambands-
íslands skipa nú: Stefán Júlíus-
son formaður, Kristján Bender
varaformaður, Indriði Indriðason
ritari, Sigfús Daðason gjaldkeri
og Ingólfur Kristjánsson með-
stjórnandi. Varamenn eru: Matt
hías Jóhannesson og Jón úr Vör-
Barnavernd
Framhald. af 16. siðu.
tillögum nefndarinnar, en af þeim
er þessar helztar:
Lagt er til að hafa megi sam-
eiginlegar barnaverndamefndir
þar sem sveitarfélög eru lítil.
Fellt er burt aldurshámark, sem
gilt hefur um þá sem mættu starfa
í barnaverndarnefndum. Lagt er
til að barnaverndarráð verði hér
eftir skipað af ráðherra án til-
nefningar.
Samkvæmt tillögu kennarasam-
takanna er lagt til að komið verði
á fót sérstofnunum fyrir börn sem
ýmissa hluta vegna eiga ekki sam
leið með jafnöldrum sínum. Á-
kvæði um að samið skuli um með
lag með börnum, sem barnavernd
arnefndir ráðstafa skuli fellt nið
ur, en í stað þess komi fastákveð
in upphæð miðuð við barnalífeyri
eins og hann er á hverjum tíma
Þá eru í tillögum nefndarinnar
ákvæði um liámarksvinnutíma-
barna, en Benedikt benti á að um
þetta efni þyrfti sérstaka löggjöf,
ef vel ætti að vera. Breyting yrði
smátt og smátt að eiga sér stað á
barnavinnunni, og yrði hún að kom
ast á skref fyrir skref. Sett eru
ákvæði á þá lund um hámarks-
vinnutíma barna yngri en 14 ára,
að hann skuli vera helmingur af
áratölu þeirra, en hámarksvinnu-
tími unglinga 14—16 ára skull
vera 8 stundir án undantekninga.
Þá er í tillögunum gert ráð fyrir
að börnum verði bannað að vinna
við uppskipun og byggingarvinnu.
Nefndin leggur til, að reglur um
útivist barna verði samræmdar, og
bætt er inn í ákvæði um að Ríkia
útvarpið skuli bera ábyrgð á efnl
þeirra kvikmyuda, sem sjónvarpað
kann að verða.
Ingvar Gíslason (F) kvaðst
harma, að ekki skyldi að finna 1
tillögum nefndarinnar ákvæði um
að kvikmyndaeftirlit skyldi einnig
ná til sjónvarpsins í Keflavík.
Benedikt Gröndal (A) kvaðst
vera þeirrar skoðunar að ákvæðt
um mál er vörðuðu varnarliðið
ættu að vera í varnarsamningnum
en ekki drehfð í íslenzkri löggjöf.
Lúðvík Jósefsson (K) sagði mörg
góð ákvæði í breytingartillögum
nefndarinnar, en taldi að bæta
þyrfti starfaðstöðu barnaverndar-
nefnda, ef ákvæði um vinnutíma
barna ættu að verða annað en laga
bókstafur.
Breytingartillögur nefndarinnar
voru allar samþykktar og málinu
vísað til 3. umræðu.
ZORIN
Framhald af 3. síðu.
nýja Indó-Kína-ráðstefnu. Vinogra
dov hafði afhent de Gaulle tillög
una er þeir ræddust við á þriðju
daginn og að sögn Peyrefitte upp
lýsingaráðherra kvaðst forsetinn
hlynntur sameiginlegum aðgerð-
um landanna til að koma á friðl
í Indó-Kína. Talið er, að franska
svarinu sé í aðalatriðum tekið vel
i sovézku tillöguna.
* BILLINN
Bent an Icecar
Sími 1 8 8 3 3
4 2. marz 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