Alþýðublaðið - 13.06.1965, Qupperneq 2
★ LONDON: — Elísabet drottning' hefur sæmt The Beatles
orðu brezka lieimsveldisins, og hinir síðhærðu söngvarar John
Lennon, James McCartney, George Harrison og Ringo Starr geta
liér eftir titlað sig M.B.E. og skreytt sig með tilheyrandi heiðurs-
merkjum til marks um konunglega viðurkenningu.
★ CHICAGO: — Lögreglan í Chicago hefur handtekið um 300
etúdenta í mótmælaaðgerðum gegn kynþáttaaðilskilnaði í skólum.
Margir leiðtogar mannréttindabaráttunnar voru handteknir, m. a.
James Farmer.
PASADENA: — Bandaríska geimfarið Mariner 4, sem á að
taka nærmyndir af plánetunni Marz 14. júlí og senda þær aftur
til jarðar, er nú í aðeins 13 milljón kílómetra fjarlægð frá reiki-
stjörnunni og öll tæki geimfarsins starfa samkvæmt áætlun.
★ HOUSTON: — Bandarísku geimhetjurnar, majóraruir Jam-
os McDivitt og Edivard White, hafa verið liækkaðir í tign og skip-
aðir undirofurstar í bandaríska flughernum. Lyndon Johnson for-
seti skýrði frá þessu, er hann kom til geimvísindastöðvarinnar í
Houston til að óska geimförunum til hamingju með hina vel-
tieppnuðu geimferð í Gemini 4.
STOFNUÐ NORÐANLANDS
Akureyri. júní. — GS—OTJ.
EFNARANNSÓKNARSTOFA
Norðurlands hefur veriö stofnsett
á Akureyri og mun hefja störf
þegar í sumar. Stjórn Ræktunar-
félags Norðurlands boðaði frétta-
menn á sinn fund í gær, og þar
skýrði formaður þess, Steindór
Steindórsson frá þessari merku
stofnun.
Efnarannsóknarstofa NorSur-
lands hefur þegar fengið prýðis
húsnæði hjá KEA, og jafnframt
er um 1 milljón í stofnsjóði. Það
fé var lagt til af Ræktunarsam-
bandinu, KEA, SÍS, Búnaðarsam-
bandi Norðlendingafjórðungs, og
nokkrum kaupfélögum í Norðlend
ingafjórðungi.
Gamli simklefinni á torginu horfinn
★ ÓÐUM er miðborgin að breyta um svip, gömul og virðuleg verzlunarhús úr timbri eru rifin og í
þeirra stað rísa himinháir bankar og skrifstofubygg inga úr stáli og gleri. Og nú er gamli símaklefinn
á Lækjartorgi liorfinn, hann hefur staðið þarna í nokkra áratugi, en til hvers vita líklega færri, því
síminn þarna liefur yfirleitt ekki verið í sambandi, en það er sama, turninn setti sinn svip á bæinn
og er ekki laust við aö Lækjartorg sé heldur sviplausara eftir að hann hvarf.
Rannsóknarstofan mun m. a.
annast jarðvegsefnagreiningar og
fóðui-rannsóknir fyrir bændur, en
hún á þegar nokkuð nauðsynlegra
tækja. í stjórn Ræktunarfélags
Norðurlands eru auk formanns,
Steindór Steindórsson og Jónas
Kristjánsson. Forstöðumaður Efna
rannsóknarstofunnar verður Jó-
hannes Sigvaldason.
Samþykkt á
Raufarhöfn
Raufarhöfn. — GÞÁ—GO.
Kaupgjaldssamkomulagið var
samþykkt á Raufarhöfn í fyrra-
kvöld með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða.
Búizt er við að síldarverk-
smiðjan verði tilbúin að hefja
bræðslu um miðja vikuna.
Merkjaljósum fiski-
skipa verður breytt
HINN 1. september næstkomandi
taka nýjar alþjóðasiglingareglur
gildi, en í þeim er gert ráð fyrir
allverulegum breytingum á ljós-
búnaði fiskiskipa.
Skip, sem eru að togveiðum,
skulu hafa 2 Ijós hvort þráðbeint
upp af öðru með ekki minna en
4 feta og ekki meira en 12 feta
millibili. Efra Ijósið skal vera
grænt og neðra ljósið hvítt og
skulu þau sjást, hvaðan sem litið
er. Neðra ljósið skal vera það
miklu ofar en hliðarljósin sem
nemur tvöföldu millibili lóðréttu
ljósanna.
Á skipum, sem eru að fiskveið-
um öðrum en togveiðum skal Ijós-
búnaður vera hinn sami, að öðru
en því, að efra ljósið skal
vera rautt.
Ef skipin eru styttri en 40 fet
milli Ijósanna vera 3 fet.
