Alþýðublaðið - 21.03.1965, Page 2
■Itttjörar: Gylfl Gröndal (6b.) og BenedlKt GröndaL — Rltstjörnarfull-
"Tttl : Elöur Guönason. — s>mar: 14X00-14803 — Áugiyslngasiml: 14808.
Utgefand*: AlÞýauflokkurinn
ABsetur: AlþýauhusiB viB Hverflsgötu, ReykjavlK. — Prentsmiöja AlþýBu-
ttiaösms. — Askrlftargjald kr. 80.00. — 1 lausasölu kr. 5.00 elntakiö
Áburðarverksmiðjcm
3>VÍ var haldið fram í forystugrein Vísis fyrir
nokkrum dögum, að Áburðarverksmiðjan væri sér-
stakt þjónustufyrirtæki, á borð við rafmagnsveit-
ur, Sementsverksmiðju og Landssíma, og því sé
eðlilegt, að hún verði ríkisfyrirtæki að fullu. Er
með þessari fullyrðingu reynt að breiða yfir mis-
mun á málflutningi ritstjóra Vísis, sem hampar
einkarekstri og því, sem landbúnaðarmálaráðherra
segir, að sjálfsagt sé að verksmiðjan verði að fullu
eign ríkisins.
Áburðarverksmiðjan og Sementsverksmiðjan
eru síður en svo sérstök þjónustufyrirtæki, frekar
en önnur íyrirtæki, sem framleiða fyrir innlendan
- markað Hins vegar er Áburðarverksmiðjan eitt
af fáum stórfyrirtækjum okkar, og ein á sínu sviði
og því sjálfsagt og eðlilegt að hún sé eign ríkisins.
i. Tilgangslaust er að nefna tölur um hlutafjár-
eign og verðmæti verksmiðjunnar í sömu andrá,
því það er tvennt ólíkt. Einkaaðilar eiga talsvert
í hlutafélagi verksmiðjunnar, og er hlutafjáreign-
in alls ekki í samræmi við núverandi verðmæti
verksmið j unnar.
Ef ríkið ætlar að kaupa hluti einstaklinga og
Sambands íslenzkra samvinnufélaga, sem einnig á
allverulegan hlut í Áburðarverksmiðjunni, hlýt-
•ur óhjákvæmilega að vakna sú spurning, hvort
hlutabréfin verði keypt á nafnverði að viðbættum
hæfilegum vöxtum, eða hvort miðað verður við
; það verð, sem verksmiðjan mundi kosta í dág.
Styrr hefur staðið um, hvort hlutafélagið, sem
sett var á laggirnar við stofnun verksmiðjunnar,
sé eignarhlutaféiag eða aðeins rekstursfélag. Að
sjálfsögðu veltur mikið á, hvor skýringin verður
ofan á, og kemur að líkindum til kasta dómstól-
anna að skera úr um það, ef ákveðið verður að
' verksmiðjan verði ríkisfyrirtæki að fullu.
Skipulagning
• MORGUNBLAÐIÐ beinir þeirri spurningu til
Alþýðublaðsins, hvaða breytingu í framleiðsluhátt-
um landbúnaðarins blaðið eigi við, þegar í for-
ustugrein var vikið að því, að spara mætti á liðn-
um „útflutningsuppbætur vegna landbúnaðarfram-
leiðslu“, rem nú nemur 180 milljónum króna.
Þessu er auðsvarað. Til dæmis mætti skipu-
leggja byggingu mjólkurbúa og framleiðsluaukn-
ingu mjólkur þannig, að hún haldist í hendur við
fólksf jölgan innanlands. Mætti vafalaust með þessu
spara mikið fé og losna um leið við að greiða
milljónir með útfluttu mjólkurdufti. Þetta hefur
ekki verið gert, en þyrfti að gera.
