Alþýðublaðið - 21.03.1965, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 21.03.1965, Blaðsíða 13
SELJUM Á MORGUN og næslu daga nokkrar gerðir af ENSKUM KVENSKÓM fyrir kr. 298,00. ★ SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR laugavegi100 KJÖRGARÐUR, Skódeild Laugavegi59 KÍNVERJAR Framhald. af 16. síðu. að við komu þeirra til Peking. í Tass-frétt segir, að stúdentarnir hafi ekki verið veikir eins og Kín- verjar hafi sagt, heldur hafi veik- indi þeirra verið látalæti ein og sett á svið. Flugstjórinn í flugvélinni, sem Kínverjarnir ferðuðust með, segir að þeir hafi verið við beztu heilsu alla leiðina, en eftir að flugvélin hafi verið lent, hafi þeir verið sett- ir á sjúkrabörur og bornir út úr flugvélinni. EBE Framhald af síðu 16. sérfræðinga, sem um þessi mál hefðu ritað upp á síðkastið, sagði Björgvin, að svipaðar reglur yrðu. látnar gilda um fiskviðskiptin og nú gilda um viðskipti með ávexti, grænmeti og nautakjöt innan EBE. Björgvin gaf blaðinu að lokum yfirlit yfir ytri tolla EBE á fiski og fiskafurðum, sem koma til framkvæmda í áföngum, en verða að fullu komnir til framkvæmda árið 1967: Nýr ísaður fiskur 15%, fryst fiskflök 18%, saltfiskur og skreið 13%, niðursoðinn fiskur 20—30%, saltsíld 12%. ÍÞRÓTTIR ALABAMA Framhald. af 16. síðu. Frá Selma berast þær fréttir, að lögreglan þar hafi í gærkvöldi handtekið yfir 350 manns, þar á meðal marga hvíta presta, sem neituðu að hlýða banni því, sem sett hafði verið gegn mótmæla- göngu til heimilis Joseph Smither- manns bæjarstjóra. George Wallace ríkisstjóri lýsti því yfir í gær, að hann væri fús til að kalla út þjóðvarnarliðið, ef sambandsstjórnin í Washington stæði straum af kostnaðinum. Framhald af 11. síðu. 50 villur sem dæmdar voru þá náðu KR-ingar forystunni snemma í fyrra liálfleik og var forskot þeirra 9 stig í hléi, 28:19. Síðari hálfleikur var endurtekning á þeim fyrri, þannig, að KR jók for- skot sitt jafnt og þétt, þar til loka tölur urðu 55:38 þeim í vil. Leikur ÚTBOÐ Tilboð óskast í að smíða skápa í 8 almennar kennslu- stofur og handavinnustofu stúlkna í Ölduhúsaskóla í Hafnaríirði. Teikningar og útboðslýsing liggja frammi í skrifstofu bæjarverkfræðings og verða afhentar gegn kr. 500,00 skilatryggingu. Frestur til að leggja inn tilboð er til 29. marz n.k. Skrifstofa bæjarverkfræðings í Hafnarfirði. 4 SKIPAUTGCRÐ RIKISINS HAMBORG — AMSTERDAM með M.s. HEKLV Frá Reykjavík föstud. 10.9. Til Hamborgar þriðjud. 14.9. Frá Hamborg föstud. 17.9. Til Amsterdam laugard. 18.9. Frá Amsterdam fimmtud. 23.9. Til Reykjavíkur mánud. 27.9. Skipulagðar verða kynnisferðir í hinum erlendu höfnum fyrir þá, sem óska. Tekið á móti farpöntunum nú þegar gegn 500,00 kr. tryggingargreiðslu á mann, en farseðla þarf að innleysa mánuði fyrir brottfarardag. inn var í heild fremur illa leik- inn. Hittni lítil og harður leikur, má vera að hinir ströngu dómar hafi sett menn úr jafnvægi. Bezt- ir hjá KR voru Gunnar, Kolbeinn og Kristinn meðan hans naut við, og hjá Ármanni átti Birgir bezt- an leik. STAL BÍL Framhaid af 1. síðu Sigurðsson hjá rannsóknarlögregl- unni, sem hefur rannsókn málsins með höndum, kvað ökumanninn hafa gefið sig fram um kl. 10 f morgun. Var það 17 ára gamall drengur, sem tekið hafði bílinn f óleyfi og farið í ökuferð ásamt ein um kunningja sínum. Kristján kvað það næstum furðulegt, að hinn slasaði skyldi ekki láta lífið. Nafn hans er Magnús Már Harð- arson, til heimilis að Kambsvegi 14. Hann er 18 ára gamall. Ekki er blaðinu fullkunnugt um meiðsli hans, en þau voru a.m.k. fótbrot og höfuðkúpubrot, og talið er að liann muni missa sjón á öðru auga. DANSLEIKUR HRINGSINS TIL ÁGÓÐA FYRIR BARNASPÍTALASJÓÐINN VERÐUR HALDINN FIMMTUDAGINN 25. MARZ í SÚLNASAL HÓTEL SÖGU OG HEFST MEÐ BORÐHALDI KL. 7 E. H. TIL SKEMMTUNAR: TÍZKUSÝNING Á LOÐFELDUM FRÁ KONUNGLEGUM HIRÐSALA, BIRGIR CHRISTENSEN, KAUPMANNAHÖFN, MODEL: THELMA INGVARSDÓTTIR, ÁSAMT ÍSLENZKUM FEGURÐARD ROTTNINGUM. — SAMLEIKUR Á PÍANÓ. — JAZZBALLET. Aðgöngumiðasalan í anddyri Súlnasalarins mánudaginn 22. marz kl. 3—5 e. h, — Samkvæmisklæðnaður. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 21. marz 1%5 13

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.