Alþýðublaðið - 27.05.1965, Side 7

Alþýðublaðið - 27.05.1965, Side 7
Frá verkalýðsfélögunum eftir Þorstein Pétursson SAMNINGARNIR. Nú eru aðeins 10 dagar þar til samningar velflestra verka lýðsfélaga falla úr gildi, eða 5. júní nk. — Samningaum- leitanir rétt nýbyrjaðar. Þrátt fyrir það að verkalýðsfélögin hófu undirbúning að samninga gerð í marzmönuði sl., hefur enn sótt í hið gamla horf, þ. e. að samningaumleitanir hefj- ast ekki fyrr en um það bil sem samningar falla úr gildi. Ekki skal neitt sagt um ár- angur af samningaumleitun- um, en greinilegt er að þung- lega horfir um að samningar geti tekizt fyrir 5. júní. Félögin á Norður og Austur landi hafa sett fram kröfur sínar og hefur ríkissáttasemj- ari þegar tekið við stjórn samningaumleitana þessara fé- laga. Hér sunnanlands hafa mjög fá félög sett fram kröfur sínar um breytingar á samn- ingum. Sameiginlegar kröfur allra verkalýðsfélaga eru: Hækkun kaups, stytting vinnutíma og aukið orlof, auk sérkrafna. Höfuðvandamálið í þessum samningum er sem fyrr, — á hvern hátt megi tryggja kaup- mátt þeirra hækkana, sem um verður samið. Tilgangurinn með kauphækkunum er fyrst og fremst sá, að breyta skipta hlutfallinu milli launþega og atvinnurekenda, gera lilut laun þega stærri en áður. í samn- ingum undanfarinna ára hefur þetta vandamál venjulega ver- ið leyst með yfirlýsingum, um að reynt verði að halda verð- laginu í skefjum og tryggja með því kaupmátt launanna. Þessar yfirlýsingar hafa ekki komið að neinum notum. — Staðreyndin hefur verið sú, að atvinnurekendur hafa á- vallt getað velt öllum kaup- hækkunum af sér út í verðlag- Framhald á 10. síðu- Þórir Ben. Sigurjónsson fimmtugur í DAG er Þórir Benedikt Sigur- jónsson, starfsmaður í Skattstofu Reykjavíkur, fimmtugur að aldri. Hann er fæddur 27. maí 1915 á Árskógsströnd í Eyjafirði. For- eldrar hans voru þau Sigurjón Gunnlaugsson, bóndi í Bröttuhlíð, og kona hans Kristín Benedikts dóttir. Stundaði Sigurjón sjó- mennsku ásamt landbúnaðinum, og var um tíma formaður á báti. Þórir fór með móður sinni til Hríseyjar. Hafði þá misst föður sinn og var 9 ára að aldri, er þetta gerðist. í Hrísey var hann til 19 ára aldurs. Þaðan lá svö leið hans til Eiðaskólans, og stundaði hann þar nám í tvo vetur. Lagði bann síðan stund á ýmis iðnaðar- störf á Akureyri, en til Reykja- víkur hvarf hann 1940, ög gekk þar á Samvinnuskólann. Hefur hann dvalizt hér síðan og stundaði verzlunar— og skrifstofustörf og nú er hann starfsmaður í Skatt stofu Reykjavíkur. Franthald á 10. síðu- Þórir Ben Sigurjónsson ÚTSÖLUSTAÐIR: Reykjavík: Gúmmbarðinn h.f., Brautarholti 8, sími 17984; Akranes: Hjalti Benónýsson; Borgarnes: Kf. Borgfirðinga; Króksfjarðarnes: Kf. Króksfjarðar; Patreksfjörður: Vélsmiðjan Logi; ísafjörður: Kjartan R. Guðmundsson & Co.; Hólmavík: Kf. Steingrímsfjarðar; Blönduós: Kf. Húnvetninga; Laugaland: Karl Guðmundsson; Sauðárkrókur: Kf. Skagafirðinga; Akureyri: Sana h.f; Vaidimar Baidvinsson; Siglufjörður: Raf tækjaverzl. Jóhanns Jóhannssonar; Seyð- isfjörður: Vélsmiðjan Stál h.f.: Fljótsdalshérað: Verzlunarfélag Austurlands; Neskaupstaður: Verzlun Björns Björns- sonar; Eskifjörður; Verzlun Elíasar Guðnasonar; Reyðarfjörður: Verzlun Kristins A. Magnússonar; Fáskrúðsfjörður: Kf. Fáskrúðsfirðinga; Vík í Mýrdal: Kf. Skaftfellinga; Hvolsvöllur: Kf. Rangæinga; Hella: Kf. Þór; Selfoss: Kf. Ár- nesinga; og Kf. Höfn; Keflavík: Kf. Suðurnesja og Verzl. Stapafell; Vestmannaeyjar: Litla bílabúðin og Kf. Vestmeyja. Einkaumboð ó íslandi: i|:ao»» ímmm* s íohmbs' S BRIDGESTONE ALbÝÐUBLAÐIÐ - 27. maí 1965 J

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.