Alþýðublaðið - 13.06.1965, Qupperneq 3
Herforingjar taka
völdin í S-Vietnam
Saigon og Washingrton. 12. júní.
(ntb—reuter—afp).
Stjórnin í Suðnr—yietnam und-
ir forsæti Phan Quat hefur sagt
af sér og herforingjar hafa aftúr
tekið völdin í sínar hendur, að' því
er skýrt var frá í Saigon og Wash
ington í nótt.
Valdaskiptin urðu að loknum
fundi forsætisráðherrans og her-
íoringianna um ástandið í land-
inu. Meðlimir löggjafarráðsins, þ.
e. bráðabirgðaþingsins, hafa einn
ig sagt af sér.
Á fundinum í gær var borin fram
vantrauststillaga á stjórnina og
var hún samþykkt með níu atkv.
gegn þremur en 11 sátu hjá. Hin
borgaralega stjórn tók við völdum
í-nóvember í fyrra, en hún hefur
alltaf ver-ið -ótraust í sessi vegna
.afstöðu herforing.janna. Fyrsti'
fórsætisráðherra stjórnarinnar var
{Trang Van Huong og Phan Huy
( Quat tók við af honum í febrúar.
Allt var með kyrrum kjörum í
Saigon í nótt, en öflugur hervörð-
ur var við mikilyægan stjórnar-
byggingar þegar orðrómur um
valdaskiptin fór að breið.ast út. —
Formælendur bandaríska utanrík-
isráðuneytisins sögðu þegar í gær
kvöldi, að verið væri að skipta
1 um leiðtoga í Saigon. Stjórn Qu-
ats mun sitja áfram til bráða-
I birgða, án þess að hafa nokkur
pólitísk völd.
Framhald á 14. síðu.
GOð SKÓGRÆKT ARVOR
Reykjavík. — GO.
SAMKVÆMT upplýsingum
Hákonar Bjarnasonar skóg-
ræktarstjóra er yfirstandandi
vor ákaflega hagstætt skóg-
ræktinni, eins og reyndar öll
um gróðri á landinu. Hlýindin
voru að vísu nokkru seinna á.
ferðinni á Norðurlandi og Aust
urlandi, en vel virðist ætla að
rætast úr.
Vorið og sumarið 1939 er
það bezta sem enn hefur komið
á þessari öld, en vorin 1958,
’59 og 1960 voru einnig ákaf-
lega góð. Hins vegar voru vorin
í fyrra og hitteðfyrra einhver
þau verstu á þessari öld og þó
öllu verra í fyrra.
| þessu sambandi má geta
þess, að skógræktarstjóri kveð
ur fólk fullfljótt á sér að
höggva upp greni, sem orðið
hefur illa úti í þessum tveim-
ur síðastliðnum árum. Það geti
sem hægast náð sér enn þá. —
Verði það hins vegar ekki bú-
ið að ná sér á strik í lok þessa
mánaðar, er óhætt að fleygja
því.
Skógræktin hefur unnið að
því að bæta skaðann í fyrra og
hitteðfyrra, koma sér upp
nýjum stofnum o.s.frv. Þannig
að sama sagan á ekki að end-
urtaka sig.
GJÖF SÍS TIL HANDRITA-
Dýrasta lystiferð
heimsins hingað
STOFNUNARINNAR AFHENT
Eins og getið hefur verið um
í fréttum ákvað átjándi aðalfund-
ur Samvinnutrygginga, sem hald-
inn var í Keflavík 31. maí s.l. að
afhenda Handritastofnun íslands
að gjöf kr. 100.000.00. Tiltekið var
að gjöfinni skyldi varið til áhalda
kaupa fyrir stofnunina eftir nán-
ara samkomulagi við forstöðu-
mann hennar. Þá fylgdi það með
að gjöfin væri gefin í tilefni af-
hendingar íslenzku handritanna,
sem danska þjóðþingið hafði sam
þykkt daginn áður.
