Alþýðublaðið - 27.05.1965, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 27.05.1965, Blaðsíða 2
ffieimsfréttir sidastliána nótt ★ SANTO DOMINGO: — Fyrstu bandarísku hersveitirnar voru í gær fluttar frá Dóminikanska lýðveldinu og eiga brasilísk- ar löggæzlusveitir að leysa þær af hólmi. Foringi Iierforingja- stjórnarinnar neita'ði í gær a'ð fallast á myndun samsteypu- stjórnar og vill að stjórn hans fari áfram með völdin. Hann hafn aði friðartillögum SÞ, OAS og USA. ★ SAIGON: — Bandarískir landgönguiiðar áttu í höggi við skæruliða Vietnam í gær. Loftárásum er haldið áfram á Norður Vietnam. Noröur-Vietnam hefur hafnað indverskri tillögu um, að fc'æzluliö Asíu og Afríkuríkja gæti friðarins á landamærum Norður- Og Suður-Vietnam. ★ KAIRÓ: — Túnis sendir ekki fulltrúa á forsætisráðherra- fund Arabaríkja, sem hófst í Kairó í gær. Túnis hyggst ekki eenda fulltrúa á aðrar Arabaráðstefnur í framtíðinni. ★ KENNEDYHÖFÐA: Bandaríski geimfarinn Edward H. iVhite á að stíga út úr geimfari sínu og dveljast í geimnum í 12 mín útur þegar ..Gemini 4“ verður skotið frá Kennedyhöfða I næstu viku. ★ KAUPMANNAHÖFN: Poul Hartling rektor hefur verið kjör inn formaöur þingflokks danska Vinstri fiokksins í sta'ð Erik Erík- eens fv. forsætisráðherra. ★ VARSJÁ: — Pólski kommúnistaleiðtoginn Wladyslaw Gom ulka gagnrýndi í gær rómversk-kaþólska biskupa fyrlr að hafa ekki tekið þátt í hátíðahöldum í sambandi við 20 ára afmæli frelsunar Póllands undan oki nazista. \ ★ WASHINGTON: — Sennilegt er, a'ð því er bandarískir her- tnálasérfræðingar telja, að Kínverjar geti gert kjarnorkuárás á Bandaríkin fyrir 1975. Bandaríkjamenn hafa miklar áhyggjui’ af fejarnorkuvígbúnaði Kínverja. ★ PARÍS: — Franska stjórnin lýsti því yfir í gær, að áfram haldandi afskipti erlendra ríkja af málum Dóminikanska lýðveldis áns væri óguun við heimsfriðinn, ★ NIAMEY, Níger: — Fimm menn, þar á meðal fyrrverandi ráðherra, hafa verið dæmdir til dauða fyrir samsæri um að steypa fcíjórn Hamani Dioros forseta Niger í desember 1963. ★ BOGOTA: — Um 500 manns hafa verið handteknir eftir gífurlegar óeiröir í Bogota, höfuðborg Kólombíu, á mánudaginn. Fyrstu hermenn USA fluttir frá Domingo SANTO DOMINGO, 26. maí (NTB—Reuter) Ráðunautur Johnsons forseta í öryggismálum, McGeorge Bundy fór í dag frá Santo Domíngo til Washington til að gefa skýrslu um ástandið í Dóminika'nska fýð veldinu- Jafnframt var byrijað að flytja fyrstu bandarísku hersveit irnar frá Iýðveldinu í dag. Næstu daga verða allmargir bandarískir hermenn fluttir frá Santo Dómingo. Áður hefur verið frá því skýrt, að hermennirnir úr hinu sameiginlega friðargæsluliði Ameríkuríkja koma til Santo Doifi ingo. Brazilísku lögreglumennirn ir eru 1.250 talsins. Bandarísku hermennirnir, sem fluttir voru burtu í dag, voru 600 talsins- Leiðtogi dóminikönsku herfor ingjastjórnarinnar, Barrera Im bert hershöfðingi sakaði í dag Bandaríkin, SV og Samtök Amer íkuríkja um bein afskipti af inn anríkismálum lýðveldisins. Hann sagði að tiliögur, sem þessir að ilar hefðu borið fram síðustu daga til að leysa deiluna, væru óað gengilegar, þar sem það skilyrði væri sett, að ný stjórn yrði mynd uð. Hann sagði, að herforingja stjórnin hygðist halda völdum og lagði til að bráðabirgðarþing yrði kallað saman án undangenginna kosninga. Frá Paris berast þær fréttir, að franska stjórnin hafi lýst því yfir í dag, að áframhaldandi er lend afskipti af