Alþýðublaðið - 24.04.1965, Page 6

Alþýðublaðið - 24.04.1965, Page 6
BAK VIÐ TJÖLDIN ESFA'NDIARY prins, faðir Sorayu, sem nú furt og Munchen, er ekki sérlega ánaegður furt og Mijnchen, er ekki sérlega ánægður með tilraunir dótturinnar til að vinna sér fraagð og frama í kvikmyndaheiminum. Hann er nefnilega ekki aðeins kaupsýslu- maður, heldur líka ráðunautur við íranska sendiráðið í Bonn og hefur upp úr því talsvert meira en á meðan hann var ,,að- eins sendiherra þar. Annars er samkomulag hans við írönsku hirðina ákaflega gott — og einmitt vegna þess að shahinn veit, að hann hefur barizt gegn filmframa dótturinnar. Faðirinn lýsir því yfir, að sér þætti það mikið gott, ef dóttirin losaði sig við kvikmyndagrillumar og hætti að streitast við að komast í fyrirsagnir blaðanna. Hins vegar er frú Esfandiary ákaflega ánægð með það, að dóttirin skuli ekki láta sér nægja að lúlla uppi á austurlenzkum dívan og fitna, heldur reyni að afla sér virtrar stöðu í heiminum. — ~ FYRIR nokkru birtist eftirfarandi auglýsing í einu Lundúnablað- inu: „Ungur maður, 25 ára að aldri, ekki sérlega heppinn með ytra útlit eða framkomu, latur að eðlisfari, leitar eftir að yfirvinna galla sína, ef einhver vill bjóða honum skemmtilegt starf.“ — ~ VOPNAÐIR lögreglumenn munu eftirleiðis aka með neðanjarðar- brautinni í New York til þess að reyna að útrýma þeim viðbjóðslegu gangsterum, sem þar tröllríða öllu og hafa framið svo marga glæpi í brautinni. Segist Wagner borgarstjóri hafa sett 1200 lögreglumenn í þessa baráttu gegn „subway crime“. — ★ ~ HEIMSPEKINGURINN Bertrand Russel, sem nú er 94 ára gamall, hefur nýlega feng- ið sér dæmdar háar skaðabætur fyrir rétti. Ilann hafði farið í mál við brezkt klámblað. Penthouse að nafni, sem hafði notað nafn hans í auglýsingaskyni. — Ég er frjálslyndur maður, sagði Russ-. ell gamli. Ég hef barizt fyrir mörgum mál- um um dagana, en þegar menn fara að gera úr mér kynlífspostula á gamals aldri, þá hlýt ég að mótmæla. _ ★ _ SYLVIE VARTAN, sem er allþekkt sem dægurlagasöngkona, en ennþá þekktari sem hin splunkunýja ektakvinna dægurlagasöngvar- ans Johnny Hallyday, hefur farið í mál við eitt af tízkuhúsunum í Paris, vegna þess að i hanastélspartíi rakst hún á aðra konu í ná- kvæmlega eins ltjól og þeim, sem hún hafði keypt af húsinu fyrir ærið fé. Dómsins er beðið með miklum áhuga í tízkuheiminum í París. — ★ “ KOMI maður inn í ameríska verksmiðju þessa dagana og sjái mann í hárauðu vesti, getur maður gengið út frá því, að þetta sé ZD- maður með extrahá laun. ZD táknar Zero Defects (engir gallar) — og þessi hugmynd hef ur reynzt ákaflega vel í stóru verksmiðjunum. Allir keppast nú við að útrýma öllum göllurn á verki sínu til að ná hinu þráða takmarki: ZD. — ★ — LYNDA BIRD, dóttir Johnsons Bandaríkja forseta, er að flytja úr Hvíta húsinu. Hún er að fara aftur í háskólann í Austin ; Texas til að halda þar áfram námi sínu og gerast síðan kennari. Forsetinn ku ekk- ert hafa á móti þessari ákvörðun dóttur- innar, en hins vegar eru fjórir ungir menn ekki eins glaðir. Þessir fjórir eru þrír menn úr leyni- hiónustunni, sem minnast þess enn með hryllingi, hve mikið var hlegið að þeim, þegar þeir gættu hennar, þegar hún var í skólanum áður, og sá fjörði er Dave Lafeve, ungur bankamaður, sem er kærasti Lyndu. Hann sér fram á mikla fjármála örðugieika af þessari ákvörðun: 1 — Flugferðin til Austin ein saman kostar mig 81 dal — og hvernig á ég svo að eiga eftir peninga til að bjóða henni út? S 24. apríl 1965 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ lÉliSPIl ■ OFHLAÐIN skrauti má vel segja um Sophiu Loren á þessari mynd, sem tekin er úr nýrri mynd hennar, Lady L“, þar sem liún hefur valið að kóma fram sem tyrknesk