Formaður stjórnar Samvinnu-
trygginga, Erlendur Einarsson,
forstjóri. og framkvæmdastjóri
þeirra, Ásgeir Magnússon, af-
hentu gjöfina forstöðumanni
Handritastofnunarinnar, Einari
Ól. Sveinssyni, dr. phil., á heimili
hans þann 2. þ. m. að viðstödd-
um nokkrum stjórnarmönnum
Handritastofnunarinnar og öðrum
gestum. Hafði Erlendur Einarsson
nokkur orð fyrir gjöfinni, en Ein-
ar Ól. Sveinsson þakkaði þennan
mikla höfðingsskap og kvað gjöf-
ina koma í góðar þarfir, en þá
væri ekki síður mikilsverður sá
góði hugur og skilningur ráða-
manna Samvinnutrygginga, sem
fram kæmi í hinni höfðinglegu
gjöf.
Reykjavík, 12. júní. — GG.
TVÖ skemmtiferðaskip hafa
þegar komið hingað í sumar, Braz
il til Ferðaskrifstofu rlkisins, og
kemur væntanlega aðra ferð síðar
í sumar. og Mauretania frá Cun-
ardlínunni til Ferðaskrifstofu Zo-
ega, en sú skrifstofa tekur á móti
flestum skipanna. Næsta skip, sem
skrifstofan tekur við er þýzka skip
ið Hanseatic, sem kemur 21. júní
með 700 til 800 farþega.
2. júlí kemur sænska skipið
Gripsholm með 4-500, þá gríska
skipið Akropolis 7. júlí með 3-400
Caronia 8. júlí, þá þýzka skipið
Bremen með 7—800, þá Hanseatic
aftur 22. júlí og loks Argentína 3.
ágúst með 4—500 farþega.
í landi fara farþegar af öllum
skipunum, nema Gripsholm og Ar
gentinu. til Gullfoss og Geysis.
Farþegar af þessum skipum
kaupa yfirleitt mjög mikið í landi
segir Tómas Zoega, fulltrúi hjá
Geir Zoega, en þó sérstaklega far
Bítlarnir á vinsælda-
lista drotningarinnar
London 12. júní. (ntb-reuter).
Elízabet Englandsdrottning
sæmdi Bítlana í dag heimsveldis-
orðunni og nú geta þeir síðhærðu
og vinsælu skemmtikraftar bætt
bókstöfunum M.B.E. aftan við
nöfn sín og skreytt sig með orðu
sem er vottur konunglegrar viður
kenningar. M.B.E. er lægsti tit-
ill orðu þeirrar sem stofnuð var
árið 1917 af afa Elísabetar drottn
ingar, Georg V., og er kjörorð
hennar: „Fyrir guð og heimsveld-
ið.”
Filipus hertogi lét þess getið við
afhendingu orðanna, að Bítlarnir
inntu af hendi mikilsvert hlutverk
við að fá fólk til að gleyma áhyggj
um sínum og slappa af í önn dags
ins. Sama dag fengu fjöldi ann-,
arra þegna Bretaveldis orður, —
þeirra á meðal stjórnmáiamenn,
ambassadorar, listamenn og hers
höfðingjar. en engar þessara orðu
veitinga vöktu eins mikla athygli
og viðurkenning Bítlanna.
Eg hélt að maður þyrfti að aka
stríðsvögnum og vinna styrjaldir
til að fá orðu, sagði John Lennon,
Framh. á 14. síðu.
þegar með Gripsholm og þýzku
skipunum. Gat hann þess, að
skemmtiferðalagið með t. d. Brem
en væri eitt dýrasta ferðalag sinn-
ar tegundar í heimi, og með
því fólk, sem ekki horfði í pening-
inn. Bremen kemur hingað og til
Akureyrar, og til þriggja hafna f
Noregi á slíkri ferð.
Tómas skýrði svo frá, aö yfir
sumarið hefði skrifstofan starf-
andi 40—50 túlka og leiðsögu-
menn við móttöku þessara skipa,
en að sjálfsögðu færi það eftir
fjölda farþega á skipunum hve
margir störfuðu í einu.
ÓOOOOOOOOOOOOOOO
HAB í EYJUM
VELUNNARAR Aibýðublaðs
ins! Styrkið blaðið ykkar
með því að kaupa miða f
Happdrætti Alþýðubiaðsins.
Miðarnir eru sendir heim,
ef þess að óskað. Umboðs-
maður HAB í Vestmanna-
eyjum er: Vilhelm Júlíusson,
sími 1678.
ooooooooooooooo-o
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 13. júní 1965 3