Alþýðublaðið - 29.06.1965, Side 4
Kltstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Kitstjórnarfull
trúi: Ei'ður GuBnason. — Síinar: 14900 - 14903 — Auglýsingasími: 14900
ASsetur: AlJiýSuhúsið viS Hverfisgötu, Keykjavík. — Prentsmiðja AlþýSu
blaðsins. — Askriftargjald kr. 80.00. — I iausasölu kr. 5.00 eintakiS
Utgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Stöðvun síldveiðanna
ÍSLENZKA ÞJÓÐIN stendur höggdofa yfir
hinni skyndilegu stöðvun síldveiðiflotans. Slík
i
j tíðindi hafa aldrei fyrr gerzt í landinu og var sorg-
í leg sjón í gærdag að sjá hvern síldarbátinn á fæt-
ur öðrum sigla inn á Reykjavíkurhöfn, þegar
, veiðar ættu að standa sem hæst.
í Hvað veldur því, að skipstjórar síldarbátanna
' I r • •
grípa til slíks örþrifaráðs fyrirvaralaust? Því var
| svarað með skeyti, sem skipstjórarnir sendu frá
; Raufarhöfn seint á laugardagskvöld. Þetta skeyti
j ber með sér, að það er verð síldarinnar, sem vald-
ið hefur þessum viðbrögðum. Skipstjórarnir
tilkynna, að með opinberri atkvæðagreiðslu gegn-
i um talstöðvar skipanna hafi sú ákvörðun verið
tekin, að ekkert síldveiðiskip skuli fara til veiða,
fyrr en kaupendur síldarinnar samþykkja að
greiða 220 krónur fyrir mál veitt fyrir 15. júní
og 250 krónur fyrir mál veitt eftir 15. júní.
Verð síldarinnar var ákveðið af Verðlagsráði
sjávarútvegsins, en í því eiga sæti fulltrúar sjó-
manna og útgerðamianna, svo og fulltrúar síld-
: arkaupenda. Þegar ekki náðist samkomulag í þessu
i ráði, ivar málinu samkvæmt lögum vísað til yfir-
1 nefndar, en í henni eiga sæti fulltrúar síldarselj-
; enda og síldarkaupenda með forstjóra Eínahags-
stofnunarinnar sem oddamann. í f jarveru Jónasar
j Haralz er Bjarni Bragi Jónsson hagfræðingur
] oddamaður í yfirnefndinni, sem kvað upp úr-
j skurðinn.
Viðhorf síldarsjómanna byggjast á þeirri vit-
neskju, að síldarverksmiðjur græddu yfirleitt
I stórfé í fyrra, og verð á síldarlýsi og mjöli hefur
j en« hækkað verulega. Telja þeir, að af þeim sök-
v um geti verksmiðjurnar greitt enn meiri hækk-
i un á síldarverð en úrskurð.urinn gerði ráð fyrir,
| og krefjast 250 króna á málið. Síldarverksmiðjur
j rikisins telja hins vegar, að samkvæmt áætlun-
! um um aflamagn og verðlag geti verksmiðjurnar
ekki greitt nema 225 krónur á málið.
Fyrir utan deilur um síldarverð hafa sjómenn
.• haft uppi háværar kröfur um önnur mál, sem
þeir telja, að geti haft veruleg áhrif á afkomu
þeirra. Eitt þessara mála er mæling síldarmagns-
ins við löndun. Er magnið nú grófmælt í löndunar-
tækjum, en sjómenn hafa krafizt þess, að síldin
yrði vigtuð. Er það mjög sanngjörn krafa af þeirra
hálfu, og féllst Alþingi loks á það síðastliðinn vet-
ur, að athugað yrði, hvernig hægt er að koma
vigtun fyrir. Vildi Alþingi, að reynt yrði að hefja
almenna vigtun sumarið 1966.
Aðdragandi síldardeilunnar, sem leitt hefur til
fyrirvaralausrar stöðvunar veiðanna, hefur verið
i langur og flókinn og án efa hefur verðlagningin
j
4 29. júní 1965 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Fyrirliggjandi
ÞÝZKT RÚÐUGLER
2, 3, 4, 5 og 6 mm. þykktir.
