Alþýðublaðið - 05.03.1965, Side 7

Alþýðublaðið - 05.03.1965, Side 7
[SHÍtlS!£!Dnn!ll1!Ilt!l!ini!llll!!L!!!inR[lini[tini!íl!ii!i!i!ll3HlilÍH!1in'IítlllllDIlIll!!iQII!1!1!l!1lli!l!l!i]![lilli!IU[lllilll[!iiil3IUS1!ur.-!!!;i!i!!lllMlllll!l!lll!niilili!!IUII!l![U!l!!l!pii:.:>ii:-l!9 Skipverja bjargaö af þyrlum 13. febrúar 1965 kviknaSi i gufuskipinu City of Waterford, þar sem þaS var statt skammt undan Englandsströndum. Þyrlur og slökkvibátar komu skjótt á vettvang og björguðu áhöfninni; þyrlurnar þeim, sem verst höfðu brunnið. Eldurinn kom upp í vélarúminu og brátt var eldurinn orðinn það mikill, að áhöfnin fékli ekki við neitt ráðið, og yfirgaf skipið. Þrír rnenn voru mjög mikið brenndir og voru þeir fluttir með þyrlum á sjúkra- hús í Englandi. Myndin sýnir, þegar einn af skipverjunum var dreginn upp í þyrluna. BYGGIN6 ORLOFSHEIM- ILIS A.S.Í. í ÖLFUSI HILMAR JÖNSSON: VIZKAN OG RITDÖMARINN Almennt mun nú viðurkennt að Einar Benediktsson hafi verið eitt mesta skáld Islendinga bæði fyrr og síðar; eigi að síður er það etaðreynd að um fáa menn var á íslandi skrifað eins mikið níð. Minnast menn einkum í því sam bandi ritdóms Valtýs Guðmunds- sonar, sem birtist í hinu víðlesna. tímariti hans Eimreiðinni einmitt á þeim tíma, þegar Einar stóð á hátindi sinnar listrænu sköpunar. Astæðan fyrir því tómlæti og níði sem samtímamenn Einiars sýndu honum sem skáldi og spámanni H(6nMv8«vt9gcf0fr alladaoa laucmu>aOA INNUDAGA) KL.»HL». ttMMld RoyltjMik. mun vafalítið hafa stafað af tvennu: í fyrsta lagi var Einar all mikill umsvifamaður og átti þá til að senda háum sem lágum mein yrtar kveðjur. Samt sem áður átti Einar einlæga aðdáendur sem ekki hikuðu við að telja hann í flokki stórskálda og nú voga jafnvel at- ómskáld ekki að kasta steini að minningu hans. Því rifja ég upp þessa sögu hér um Einar Benediktsson og hinn djúpa heimspekilega skáldskap hang að ég fæ ekki betur séð en þau skáld, sem í dag leita hinna hinztu raka, að þau skáld sem vilja gefa okkur eilíf verðmæti — að þau skáld sæti sizt betri með- ferðar af hálfu nútímans en. Ein ar Benedlktsson hlaut hjá sínum samtímamönnum. Þannig las ég grein, sem af illvilja og hvatvisi fer tvímælalaust i sama flokk og hinn alræmdi Eimreiðardómur Val týs. Og mest sárnaði mér að sjá Alþýðublaðið flytja lesendum sín um slíkan hatursboðskap- Er þá átt við ritdóm Ólafs Jónssonar um Raddir morgunsins eftir Gunnar Dal. Gunnar Dal hefur skrifað all- margar bækur; Eru það ljóð og heimspekirit. Ljóst er af heim- spekibókum Gunnars að hann hef ur kynnt sér allrækilega indverska 'íjríska og pvrópskft heimspeld. Er litill vafi að bók hans um Sókrates er í flokki ýtarlegustu fræðibóka um uppruna griskrab heimspeki. Enda hikaði Jónas Jóns son ekki við að telja höfundinn eftir útkomu þeirrar bókar vcrð- ugan arftaka Helga Pjeturs. Þvi miður -hefur enginn hinna stælrri útgefendaf annazt úl(gá(fu heim- spekibóka Gunnars að einni und anskilinni. Þykir mér sennilegt að hinn illskeytti ritómur Ólafs sé saminn í því augnamiði að girða íyrir breytingu í þeim efnum í framtíðinni- Ég gat þess í upphafi þessarar greinar að Einar Bene- diktsson hefði. sem skáld verið lát inn gjalda dómhörku sinnar um náungann. Sú er raunin inn frænda hans Gunnar Dal. Sem ungur og vígdjarfur maður hefvtr Gunnar sagt ýmsum til syndanna, sumum án saka. Er skemmzt að minnast þáttar hans 1 kjördæma málinu 1959. Þá hefur hann — og það er kannski þyngzt á met unum — sent skoðanabræðrum Ólafs kaldar kveðjur. Hitt skipt ir höfuðmáli að Gunnar ber nú höfuð og helrðar yfir jafnaidra sína sem skáld og fræðimaður. Koma mér sérstaklega í hug hin fögru ljóð hans: Á jólanótt, Hryn ur lauf, Himinn. Þau kvæði er öll að finnaj í Októberljóðum. Víkur nú sögunni að síðustu bók han?v, Röddum motrgunsins. Að Frh. á 10. síðu. Hr. ritstjóri. AÐ undanförnu hafa birzt í viku- blaðinu „Ný vikutíðindi* og flest- um dagblöðum