mV'X '-v. - :' ■■•- ;
2 ,21. marz 1965 - AU>.Ýf)UBLAÐIÐ
M.s. GULLFOSS - sumaráætlun 1965
Frá Kaupmannahöfn
Frá Lcith
Tii Reykjavikur
8/5 22/5 5/6 19/6 3/7 17/7 31/7 14/8 28/8 11/9 25/9
10/5 24/5 7/6 21/6 5/7 19/7 2/8 16/8 30/8 13/9 2/79
13/5 27/5 10/6 24/6 8/7 22/7 5/8 19/8 2/9 16/9 30/9
Frá Reykjavík
Frá Leith
Til kaupmannahafnar
17/4 15/5 29/5 12/6 26/6 10/7 24/7 7/8 21/8 4/9 18/9 2/10
— 18/5 1/6 15/6 29/6 13/7 27/7 10/8 24/8 7/9 21/9 5/10
22/4 20/5 3/6 17/6 1/7 15/7 29/7 12/8 26/8 9/9 23/9 7/10
- DRAGIÐ EKKÍ AÐ TRYGGJA YÐUR FARMIÐA
H.f. Eimskipafélag íslands
FARÞEGADEILD — Sími 21460
Lágmarksverð á
fersksíld ákveöið
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins úrskurðaði á fundi í
gær eftirfarandi lágmarksverð á
fersksíld veiddri við Suður- og
Starfsfræðslu-
dagurinn
er í dag
Á TÍUNDA alinenna starfs-
fræðsludeginum, sem haldinn verð
ur í Iðnskólanum í dag, sunnu-
dag, verða kynntar um 170
starfsgreinar, skólar og stofnanir
Þar af eru tuttugu og ein ný grein.
Meðal þeirra eru til dænois;
kvikmyndagerð, sjónvarpstækni,
ónæmisfræði, veirufræði, fræðslu
sýning byggingarefnarannsókna,
blaðaljósmyndun, tízkuteiknun( og
endurskoðun. Að venju verða
heimsóttir fjölmargir vinnustaðir
og verða strætisvagnaferðir frá
Iðnskólanum til þeirra. Húsið verð
ur opið almenningi frá 2-5. Að upp
setningu starfsheita og að öðrum
undirbúningi unnu auk fagmanna
nemendur 6. bekkjar Verzlunar
skólans, og nemendur úr Gagn-
fræðaskóla verknáms. Stjórnandi
starfsfræðsludagsins er að venju
Ólafur Gunnarsson, sálfræðingur.
Vesturland, þ. e. frá Hornafirði
vestur um að Rit, fyi-ir tímabil
ið 1. marz tii 15. júní 1965.
Sild til heilfrystingar, söltunar
og flökunar pr. kg. kr. |156.
Verð þetta miðast við það magn
er fer tii vinnslu. Vinnslumagn
telst innvegin síld( að frádregnu
því magni, er vinnslustöðvarnar
skila í síldarverksmiðjur. Vinnslu
stöðvarnar skulu skila úrgangs
síld í verksmiðjur seljendum að
kostnaðarlausu, enda fái seljend
ur hið auglýsta bræðslusíldarverð.
Þar sem ekki verður við kom
ið að halda afla báta aðskildum
í síidarmóttöku, skal sýnishom
gilda sem grundvöllur fyrir hlut-
falli milli síldar til framangreindr
ar vinnslu og síldar til bræðslh*
milli báta innbyrðis.
Síld ísvarin til útflutnings í skip
og síld í niðursuðuverksmiðjuii
pr. kg. kr. 1.40.
Verð þetta miðast við innvegl®
magn þ.e. sildina upp til liópa*
Síld til skepnufóðurs, pr. kg,
kr. 1.00. !
Verðin eru öll miðuð við, aS
seljandi skili síldinni á flutninga
tæki við hlið veiðiskips.
Reykjavík, 19. marz 1965. |
Verðlagsráð sjávarútvegsins I
HÁSETAR
óskast á bát, sem er að hefja róðra.
Upplýsingar í síma 92-1364 í Keflavík.
Jón Gíslason s.f.
Benzínsala - HjólbarðaviðgsrSlr
1 yðar þjónustu alla daga.
Opið frá kl. 8—23,30.
Hjólbarðaverkstæðió Hraunholt
liornið á Lindargötu og Vitastíg. — Sími 23-900.