innanríkismálum dominikanska) lýðveldisins vælri ógnun við heimsfriðinn- Peyrefitte upplýsingamálaráð! herra sagði að lokum ráðuneytig Framh. á bls. 5 Ræddu vinnutím- ann og orlofið Reykjavík. — EG. FULLTRÚAR Dagsbrúnar, Hlíf- ar og verkalýðsfélaganna á Norð- ur- og Austurlandi, héldu sam- eiginlegan fund með atvinnurek- endum í gærdag. Á fundinum var einkum rætt um sameiginlegar kröfur félaganna um lengingu or- lofs og styttan vinnutíma. Þessir sömu aðilar munu halda annan fund á föstudaginn. Þá héldu fulltrúar verkalýðs- félaganna fyrir norðan og austan fund með Sínum viðsemjendum í gærdag og var þar rætt um sérkröfur félaganna. Sameiginlegi fundurinn, sem Jfl| f§ IIÍIIIís % 27. maí 1965 ★ Frá samningafundinum i gærdag. (Mynd: JV) ALÞÝÐUBLAÐiÐ að ofan getur, var haldinn í Al- þingishúsinu og liófst hann kl. fimmtán mínútur yfir tvö. Að því er Guðmundur J. Guðmundsson, varaformaður verkamannafélags ins Dagsbrúnar tjáði blaðinu, stóð fundurinn í um það bil tvær klukkustundir. Var þar einkum rætt um sameiginlegar kröfur fé- laganna um styttingu vinnutímans og hækkun orlofs í allt að 8%. Voru málin rædd fram og aftur á fundinum og lögðu fulltrúar verka lýðsfélaganna áherzlu á, eins og þeir hafa gert undanfarið, að sér staklega verkamenn og verkakonur hefðu dregizt aftur úr öðrum stéttum hvað vinnutímann á- hrærði og á því yrði að fást lag- færing. Urðu aðilar ásáttir um að halda annan fund næstkomandi föstudag og verður þar að líkind- um lialdið áfram að ræða þessi sömu mál. Kínverjar geta gert atómárás á USA fyrir 1975 WASHINGTON, 26. mal (NTB—Reuter.) Kínverjar munu sennilega geta! gerti kjarnorkuárús á Biandarík in fyrir 1975, að því er bandarísk ir hermálasérfræðingar telja. Samkvæmt upplýsingum leynl þjónustunnar munu Kínverjar Þá ráða yfir eldflaugum, sem skjóta má heimsálfa á milli. Þe^sar upp lýsingar verða til þess, að í skipu lagningu bandarískra landvarna verður æ meiri áherzla lögð á varnir gegn því sem kallast frum stæð, kínversk árás- Til þessa hafa varnirnar miðazt við hættu á vold ugri sovézkri árás með háþróuð um vopnum, sem Rússar xáða yf ir- i í Almanak E.l. Reykjavík. — EG. ÞAÐ olli mörgum vonbrigðum um áramótin, er Eimskipafélag íslands tilkynnti, að vegna kostn- aðar sæi félagið sér ekki fært a8 þessu sinni, að gefa út almanak, eins og gert hefur verið um ára- bil. Það upplýstist á aðalfundi fé- lagsins í gær, að þess væri að vænta, að almanak yrði gefið út að nýju um næstu áramót vegna ■þess, hve margar raddir hefðu heyrzt um að óæskilegt væri að fella þennan fasta lið niður. Reyðfirðingar reiðubúnir Reyðarfirði. — GS-GO. ENGIN síld hefur borizt hingað ennþá, Tveir bátar verða gerðir út á veiðar héðan, Gunnar sem er tilbúinn að fara út, en Snæ- fuglinn er í kiössun í Noregi og er væntanlegur innan tíðar. Síldarbræðslan er tilbúin að taka á móti og getur hafið bræð- slu með annarri samstæðunni innan skamms. Hún hefur verið í notkun undanfarið við beina- vinnslu. Afköst verksmiðjunnar verða væntanlega um 3000 á sólarhring. Hér verða í sumar 4 söltunai stöðvar, eða sama tala og í fyrr: Hér er mikil vinna við undirbú: inginn að sildarmóttökunni og m segja, að meðalvinnutími sé 1 til 12 klukkustundir á sólarhrinf Verið er að byggja mjöl skemmu, starfsmannahús fyrir R og einnig er unnið að hafnai bótum. Sauðburður hefur gengið vé þrátt fyrir kuldann.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.