Hamrað gler 3 — 4 mm.
Gróðurhúsagler 45x60 cm. og 60x90 cm.
EGGERT KRISTJÁNSSON & CO. H.F.
— Sími 1-1400. —
Ríki, sem er í upplausn
ÞA» ER GOTT VEÐUR fyrir
Austuriandi. Síldin bíður í isjón
um- Það er illviðri á síldveiðiflotan
um. Undir forystu skipstjóranna
hverfa skipin af miðunum. Þau
ejþu þ heímlejð. Skipfljóraynir
hafa tekið sig saman um það gegn
um talstöðvarnar að hætta veið
um og sigla heim. Einhverjir liafa
þó skilið skipin eftir og ráðið
hejmamenn til að gaeta þeirra, en
tekið sér sjálfum flugfar burtu
frá verstöðvunum-
ÞETTA ERU furðuleg tíðindi.
Maður gat hinsvegar átt á ýmsu
von, enda farinn að venjast ýmsu
í fari þes;arar undarlegu þjóðar
sem virðist álíia, að hver hópur út
af fyrir sig, sé þjóðin öll, og varði
ekkert um hina. Þeir fengu tutt
ugu þúsund mál í Vestmannaeyj
um — og hættu- Það var ýndislegt
veður á miðunum fyrir Austur
landi — og þeir sigldu heim.
EF MABUR SKYGGNIST til
liðinni áratuga , þá getur það
ekki farið fram hjá manni, að
sjúkdómseinkennin ágerast og
sjúkdómurinn fer vaxandi. Þetta,
sem við köllum íslenzkt ríki, er
að leysast upp í fjölmarga hags
munahópa, sem allir þykjast liafa
Iög að mæla. Hrófatildrið, sem við
köllum ríki hefur enga stjórnar
skrá og ekkert framkvæmdavald
Ef einliver er ekki ánægður með
lög; þá tilkynnir hann aðeins að
hann fari ekki að þeim.
MER dettur ekki í hug að ræða
það hvort síldarverðið sé eins og
það eigi að vera, ég hef ekki vit
á því, og mér dettur heldur ekki
í hug að ásaka einn eða annan að
ila. Þeir eru allir sjú.kir, því að
kerfið er sjálft sjúkt og hefur ver
ið það lengi.
FÍKNIN í FJÁRMUNINA hefur
SVipt okkur dómgreind. Við öflum
mikils til þess að eyða því í það
sem við höldum að sé lífsgæði,
en felur mjög oft dauðann í sér,
og menn skulu ekki halda það
að hægt sé að gera fólk ánægt,
Það verður aldrei hægt-
ÞEIR REYNAST GRIMMARI í
krafsinu, sem bera mikið úr být
um heidur en þeir, sem berjast í
bökkum. Þetta er eldgömul saga
— og hún endurtekur sig sannar
lega- Þeir virðast helzt vaða út
í verkföll og stöðvanir, sem hafa
mest. Hinir fara sér hægar og
reyna að gæta allra átta. Það er í
raun og veru alveg sama hver á að
heita að stjórni þessari þjóð, þeir
verða allir jafn máttvana gegn
ofsanum. Hannes á horninu.
Þýzkir kvenskór
Ný sending. — Stórglæsilegt úrval.
SKÓVAL
Austurstræti 18, Eymundssonarkjallara.
Seljum næstu daga nokkurt magn af
karlmannaskóm
fyrir kr. 240,00, kr. 310,00, kr. 315,00 og kr. 450,00.
Ennfremur ýmsar gerðir af
karlmannasandölum
Verð frá kr 246.00.
Skóbúð Austurbæjar
Laugavegi 100.
gengið hægar og verr en æskilegt hefði verið. Úr
því sem komið er hlýtur öll þjóðin að taka undir
þá ósk, að hið skjótasta greiðist úr þessu máli, svo
að síldveiðar hefjist á ný.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarlögmaður
Málflutningsskrifstofa
Óðinsgötu 4 - Síml 11043.