hefðarmær á grímudans- Ieik. í myndinni leikur Sophia þvottakonu frá París frá því um aldamót, sem gift.ist brezkum aðalsmanni og verður „Lady L“. Kielarskurðurinn sjötíu ára KIELARSKURÐURINN, eða Nord-Ostsee-Kanal, eins og þýzka nafnið á honum hljóðar, heldur upp á sjötugsafmæli sitt í júni 1 sumar- Skurðurinn ligg ur frá Elbuósum við Norðursjó til Kiel við Eystrasalt. En þó að öldungurinn sé sprækur, er afkastageta hans að verða full- lítil miðað við umferðina- Á hverjum degi fara yfir 20 skip um skurðinn, sem er 99 km. að lengd og liggur gegnum hið fræga Slésvík-Holtsetaland. Til samanburðar má geta þess, að Framhald á 10 siðu. Múmía með gerfihandlegg Getur múmía gefið upplýsingar um fyrsta gervihandilegg verald arsögunnar? Svar við þessu mun fást á næstunni, er rannsókn á múmíu einni, sem nú er verið að rannsaka á sjúkrahúsi I Lon- don, er lokið. Hér er um að ræða 3000 ára gamla múmíu, sem er í eigu Gulbenkian-saínsins í London. Við ósköp venjulega röntgenmyndatöku af henni fyr ir skemms'u kom í ljós, að á hana vantaði annan liandlegginn. Hins vegar bendh ýmislegt til, að sá dauði hafi haft gervihand legg þegar á meðan hann var á lífi. Rannsóknin'getur því gefið mex-kar og fi-óðlegar upplýsing ar um forn-egypska læknisfræði. Hópur 82 karla, og kvenna og barna flýðu fyrir skemmstu frá Kúbu á tveim smábátum og náðu til Key West á Florida með að- stoð bandarískra strandgæslu- skipa, sem fundu flóttafólkið um 40 sjómílur frá Key West. Sex af áhöfnum bátanna voru her- menn úr her Castros og höfðu ekki einu sinni gefið sér tíma til að skipta um föt, áður en þeir flýðu, heldur voru í fullum herskrúða. Kúbanskar sápuóperur Eitt sterkasta vopnið gegn Fidel Castro á Kúbu er útvarpsstöð í Miami á Flórida, sem flótta- menn frá Kúbu hafa sett á stofn segir í fréttastofufregn. Stöðin hefur í þrjú ár sent út grátklökk og blíð sár dagskráratriði til Kúbu, en smám saman hefur all ur hinn spænskumælandi heim ur fengið tækifæri til að snökta með- Stöðin sendir út svokallaðar ,,soap-operas“ eða sánuónerur (svokallaðar vegna þess að fv” irtæki, sem hvetja vildu hús- mæður til að kaupa ákveðnar tegundir af sápum, sendu út svokölluð grátklökk prógrömm þeim til upplyftingar á eftirmið dögiun, sérstaklega á fyrstu árum amerísks auglýsinga- út- varps.) Nú er svo komið, að stöðin sendir 200 útvarp'töðv I um í latnesku Ameríku og á Spáni slíkar dagskrár. Og nú berast þær fréttir, að stöðin hafi á prjónunum enn meiri til þrif í framleiðslu slíkra dags- skráratriða, þar sem allir hedztu leikarar Kúbumanna úr þeim hópi, sem flúið hefur, leiki að alhlutverkin. Smám saman hefur starf stöðv arinnar þróazt þannig, að þær dagskrár, sem fela í sér and- kommúnistískan áróður, eru sendar til Kúbu, en ýmis önnur atriði eru svo framleidd til auk ins klökkva öðrum spænskumæl endum. Þá má geta þess, að útvarpsstöðin „Voice of America" sem rekin er af bandarísku rík isstjórninni, hefur keypt um 650 da(gs{krár atf stöðlnní og beinir þeim sendingum beint til Kúbu. Alls staria 68 Kúbumenn við stöðina, sem hefur aðsetur sitt í „Frelsisturninum", húsi sem ríkir Kúbumenn hafa gefið þeim flóttamönnum, löndum sínum, sem fátækari eru. Framh. á 10. síðu. SMWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWWMW SVO margar myndir hafa undanfarið sést af leikaranum Rex Harrison með leikkonunni Audrey Hepburn vegna Oscars- verðlaunanna til handa kvikmyndinni My Fair Lady, að það gæti verið gaman að sjá einu sinni mynd af honum með kon unni sinni. Hún heifcir Racliel Roberts og er líka leikkona. Mynd in er tekin, er Þau hjónin komu til New York með hafskipinu Queen Mary á leiðinni fcil Hollywood að taka á móti verölaun

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.