Alþýðublaðið - 21.03.1965, Qupperneq 4
Jafnvægi í byggb Bretlands
JAFNVÆGI í byggð landsins,
íbúðabyggmgar og verðbólga ■eru
i>au vandamál, sem al'þýða manna
í Bretlandi hefur hvað mestar
éhyggjur af bessa daga, enda þótt
íyrirsagnir blaða séu þar oftast
um önnur og ævintýralegri mál-
Cfni. Því meira sem rætt er við
fcjrezka stjórnmálamenn, émbættis-
■menn og fólk af ýmsum stéttum,
4>ví augljósara verður, hve mikil
áiierzla er lögð á þessi mál.
Bretar hafa sem betur fer ekki
jbúið sér til orðtak, er jafngildir
-tlfinum gatslitiia húsgangi okkar,
„jafnvægi í byggð landsins". Þeir
íiota oft annað orð, sem er öllu
Shrifameira: Atvinnuleysi.
'í Norður-Englandi, Wales, Skot-
-Jandi og Norður-írlandi eru stór
-svæði, þar sem atvinnuíe.vsi er
Vfíikið, og nokkur svæði, «em eru
;>smám saman að fara í eyði. Frá
<>essum svæðum streymir unga
' fólkið til Lundúna og Suður-Eng-
;4ands.
Brezk stjórnarvöld hafa gert
rnjög skeleggar ráðstafanir til að
spyrna við þessarí þróun. Þau hafa
4ýst ýmis svæði „uppbyggingar-
svæði“, en ekki má lengur kalla
<>au „ki-eppusvæði“. Er þeim fyrir-
lækjum veitt margvísleg aðstoð,
sem setia þar upp verksmiðjur eða
annan atvinnurektsur. Þau fá beina
ibyggingastyrki frá ríkinu, skatta-
ftlunnindi og fleiri friðindi.
Þetta er þó ekkí látið nægja.
'Bretar hafa fyrir löngu afnumið
Ihaftafargan stríðsáranna, en þeir
iöldu fjárfestingu atvinnuvpga ekki
4>ar á meðal. Jafnvel íhaldsflokkur-
Ir.n hélt fast í þá skipan, sem tíðk-
ast enn, að ekki má reisa atvinnu-
fyrirtæki yfir vissri lágmarksstærð,
nema fá til þess fjárfestingarleyfi
frá viðskiptamálaráðuneytrnu. —
Þessi leyfi eru að jafnaði ekki
veitt í London, heldur aðeins á
„uppbyggingasvæðum" landsins.
Þannig er nýjum iðnaði oeint til
atvinnuleysissvæðanna. Þætti slík
stjórn einhvers staðar hörð hafta-
stefna, en þetta hefur jafnvel
íhaldsflokkurinn í Englandi not-
að til að stuðla að skynsamlegri
byggð í landinu.
Nú er verið að efla áætlunar-
gerð í hinum ýmsu héruðum til
að bæta atvinnulíf þeirra. Þessa
daga fjallar brezka þingið til dæm
is um frumvarp til laga um upp-
byggingu skozku hálandanna og
eyjanna. Þetta er sá hluti Bret-
lands, sem hvað mest líkist Islandi,
og er fróðlegt að sjá, hvernig ætl-
unin er að efla þar atvinnu- og
félagslíf.
Frumvarpið gerir ráð fyrir 7
manna uppbyggingaráði og all-
stórri ráðgjafanefnd því til aðstoð-
ar. Þetta ráð á ekki aðeins að
gera tillögur, eins og allar nefnd-
irnar hjá okkur, heldur er því ætl-
að að kaupa land eða taka eignar-
námi, nota það sjálft eða fá það
öðrum. Ráðið má setja á stofn fyr-
irtæki í iðnaði, viðskiptum eða
hvaða öðrum atvinnuvegi sem það
vill, eiga og reka slík fyrirtæki.
Það má veita styrki eða lán í sama
tilgangi, auglýsa héruð sín eða
lokka til þeirra nýja starfsemi á
annan hátt.
Þannig fær uppbyggingaráðið
mjög mikið eg víðtækt vald og
því er ætlað fé beint úr ríkissjóði,
15 milljónir króna fyrsta árið, síð-
an um 120 milljónir á ári. Auk
þess má ráðið nota lánsfé og mun
að sjlfsögðu gera það.
Húsbyggingamálin eru Bretum
enn erfið, þótt mikið hafi verið
byggt og nýjar borgir reistar.
'Sveitarfélög taka mun meiri þátt
í þessum málum en fcér heima og
yfirleitt leigja þau ibúðir sínar.
Samt er til hörmulegt einkahrask
með íbúðir, aðallega í Lundúnury,
þar sem nýleg skýrsla til stjórnar-
innar sýndi, að 500.000 íbúðir hafa
ekkert vatnssalerni. Stjórn Harold
Wilsons er að brýna brandana
þessa daga og hyggst leggja til at-
lögu í þessu máli. Þarf ekki að ef-
ast um, að það verður mikið rætt
fyrir næstu kosningar, hvort sem
þær verða í haust eða síðar.
Þrátt fyrir vanda ibúðamálanna
vekur það athygli þeirra, sem
kynna sér, hversu gífurlega hefur
verið byggt í Bretlandi, síðan
ófriðnum lauk. Margur gamalfræg-
ur sögustaður reis úr rústum sem
fögur nútímaborg úr gleri, steini
og stáli, þótt reynt væri að varð-
veita þær fornu byggingar, sem
uppi stóðu.