bæjarins greinar vegna byggingar Orlofsheimilis ASÍ í Ölfusi fyrir Alþýðusam- band íslands, en bygginguna hef- ur annast Byggingafélagið Snæ- fell hf. Eskifirði. Ýmissa missagna og misskiln- ings gætir í umræddum grein- um, enda hefur ekki verið látið svo lítið að afla upplýsinga um þetta mál hjá undirrituðum fram kvæmdastjóra félagsins. Með bréfi frá ASÍ til Bf. Snæ- fell h. f., dags. 13. jan. 1965, er byggingarfélaginu tilkynnt, að ASÍ sjái sig tilneytt að taka verk- ið af okkur og ljúka þvi sjálft á kostnað byggingarfélagsins. Á- stæðan fyrir þessari ákvörðun ASÍ er talin vera fyrst og fremst vanefndir á samningum, svo sem óhóflegur dráttur á að ljúka verk inu, verulegar vanefndir á greiðslu vinnulauna, greidd veru leg fjárhæð umfram það sem samningur áskilur fyrir það verk sem unnið hefur verið og jafnvel hætta á, að trygging sú, er sett var fyrir verkinu fullnægi ekki kröfum ASÍ í þessu efni. — Skal nú hverri þessari ástæðu ASÍ fyrir að taka verkið af Snæ- felli h. f. svarað í stuttu máli. I Ti' Óhóflegur dráttur á að ljúka verkinu. Allir sem að verkinu hafa unnið vita hvað valdið hefur, að ekki var unnt að ljúka því á tilsett- um tíma. í fyrsta lagi var jarð- vegur undir húsunum mun gljúp- ari en reiknað hafði verið með. Verulegt missig kom fram á sökklum húsanna, sem olli mik- illi og kostnaðarsamri fyrirhöfn. Á meðan athugun verkfræðinga ASÍ fór fram á því hvað gera skyldi til úrbóta í því efni var vínna stöðvuð af verkfræðingi ASÍ frá miðjum janúar 1964 fram í byrjun apríi 1964, við byggingu húsanna. Upphaflega voru grafnir skurðir fyrir vatns- hita- og skolplagnir og ráðgert að þær lagnir kæmu allar i sama skurðinn. Mikil óvissa var um heita vatnið, sem fyrirhugað var að hita húsin með. Verkfræðing- ar ASÍ vildu því ekki leyfa að hitalögn, yrði lögð strax eða með- an á athugunum um heita vatnið stóð. Ákvörðun ASÍ um lagnir hitaveitu kom loks um miðjan júlí 1964 eða siðar en öilu verk- inu átti að vera lokið. Þá kom og í ljós, að ekki var hægt að nota sömu skurði fyrir hitalögn og vatns- og skolplagnir lágu í, og varð því að grafa nýja. Þegar fyrirsjáanlegt var, að mikill dráttur yrði á hitaveitunni, fór verkfræðingur Snæfells h.f. fram á það, að við mættum loka skurð- um á byggingarsvæðinu, sem áð- ur höfðu verið grafnir og ASÍ léti grafa nýja vegna hitaveit- unnar á sinn kostnað, en það var ekki samþykkt af ASÍ. Skurð ir voru því opnir allan tímann: um vinnusvæðið meðan unnið var að byggingu húsanna og inn réttingu og olli það miklum töf-: um, af því að allt efni til hús- anna varð að bera á höndum yfir skurðina. Auk þess orsökuðu þessir skurðir það, að ekki var unnt að vinna að frágangi lóða eða hellulögn við húsin. Loksina hinn 4. desember 1964 kom hiti í öll húsin. Verulegar vanefndir á greiðslu vinnulauna. Hér er ekki rétt með farið, og er það hryggilegt, að forseti ASÍ, Hannibal Valdimarsson, skuli láta hafa það eftir sér í Morgun- blaðinu 27. febrúar s. 1., að Snæ- fell h. f. skuldi verkamönnum sem að byggingu húsanna unnt* stórfé og næmi sú skuld jafnvel- hundruðum þúsunda króna. Hif) sanna í málinu er, a'ð Snæfell hf. skuldar vinnulaun vegna um- ræddra framkvæmda alls rúm- lega eitt hundrað þúsundir kr. en vinnulaun voru ætið greidd á tilsettum tíma á meðan fram- kvæmd verksins stóð. Skuldin er vegna vinnu síðustu 2 vikurnar fj'rir jól. Greidd veruleg fjárhæð umfram það sem samningur áskilur. Hér er ekki rétt með farið. Um- framgreiðsla ASÍ nemur lítilli upphæð eða engri, og er pú reiknað með aukareikningum frá Snæfelli hf. vegna tafa. Þess- ir tafareikningar eru réttmæiir, en hafa tæplega fengizt ræddir við forráðamenn ASÍ. í þessU sambandi visast til orsaka tafa við framkvæmd vcrksins hér á& framan. j ' ' '■ ■ Framhald á 10. síðu. , ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 5. marz 1965 J

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.