þessi skulu s.iást 2 siómílur
álengdar að minnsta kosti. Þeg-
ar veiðarfæri þessara siðarnefndu
ná lengra en 500 fet út frá
þeim í lárétta stefnu, skulu þau
að auki hafa hvítt hringljós
minnst 6 fet og mest 20 fet lá-
rétt út frá lóðréttu ljósunum, í þá
átt, sem veiðarfærið er.
Á daginn skulu skip að fiskveið-
um gefa starf sitt til kynna með
því að sýna, þar sem bezt verð-
ur séð, svarta bendingamyad
gerða úr tveim keilum, hvorri trpp
af annarri og þannig að oddarnir
snúi saman og sé grunnflötur
þeirra 2 fet að þvermáli
minnsta kosti. Séu skipin styífiii
en 65 fet mega þau hafa kör:
stað þessarar bendingamyndar. Ef
veiðarfæri skipanna ná lengra en
500 feb út frá þeim í lárétta
stefnu, skulu þau að auki hafa
svarta keilu með mjóa endann upp
í þá átt, scm veiðarfærið er.
Athygli manna skal vakin 4 þvf,
að ljós þessi má. ekki sýna fyrr en
1. september og ljósin samkvæmt
siglingareglunum frá 1949 má
ekki sýna eftir 1. september næst-
komandi.
Nýju siglingareglurnar eru nú 1
prentun og vænta má, að þær
komi’ út það túnanlega, að mönn-
um gefist kostur á að kynna sér
þær fyrir gildistöku þeirra. í þeim
eru ýmsar aðrar breytingar en
þær, sem að ofan getur.
250 hænur
brunnu inni
Reykjavík, 12. júní. — ÓTJ.
RÚMLEGA 250 liænur drápust
er stór verkfæraskúr brann tll
kaldra kola að Blesastöðmn á Skeið
um í gærkvöldi. Eldsins varð vart
um 11 leytið, og slökkvilið'iff á
Selfossi þá þegar kvatt á vett-
vang. En þegar það kom á stað
inn var eldurinn orðinn óviðráð-
anlegur, svo að engu var hægt að
bjarga. Ekki er fullkunnugt um
áSvf'BPPtök eldsvoðans, en talið er að
bHan í rafmagnsleiffslu hafi vald-
iði
eimsfréttir
siáastlidna nótt
★ SAIGON: — Stjórn Phan Huy Quats í Suffur-Vietnam hef-
tir sagt af sér og herforingjar tekið völdin í sínar liendur á ný.
Sainþykkt var vantrauststiiiaga á fundi Quats með herforingjum.
Allt er- með kyrrum kjörum í Saigon, en óttazt er að stjórnmála-
ungþveitið í landinu fari enn vaxandi.
★ NEW YORK: — Afvopnunarnefnd SÞ, sem öll aðildarríki
fieimssamtakanna eiga fulltrúa í, hefur samþykkt með 89 atkvæð-
um gegn engu tiliögu um nýja ráðstefnu um afvopnun með þátt-
töku allra ríkja heims, þar á meðal Kína. Júgóslavía og 34 Afríku-
Cg Asíuríki báru fram tillöguna. Samþykkt afvopnunarnefndarinn-
ar verður tekin fyrir á Allsherjarþinginu í haust.
ENN ER G0Ð V
Reykjavík, — GO.
Sólarhringsaflinn var nú 36850
mál á 32 báta. Veður var sæmilegt
á síldarmiðunum, en strekkingur
við landið. Þessi skip tilkynntu
síldarleitunum á Raufarhöfn og
Dalatanga um afla sinn frá kl.
7 í fyrramorgun til kl. 7 í gær-
morgun:
Sigurður Bjarnason 1700 mál,
Guðrún Jónsdóttir 1000, Jón
Þórðarson 1000, Brimir KE 950,
Helgi Flóventsson 1500, Hugrún
ÍS. 1500, Þórður Jónasson 2100,
EFNARANNSÓKNASTOFA
Akurey 1650, Heimir 1400, Ingiber
Ólafsson II. 1500, Höfrungur III.
1900, Helga Guðmundsdóttlr 1400,
Faxi 1700, Mímir 650, Hrönn ÍS
750, Arnarnes 1000, Margrét 1400,
Viðey 1300, Sæþór 1100, Jón Kjart
ansson 1500, Þorgeir 400, Skarðs-
vík 1000, Búðaklettur 1500, Sól-
rún 600. Gullberg 1100, Skálaberg
60, Jón á Stapa 1100, Jón Eiríks-
son 1100, Krossanes 1500, Hoffell
200, Sigurður Jónsson 1100 og
Þráinn 700.
2 13. júní 1965 - ALÞÝÐUBLAÐiÐ