Áberandi er, hve Lundúnir eru
að breytast vegna skýkljúfa, sem
þar rísa hver öðrum glæsilegri. Nú
er svo komið, að leigjendur vant-
ar og nýtt húsnæði stendur autt,
meðan enn þarf að auka íbúða-
byggingar. Verkamannastjórnin
hefur því lagt fram frumvarp þess
efnis, að í Lundúnum og nágrenni
megi ekki reisa skrifstofubygg-
ingar nema að fengnu fjárfestinga
leyfi. Hefur það frumvarp ekki
valdið úlfaþyt í samanburði við
ýmsar aðrar ráðstafanir Wilson-
stjórnarinnar, þótt það leggi höml-
ur á bíssnisfrelsið.
Verðbólgan er áhyggjuefni í
Bretlandi eins og alls staðar ann-
ars staðar. Styrkir til bænda liafa
verið auknir og verð á mjólk hækk
að, en. b»ndlr eru hinir verstu, af
því að ekki er gert þrisvar sinn-
um meira fyrir þá. Tala þeir um
mjólkurverkfall. en þykir það ekki
vænleg og heldur gamaldags bar-
áttuaðferð. Síðasta hugmynd bænd
anna er að aka traktorum sínum
hægt um aðalvegi Suður-Englands.
Mundu þeir þannig valda stórfelld-
um, umferðatruflunum og setja
landið á annan endann! Fréttist
sjálfsagt áður en langt um líður,
hvort þeir gera alvöru úr svo ný-
stárlegri mótmælaaðferð. En það
er sannarleea velmegunarmerki,
að helzta leiðin til að vekja athygli
á sér- í Bretlandi nútímans er að
trufla bxfreiðaakstur fólksins út í
sælu sveitanna!
Benedikt Grondal
skrifar um helgina
FOSTURMOLD
Að undanförnu befur Leikfélagió Gríma sýnt Fósturmold eftir Guð-
tnund Steinsson. Nú er ein sýning eftir á verkinu og verður hnn
næstkomandi mánudagskvöld. Fremst á myndinni eru FIosi Ólafsson,
Leifur Ingvarsson og Erlingur Gíslason í lilutverkum sínum.
Jón Arnþórss. framkvæmda-
Þá barst félaginu peningagjöf
frá ættingjum Nínu Sæmundsson
og var samþykkt að stofna bygg-
ingarsjóð Myndlistarfélagsins er
bera skal nafn listakonunnar.
í stjórn voru kosln: Formaður:
Finnur Jónsson, gjaldkeri: Helga
Weisshappel. Ritari: Pétur Frið-
rik. Meðstjórnendur: Eggert Guð-
mundsson og Sveinn Björnsson.
í sýningarnefnd voru valin:
Helga Weisshappel formaður.
Sveinn Björnsson, Jón Gunnars-
son, Sigurður Árnason, Pétur
Friðrik. — Þorlákur Haldórsen,
varam., Eggert Guðmundsson
varamaður.
Að lokum var kosin þriggja
manna framkvæmdanefnd, en í
henni eiga sæti Freymóður Jó-
hannesson sem jafnframt er for-
Nína Sæmundsson, myndhöggvari,
vinnur við eina af myndum sínum,
Hafmeyjuna.
Á aðalfundi Myndlistarfélags-
ins sem haldinn var 15. marz sl.
var Jón Arnþórsson ráðinn fram-
kvæmdastjóri félagsins.
maður og með honum Sveinn
Björnsson og Pétur Friðrik.
4 21. marz 1955 - ALÞÝÐUBLAÐID
Það eru þrír bilar í Happ-
drætti Alþýðublaðsins —
tveir Volkswagen og einn
Landrover: Miðinn kostar
aðeins 100 krónur og gildir
I tveimur dráttum:
Látið ekki HAB úr hendl
sleppa!
Tryggið ykkur miða I
síma 22710.
THELMA
Framh. af bls. 1.
allir frá Birger Christiansen,
sem hefur verzlun sína á
Strikinu í Kaupmannahöfn.
Eru skinnavörur hans þekktar
um allan heim og sýndar á
tízkusýningum heimshornanna
á milli. Fulltrúi fyrirtækisins
With, mun kynna sýninguna
hér.
Fyrir utan Thelmu munu ,3
aðrar stúlkur sýna, eru þær
allar fyrrverandi fegurðar-
drottningar, svo ekki er að
efa að hópurinn verður glæsi-
legur. Þær flíkur sem hér
verða sýndar eru ekki til sölu,
en hægt er að panta eftir
þeim.
Þessi tízkusýning er aðeins
einn liður í fjölbreyttri
skemmtiskrá á samkomu
Hringsins sem verður á
fimmtudag næstk. og hefst
með borðhaldi kl. 19. Allir eru
velkomnir á skemmtunina sem
hafa þá forsjá að kaupa miða
og láta taka frá borð í tíma.
Aðgöngumiðasala og borðpant
anir verða í anddyri súlnasaí-
arins á mánudag milli kl. 15
og 17.
Pússningarsandur
Heimkeyrður pússningarsandur
og vikursandur, sigtaður eða
ósigtaður við húsdyrnar eða
kominn upp á hvaða hæð sem
er, eftir óskum kaupenda.
SANDSALAN sf. við Elliffavof.
Súni 41920.