Alþýðublaðið - 29.06.1965, Síða 1
SJÓMENN MÓTMÆLA ÚRSKURÐI YFIRNEFNDAR UM SÍLDARVERÐ
SILDARFLOTINN er hættur veiðum. Skipstjórar skipanna
samþykktu einróma a'ðfaranótt sunnudags að leggja niður veiðar
í mótmælaskyni við ákvörðun yfirnefndar um bræðslusíldarverð-
íð_ Eftir að atkvæðagreiðsla hafði farið fram um talstöðvar skip-
. anna, var sjávarútvegsmálaráðherra og fleiri aðilum í Reykjavík,
, sent skeyti, þar sem sagt var frá þessari ákvörðun. Áhafnirnar
, munu standa með skipstjórum sínum í þessu rnáli. Bátarnir hafa
.yfirleitt haldið til sinna heimahafna, nema nokkrir sem lagzt hafa
,á hafnir austaniands og norðan, en áhafnir þeirra hafa yfirleitt
farið heim.
•, t Blaðinu bárust í gær yfirlýsing-
ar frá ríkisstjórninni og fleiri að-
\ ilum og birtast þær á bls. 2 og 3
í blaðinu í dag.
40 — 50 bátar frá Reykjavík,
( /' Hafnarfirði, Keflavík og víðar af
)|/***«» suðvesturlandi söfnuðust saman
: við Grímsey frá því á laugardags
kvöld og fram á sunnudagsmorg-
un. Síðan héldu þeir heimleiðis
og komu til hufna í gær. Annar
floti fór frá Austfjörðum og suður
fyrir land. Þá hættu bátar þeir
sem hafa verið á síldveiðum við
Vestmannaeyjar að undanförnu
veiðum á miðnætti í fyrrinótt. Er
það gert í mótmælaskyni við að
enn hefur ekki verið ákveðið verð
á síld til þeirra.
Sjómaður á Vigra leggur af stað í
land með pokann sinn. Mynd JV
Meginkrafa sjómanna er sú, að
bræðslusíldarverðið hækki um 30
krónur á mál, þannig að verðið
til 15. júní verði 220 krónur og
250 krónur eftir þann tíma. For-
svarsmenn LÍÚ og Útvegsmanna-
félags Vestmannaeyja kváðust
engin afskipti hafa liaft af þess-
Framhald á 14- siðu.
Skeyti skipstjóranna
Skeytið sem síldveiðiskipstjórarnir sendu suður á laug.
ardagskvöld, var svohljóðandi:
Samkvæmt opinberri atkvæðagreiðslu gegnum talstöðvar
síldveiðiskipanna, þar sem sú ákvörðun var tekin, að ekkert
síidveiðiskip fari tii veiða fyrr en kaupendur bræðslusíldar
samþykktu að greiða fyrir síldina eftirtalin verð:
Síld veidd fyrir 15. júní 1965, lágmark kr. 220 pr mál.
Síld veidd eftir 15. júní 1965, lágmark kr. 250 pr. mál.
Viljum vér hérmeð tilkynna yður þessa ákvörðun vora
F.h. síldveiðisjómanna.
Haraldur Ágústsson, Andrés Finnbogason, Hrólfur Gunnarsson,
Halldór Benediktsson, Benedikt Ágústsson, Örn Erlingsson,
Sævar Sígurjónsson, Björn Jónsson, Magnús Magnússon,
Þórður Hermannsson, Sævar Brynjólfsson, Pétur Jóhannsson,
Valdimar Jónsson, Aðalbj. Sigurlaugss,, Björn O Þorfinnsson.
Undirskrift staðfestir Haukur Þorgilsson símritari.
Guðmundur í. Guðmundsson utanrikisráðlierra og frú hans, taka á móti Torsten Nilsson utan-
ríkisráðherra Svíþjóðar, og frú hans, á flugvelli num I gær. — (Mynd JV).
Torsten Nilsson
4
kom hingað í gær
Reykjavík, — EG
TORSTEN NILSSÖN, utanrík-
isráðherra Svía, og kona hans
ásamt fýlgdarliði komu í opin-
bera heimsókn til íslands í gær.
Ráðherrahjónin komu með Sól
faxa Flugféiags íslands frá
Osló, en vélin lenti á Reykja-
víkurflugvelli klukkan rúm-
lega hálf fimm. Guðmundur í.
Guðmundsson utanríkisráð-
herra og kona hans tóku á
móti gestunum við komuna.
Upphaflega átti Nilsson að
koma klukkan þrjú, en Sól-
faxa seinkaði í Osló og kom
ekki til Reykjavíkur fyrr en
klukkan hálf fimm, sem fyrr
segir.
Nilsson og kona hans stigu
fyrst út úr flugvélinni og heils
uðu utanríkisráðherra, Guð-
mundi í. Guðmundssyni og
konu hans, sænska sendiherr-
anum á íslandi og frú og ráðu-
neytisstjóra íslenzka utanríkis
ráðuneytisins, sem einnig var
þarna. í fylgd með sænsku ráð-
herrahjónunum eru Leif Bel-
frage ráðuneytisstjóri, P. R.
Hichens-Bergström. deildar-
stjóri og Par A. Kettis fulltrúi.
Torsten Nilsson lét svo um-
mælt við komuna, að þetta
væri í þriðja skipti, sem hann
kæmi til íslands og kvaðst hann
hafa hlakkað mjög til þessarar
ferðar og vonaðist hann nú til
að geta séð meira af landinu
en hann hefði áður gert.
Af flugvellinum var ekið til
ráðherrabústaðarins, þar sem
ráðherrahjónin munu dveljast.
í gærkvöldi sátu þau kvöld-
verðaiboð Guðmundar í Guð-
mundssonar utanrikisráðlierra
og konu hans í ráðherrabústaðn
Framh. á 14. siðu.