Alþýðublaðið - 13.06.1965, Side 4
EG£ími>
KHstjórar: Gylfl Gröndal (áb.) og Bencdlkt Gröndal. — Kitstjój'narfull-
trúi: Eiður Guönason. — Símar: 14900 - 14903 — Aiiglýsingasimi: 1490G.
Aðsetur: Alþýðuhúsið vlð Hverfisgötu, Keykjavík. — Prentsmiðjá Alþýðu-
blaðsins. — Askriftargjald kr. B0.00. — I .lausasölu kr. 5.00 eintakið.
Utgeíandi: Alþýðuflokkurinn.
FIMM VANDAMÁL
í RÆÐTJ, sem Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamála-
ráðherra flutti á fundi kaupmanna í síðustu viku, fór
hann nokkrum orðum um fimm vandamál, sem hann
taldi hlytu að verða höfuðviðfangsefni íslenzkra efna-
hagsmála og stjórnmála á næstu mánuðum og ár-
um. Vandamálin eru þessi:
1. Nauðsyn þess að verðtryggja fjárskuldbinding-
ar, þar sem með núverandi fyrirkomulagi rask-
ast annars með algjörlega óeðlilegum hætti tekju-
og eignaskiptingin í landinu og allt of sterkir
hagsmunir verða tengdir því, að einhver verð-
bólguþróun eigi sér stað. Minnti Gylfi í þessu
sambandi á frumvarp ríkisstjórnarinnar um verð-
tryggingu fjárskuldbindinga, sem lagt var fram
á síðastliðnu vori.
2. Óhjákvæmileg nauðsyn er fyrir íslendinga að
breikka grundvöll atvinnulífs síns. Minnti ráð-
herra á, að fiskifræðingar hefðu bent á, að fyrir-
sjáanlegt væri að aukningu sjávaraflans hér við
land væru mjög þröng takmörk sett. Þess vegna
þyrfti að vinda bráðan bug að því að hagnýta
aðrar auðlindir landsins og búa ört f jölgandi íbú-
um ný atvinnuskilyrði. Samhliða aukningu sjáv-
arvöruiðnaðarins þarf að koma á fót nýjum út-
flutningsiðnaði, sem hagnýtt getur orku fossanna
og hveranna, sagði viðskiptamálaráðherra.
3. Innflutningstollar okkar eru að meðaltali miklu
hærri en tíðkast í nokkru okkar viðskiptalandi,
sem býr við svipað hagkerfi, og vegna síaukinna
ferða íslendinga til annarra landa koma hinir háu
innflutningstollar ekki til framkvæmda nema áð
nokkru leyti.
4. Þróunin innan viðskiptabandalaganna í Bvrópu
hefur orðið örari en ráð var fyrir gert og virðist
því tímabært fyrir íslendinga að endurskoða af-
stöðu sína. Það hefur aldrei komið til greina, að
íslendingar gerðust aðilar að Efnahagsbandalagi
, Evrópu eins og til þess var stofnað og eins og
það starfar í dag, sagði ráðherra.
: 5. Nauðsyn ber til að móta nýja stefnu í íslenzkum
landbúnaðarmálum. Þrátt fyrir aukna vélvæð-
, ingu hefur framleiðslukostnaður landbúnaðarins
vaxið örar hér en í nágrannalöndum okkar, fyrst
og fremst vegna kauphækkana. Verðmunur á
óniðurgreiddum landbúnaðarvörum íslenzkum og
hliðstæðum erlendum vörum er nú orðinn gífur-
lega mikill og vegna umframframleiðslu eru út-
flutningsbætur orðnar þungur baggi á ríkissjóði.
Framangreind fimm atriði taldi Gylfi Þ. Gíslason
) í ræðu sinni, að hlytu að verða megin viðfangsefni
' íslenzkra stjómmálamanna og sérfræðinga á sviði
J' efnahagsmála á næstunni.
4 13. jÚJií. 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Fyrir 16. júní
NÝ SENDING
Sumar - kvöldkjólar
Stuifir - síðir
BLÚNDUKJÓLAR
ALSILKIK JÓLÁR
CIFFONGEKJÓLAR
HÖRKJÓLAR
STRIGAKJÓLAR
HAFNARSTHÆTI B
Wallenberg
er ófundinn
Moskvu, 11. júní (NTB--Reuter
—TT) Wallenberg—málið var
tekið fyrirf en ekki er ástæða til
bjartsýni, sagði Tage Erlander
forsætisráðherra Svía eftir að hafa
rætt við sovézka forsætisráðherr
ann, AJeksei Kosygin í dag- Erland
er kom til Moskvu í dag í átta
daga opinbera heimsókn-
Erlander sagði, að Rússar héldu
þvi enn fram >að ekki hefði tek
is4 að finna Wallenberg. Þedr
heldu fast vlð þá staðhæfingu sína
frá 1957, að Wallenberg hefði lát
izt í Ljubljanka—fangelsi. Málið
verður aftur tekið fyrir síðar. Er
lander sagði, að Kosygin hefði
þekkzt boðið um að heimsækja
Sviþjóð.
í veizluræðu fyrr í dag sagði Er-
lander, að staðbundin deila eins
HjóJbarðaviSgerðir1
OPIÐ AL'LA DAGA
(LáKA LAUGARDAGA
OG SUNNUDAGA)
FBA. KL. 8 TUi 23.
Gúmmívinnustofan h/f
Skipholti 35, Reykjtvík.
og í Vietnam gæti orðið að ógnun
við heimsfriðin. Nauðsynlegt væri
að koma skriði á baráttuna fyrir
afvopnun til að tryggja friðinn
i viðræðunum við Kosygin voru
vandamál SÞ efst á baugi.
STENBERGS Maskinbyrd
Stocholm
AB
framleiða alls konar trésmíðavélar,
sérstæðar og sambyggðar.
Vél sú er myndin er af, er lítil fyrirferðar,
létt og afkastamikil, hentar mjög vel fvrir
minni verkstæði, byggingameistara og ein-
staklinga. — Leitið upplýsinga.
Einkaumboð fyrir ísland:
lónsson & Júlíusson
Hamarshúsinu, vesturenda. Sími 15-4-30.